Í grein í DV er skýrt frá því (23.03.2011) að gjaldþrot Seðlabankans sé fimmfalt Icesave. Beinhörð útgjöld vegna gjaldþrots Seðlabankans hafi numið 175 milljörðum króna og gjaldþrot Seðlabanks kosti hvert einasta mannsbarn á Íslandi 650 þúsund krónur. Enn fremur segir í greininni, að kostnaðurinn við Icesave sé 6% af kostnaði skattgreiðenda vegna falls bankanna. Morgunblaðið, …
Molar um málfar og miðla 564
Úr dv.is (22.03.2011): En nú sé staðan sú að fiskur sé orðinn svo dýr að samtökin hafa ekki fjármagn til að kaupa þennan mikilvæga fæðuhóp fyrir skjólstæðinga sína…. Nú er fiskur sem sagt orðinn fæðuhópur. Molaskrifari viðurkennir, að orðið fæðuhópur hefur hann aldrei heyrt áður og hallast að því að það sé bara rugl. Bandarísk …
Molar um málfar og miðla 563
Undarleg fjögurra dálka fyrirsögn er á forsíðu Morgunblaðsins í dag (22.03.2011): Rekin úr nefndum. Átt er við þau Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslason,sem sagt hafa sig úr þingflokki VG á Alþingi. Það leiðir af sjálfu þegar þau Lilja og Atli segja sig úr þingflokki VG geta þau ekki lengur verið fulltrúar þingflokksins í nefndum þingsins. …
Molar um málfar og miðla 562
Í fjögurfréttum Ríkisútvarpsins (20.03.2011) var sagt frá styrkjum úr hönnunarsjóðum. Þá las þulur: Styrkþegar segja færri og stærri styrkir skila meiri árangri en margir smærri. Þarna hefði orðið styrkir átt að vera í þolfalli. Styrkþegar segja færri og stærri styrki skila meiri árangri en…. Í þessari sömu frétt talaði fréttamaður um að sjóður hefði veitt …
Molar um málfar og miðla 561
Varpa sprengjum á vígvélar hersins, er vel orðuð fyrirsögn á fréttavef Ríkisútvarpsins (19.03.2011). Líka var þar ágætlega sagt , að Loftvarnir Líbíu væru mjög laskaðar (20.03.2011) Í fréttum af náttúruhamförunum miklu í Japan hafa sumir fjölmiðlar ítrekað talað um mannfall. Í þessum tilvikum hefði Molaskrifara þótt eðlilegra að tala um manntjón, – ekki mannfall. Varðandi fréttir frá …
Molar um málfar og miðla 560
Það hefur orðið svolítið hlé á Molaskrifum og kemur þar einkum tvennt til. Skipt var um innvols í tölvu skrifara og um skeið var þar allt á tjá og tundri, en komst í lag með góðra mann hjálp hérlendir os erlendis. Þá bættist það við að vegna annarra verka og áhugamála fóru fréttatímar að mestu …
Óheiðarleg fjölmiðlun
Það er óheiðarleg fjölmiðlun, þegar fjölmiðill vísvitandi gefur rangar upplýsingar, segir rangt frá eða segir aðeins frá því sem fjölmiðillinn telur henta sínum málstað. Þeir sem hlusta á útvarp Sögu kannast við þetta. Það er hinsvegar nýtt að Morgunblaðið skuli nú vera orðið óheiðarlegur fjölmiðill. Ýmist þegir það yfir staðreyndum , sem koma skoðunum stjórnenda blaðsins …
Molar um málfar og miðla 559
Dyggur lesandi og velunnari Molanna sendi eftirfarandi: Núna á allra síðustu árum, jafnvel misserum, að því er mér virðist, hefur það færst í vöxt í fjölmiðlum, einkum þó vefmiðlum, að notað sé nefnifall þegar annað fall ætti að vera samkvæmt framhaldinu. Þetta er orðið svo algengt, að helst virðist mér þetta vera annað hvort ný stefna í …
Molar um málfar og miðla 558
Fyrirtækið Iceland Express fer mikinn í auglýsingum í sjónvarpi og lætur sem það sé flugfélag. Iceland Express er ekki flugfélag, það hefur ekki flugrekstrarleyfi og það er ekki heldur ferðaskrifstofa. Fyrirtækið er skrásett hjá Ferðamálastofu sem „ferðaskipuleggjandi“. Það er ekki á skrá yfir ferðaskrifstofur hjá Ferðamálastofu. Það er heldur ekki á skrá Flugmálastjórnar Íslands yfir þá aðila sem …
Molar um málfar og miðla 557
Hér hefur oftlega verið vikið að mikilvægi þess að þulir og fréttamenn hlusti á það sem þeir lesa. Ekki er síður mikilvægt, að fréttamenn og þáttastjórnendur hlusti á það sem viðmælendur þeirra hafa fram að færa. Í morgunþætti Rásar tvö (15.03.2011) var rætt við Ágúst Valfells kjarnorkuverkfræðing um hættuástandið í kjarnorkuverinu í Fukushima. Ágúst sagði …