Molar um málfar og miðla 575

Líklega þarf svolítinn tíma  til að venjast veðurfréttum Ríkissjónvarpsins í  nýjum búningi. Flest er þó þar til bóta, mest  það sem  Molaskrifari hefur  oft  beðið um, –  að fá að  sjá  til veðurs í vesturheimi.  Takk fyrir það.  En ágætu   sjónvarpsmenn,  hlífið okkur við þessum iðandi, órólega  bakgrunni fréttalesara. Hann er algjörlega óþolandi. Því fyrr …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 574

    Molaskrifari  hnaut um  fyrirsögn í   Viðskiptablaði Morgunblaðsins (31.03.2011): Þjóðnýting eigna er eins og að missa þvag í skó.  Íslenskt orðtak segir: Það er skammgóður vermir að pissa í  skóinn sinn.  Þegar penpíuhátturinn er svo mikill að talað  er um  að missa þvag í stað þess að pissa,  er   langt gengið. Þar að auki er …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 573

  Fljótt á  litið virðist  andlitslyfting sjónvarpsfrétta Ríkisútvarpsins hafa tekist  bærilega, – nema iðandi  og órólegur  veggur bak við  fréttaþul   truflar og er pirrandi. Dregur athyglina  frá því sem verið er að segja.  Því ætti að breyta sem fyrst. Veðurfregnir hafa líka fengið nýjan svip. Gaman hefði verið að sjá  til veðurs í vesturheimi, en  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 572

   Nokkrum sinnum hefur það verið  nefnt í þessum  Molum að  Ríkissjónvarpið sýnir   viðaskiptavinum sýnum dónaskap, þegar   kynntur  er   þátturinn Í  návígi og þess látið rækilega ógetið  við hvern á  að  ræða hvað. Hvaða  tilgangi þjónar það að segja okkur ekki við hvern á að  ræða?   Í besta falli er þetta  bjánalegt. Þetta er  örugglega …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 571

  Skrifað er á mbl.is (29.03.2011): Danski varnarmaðurinn Mikkel Christoffersen, sem var til reynslu hjá karlaliði KR í knattspyrnu, verður ekki boðinn samningur við félagið.  Danski varnarmaðurinn verður ekki boðinn samningur! Hér átti  auðvitað  að standa: Danska varnarmanninum… verður ekki boðinn samningur. Það er  eins og sumir haldi að allar setningar þurfi að hefjast í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 570

Úr mbl.is  fyrir fáeinum dögum: Flugumferðarstjórinn, sem hefur 20 ára starfsreynslu, hefur verið leystur undan störfum á meðan rannsókn fer fram.  Það er hægt að leysa menn frá  störfum, en  það samræmist ekki góðri málvenju að tala um að leysa menn undan störfum.  Í sömu frétt segir  að flugumferðarstjórinn hafi verið einn í flugturninum á …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 569

Og voru heimamenn meira og minna með  boltann, sagði íþróttafréttamaður  Ríkisútvarpsins (27.03.2011). Molaskrifari velkist svolítið i vafa um það hvað þetta merkir.  Í sama fréttatíma var fjallað um útflutning á æðardúni og  tekið svo til orða  að æðardúnninn hefði verið fluttur af landi brott. Ekki er þetta  nú beinlínis  rangt, en ekki  er oft  tekið …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 568

   Molaskrifari stóðst ekki mátið og sendi stutt tölvubréf í  sunnudagsþátt Sirrýjar á  Rás  tvö (27.03.2011)  þar sem útvarpsstjóri  og dagskrárstjóri sátu fyrir svörum. Vel var tekið í ábendingu  um að orðin tax free í fjölmörgum auglýsingumværu ekki lýtalaus íslenska. Hinsvegar voru  bæði útvarpsstjóri  og dagskrárstjóri mjög ánægð  með  enskuskotið leikaraslúður um misfræga leikara  sem …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 567

Morgunblaðið  birti fyrst fjölmiðla (26.03.2011) frétt  um  tilraun til að smygla til landsins  miklu magni  eiturlyfja. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins sama dag var sagt frá þessu  og þess getið í framhjáhlaupi, að komið hefði fram í Morgunblaðinu, að fólkið sem að  smyglinu stóð væri íslenskt. Þetta var ómerkilegt hjá  fréttastofu Ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið hefði átt  unna Morgunblaðinu …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 566

Í fréttum Stöðvar tvö (24.03.2011) var sagt: .. frumvarpið var síðasta leið ríkisstjórnarinnar til að …. Betra hefði verið:  Frumvarpið var   lokatilraun  (úrslitatilraun)  ríkisstjórnarinnar til að …. Rúmlega ellefu og hálf milljón króna voru úthlutaðar til  sex verkefna. Þetta er  af fréttavef  Ríkisútvarpsins (23.03.2011) Hér hefði átt að standa: Rúmlega ellefu og hálfri milljón króna …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts