Category Archive: Skrifað og skrafað

Molar um málfar og miðla 224

21.12.2009 | 13:10    Molaskrifari gerir lítið af því að taka texta af fésbókinni og viðra hér. Þessa setningu stóðst hann ekki: Með miklu áti er undirbúið sig fyrir heljarinnar snjóstorm sem er á leiðinni í borgina. Ótrúlega eru þeir margir, sem halda að orðið snjóstormur sé íslenska. Svo er ekki. Þetta er aulaþýðing úr …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 223

  Úr kvöldfréttum RÚV sjónvarps (18.12.2009) : Þá er bent á að leiðbeinendur námskeiðsins… Það er sem sé verið að leiðbeina námskeiðinu!  Eðlilegra hefði verið að segja: Leiðbeinendur sem kenna á námskeiðinu…  Garðapósturinn flytur okkur Garðbæingum margvíslegan fróðleik. En menn þurfa á þeim bæ að vanda málfarið svo við hnjótum ekki um setningar eins og …

Lesa meira »

Fjölmiðlarugl !

Fjölmiðlabull um Ögmund Jónasson

Molar um málfar og miðla 221

Í DV (16.12.2009) er tekið svo til orða að ,feitt bragð sé af kjötinu“. Hér þætti Molaskrifara eðlilegra að segja að fitubragð sé að kjötinu, því bragð er að þá barnið finnur, eins og þar stendur. Í sama blaði er talað um að svör við spurningum blaðamanns hafi verið fáfengileg. Molaskrifari er þeirrar skoðunar , …

Lesa meira »

Að verðleikum

Edda Heiðrún í heiðurslaunaflokk

Molar um málfar og miðla 219

Athugasemdir við málfar í fjölmiðlum 13.12.2009

Mogganum sagt upp

Sendi áskriftadeild svohljóðandi tölvupóst. Hér með segi ég upp áskrift minni að Morgunblaðinu frá og með næstu mánaðamótum. Ástæðurnar eru einkum tvær: 1.Búið er að breyta blaðinu úr fréttablaði í ómerkilega málpípu öfgaflanna í Sjálfstæðisflokknum. Fréttaflutningi blaðsins er ekki lengur treystandi. 2. Hin ástæðan eru sóðagreinar Sverris Stormskers sem eru langt fyrir utan og neðan …

Lesa meira »

Sóða-Moggi slær öll met

Grein Sverris Stormskers á bls. 34 í Morgunblaðinu í dag, laugardaginn 12. desember 2009, er eitthvað það sóðalegasta sem lengi hefur sést á prenti. Morgunblaðið er komið niður fyrir gamla Þjóðviljann, þegar hann lagðist sem lægst. Hafa ritstjórar blaðsins alls enga sómatilfinningu ? Þetta er nýtt met í sóðaskap í íslenskri blaðamennsku. Það er ekki …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 218

Málglöggur vinur benti Molaskrifara á orðalag, sem stundum heyrist í útvarpi, en þá er sagt að klukkan sé tíu mínútur eða fjórðung gengin í miðnætti. Molaskrifari er vini sínum sammála um að svona eigi ekki að taka til orða. Hvað er að því að segja að klukkan sé tíu mínútur eða  fimmtán mínútur gengin í tólf …

Lesa meira »

Þjóðaratkvæði í Bretlandi og Hollandi ?

Icesave samningurinn er milliríkjasamningur. Ekki er   venja að  þjóðaratkvæðagreiðsla  fari fram um slíka  samninga. En verði það úr,  er þá ekki eðlilegt að Hollendingar og  Bretar  hafi einnig  þjóðaratkvæðagreiðslur  um  Icesave svo  fyllsta jafnræðis sé gætt?

Older posts «

» Newer posts