Sumum finnst líklega smásmugulegt að finna að því að áttafréttir RÚV (08.12.2009) hófust á orðunum: Stjórn og stjórnarandstaða kom sér saman um… Þarna komu tveir aðilar sér saman, gerðu samkomulag. Því átti að segja : Stjórn og stjórnarandstaða komu sér saman. Mogginn í morgun ( 08.12.2009) minnti mig á bernsku mína. Hann var svo þunnur. …
Category Archive: Skrifað og skrafað
Molar um málfar og miðla 212
Eftirfarandi línur eru frá Bjarna Sigtryggssyni, fyrrum fréttamanni og áhugamanni um fjölmiðlun og íslenska tungu : „Þar sem margt fjölmiðlafólk fylgist vonandi með pistlum þínum langar mig að biðja þig að vekja athygli á því að framundan er í Kaupmannahöfn Aðildarríkjaþing Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, en ekki loftslagsráðstefna, eins og nær allir fjölmiðlar hafa haldið fram …


