Málglöggur Molavinur benti á ,að í fréttum Stöðvar tvö (09.01.2010) hefði verið rætt við mótmælanda á Austurvelli, sem hefði sagst skulda 500 þúsund og húsið sitt hefði verið kyrrsett. Fréttamaður gerði enga athugasemd við þetta orðalag , en væntanlega hafa ýmsir átt í erfiðleikum með að skilja hvernig hús hefur verið kyrrsett, – þetta er …
Category Archive: Skrifað og skrafað
Molar um málfar og miðla 234
Frosthörkur og fannfergi í Evrópu hafa komið við sögu í fréttum að undanförnu. Í fréttum Stöðvar tvö (10.01.2010) var sagt: Fólk var hvatt til að halda sér heima. Réttara hefði verið að segja að fólk hefði verið hvatt til að halda sig heima, -ö fara ekki út úr húsi. Í fréttum Stöðvar tvö var (07.01.2010) …
Molar um málfar og miðla 233
Í sjónvarpsauglýsingu um ágæti Fréttablaðsins segir : Fréttablaðið er dreift um allt land. Þetta er ekki rétt. Rétt væri að segja: Fréttablaðinu er dreift um allt land. Einhverju er dreift. Vinsamlega leiðréttið þetta, Fréttablaðsmenn. Þetta hefur dunið á okkur að minnsta kosti tvö kvöld í röð. Eftirfarandi er úr dv.is (05.01.2010): Björgólfur Thor Björgólfsson, fyrrverandi …
Molar um málfar og miðla 232
Áfram flæða ambögurnar í eyru okkar úr Efstaleiti. Í fréttum (05.01.2010) var talað um að kappkosta við að eyða. Málvenja er að tala um að kappkosta ,ekki kappkosta við eitthvað. Þá var og sagt að Kastljós væri líka hlaðið af Icesave. Þetta er ekki íslenska. Útvarp ríkisins verður að gera betur en þetta. Fréttastofu útvarps …
Þversagnir í þoku skrúðmælginnar
Yfirlýsing Ólafs Ragnars frá Bessastöðum í morgun er þversagnakennd, – þversagnirnar eru huldar þoku skrúðmælginnar eins og svo margt sem kemur utan af Álftanesi. Það alvarlegasta í yfirlýsingu ÓRG er eftirfarandi setning: Skoðanakannanir benda til að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar sé sama sinnis. Þá sýna yfirlýsingar á Alþingi og áskoranir sem forseta hafa borist frá einstökum …
Molar um málfar og miðla 231
Málfar í íþróttafréttum mætti á stundum vera betra. Í íþróttafréttum í hádegisfréttatíma RÚV (02.01.2010) var sagt… að hollenski knattspyrnumaðurinn sé frjálst að yfirgefa spænska stóriiðið…Þarna hefði átt að segja að hollenska knattspyrnumanninum væri frjálst… Einhverjum er eitthvað frjálst. Sami fréttamaður sagði í þessu sama fréttatíma ..Liverpool og Tottenham hafa verið orðuð við kappann.Nú er Molahöfundur …
Molar um málfar og miðla 230
Ekki verður sagt að árið hafi byrjað vel á Fréttastofu Stöðvar tvö , ef miðað er við orðfæri í fréttum að kveldi Nýársdags. Þar var sagt fór í gegnum námskeið. Betra hefði verið að segja að maðurinn hefði sótt námskeið. Þar var líka þetta: Davíð hefur heyrt í aðstandendum mannsins,sem líður vel. Hverjum líður vel? …
Sérkennileg staða !
Það er merkileg og sérkennileg staða sem nú er komin upp: Þeir sem fundið hafa Ólafi Ragnar flest til foráttu (Morgunblaðið og Sjálfstæðismenn) setja nú allt sitt traust á Ólaf Ragnar, – að hann neiti að undirrita Icesave lögin. Bandaríkjamenn segja Politics makes strange bedfellows. Ótrúlegustu menn sænga saman í rekkju stjórnmálanna!
Molar um málfar og miðla 229
Gleðilegt ár ! Áramótaávarp forsetans var athyglisvert fyrir þrennt. Í fyrsta lagi það sem hann sagði um skipan embættismanna í dómskerfinu. Í öðru lagi orð hans um óttann við geðþóttavald ráðamanna og nauðsyn siðvæðingar í stjórnkerfinu. Í þriðja lagi var svo varnaglinn sem hann sló er hann talaði um vilja þjóðarinnar sem hornstein stjórnskipunar lýðveldisins, …
Molar um málfar og miðla 228
Bjarni Sigtryggsson sendi Molum eftirfarandi: Í fréttum RÚV sjónvarps las fréttaþulur (22.12.20009) eins og rétt mál væri að bíða milli ótta og vonar. Ekki venjubundið orðalag. Við tölum um að bíða milli vonar og ótta. Þetta var hinsvegar rétt í skjátexta. Því er svo við að bæta að í fréttum RUV síðustu tvö dægur hefur ítrekað …


