Molar um málfar og miðla 556

  Sitthvað hefði mátt betur fara  í fréttatíma Stöðvar tvö á laugardagskvöld (12.03.2011).  Í fréttum af náttúruhamförunum í Japan   talaði fréttamaður um Íslendinga,sem Betra hefði verið að tala um íslendinga  sem dveldust í landinu.  Sögnin  að valda veldur  mörgum fréttamönnum erfiðleikum. Í þessum fréttatíma sagði fréttamaður: … Hér hefði  auðvitað átt að segja. … sem …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 555

    Eftirfarandi er úr nýrri samþykkt Búnaðarþings: :„Búnaðarþing telur að fæðuöryggi þjóðarinnar verði því aðeins tryggt að fullu með því að Ísland standi utan sambandsins“.  Sambandið sem hér er talað um er auðvitað Evrópusambandið,ESB. Þessi fullyrðing  er  hinsvegar svo gjörsamlega sambandslaus  við veruleikann og almenna, heilbrigða  skynsemi  og svo utangátta að með ólíkindum er.  Meira …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 554

Í fréttum Ríkissjónvarps (09.03.2011) sagði fréttamaður: … ekki að taka á innflytjendum neinum vettlingatökum.  Molaskrifari hefði kunnað því betur, ef  fréttamaður hefði sagt: … ekki taka innflytjendur neinum vettlingatökum.   Það var gott framtak hjá Ríkissjónvarpinu að sýna okkur útsendingu japanska sjónvarpsins NHK  frá hinum hrikalegu  hamförum,sem gengið hafa yfir  Japan.   Í tengslum við handtökur  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 553

 Íþróttafréttamaður  Ríkisútvarps , sagði í sjónvarpsfréttum (08.03.2011) : .. segir að stjórn Bayern bíði erfitt hlutverk. Fréttamaðurinn hefði átt að  segja: … segir að stjórnar Bayern bíði  erfitt hlutverk.  Í Útvarpi Sögu var rætt við mann,sem þýtt hefur bók um mannsheilann. Hann ræddi þróun mannsins og  sagði:  Og  svo kemst maðurinn  á tvær fætur !. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 552

  Molaskrifari spáði því í gær í  Fésbókarfærslu (09.03.2011), að  fréttin um Gallup-könnun ,sem sýndi 63% stuðning við Icesave  yrði eindálkur neðst á áttundu síðu í Mogganum í dag (10.03.2011). Ekki fjarri lagi. Fréttin er  á áttundu síðu, neðst, tvídálkur   (6sm). Mogginn bregst ekki.  Faglegt fréttamat fyrirfinnst ekki í Hádegismóum. Nú er aðalmálið í leiðara blaðsins, ekki efni Icesave …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 551

  Úr frétt á  fréttavefnum visir.is (08.03.2011): Það mun hafa verið í kringum 1970 að starfsmenn Rafveitu Akureyrar endurváku þann gamla sið að slá köttinn úr tunnunni. Hér er ekki verið að grínast. Þetta er orðrétt tilvitnun. Ótrúlegt. Glöggur lesandi benti Molaskrifara á þetta. Takk fyrir ábendinguna.  Vísismenn  þurfa að vanda betur valið á þeim, …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 550

Tvær furðulegar villur voru í fréttum Ríkisútvarps í morgun (08.03.2011). Í sjö fréttum var sagt frá innbroti í fyrirtæki og  sagt að lögreglan hefði getað rekið slóð þjófsins. Lögreglan gat rakið slóð þjófsins í nýsnævinu. Eitt er að reka, annað að rekja og  ætti  raunar ekki að þurfa að eyða mörgum orðum í að útskýra …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 549

Í skjáauglýsingum Ríkissjónvarpsins  (06.03.2011) voru auglýstir tónleikar Sigrúnar Eðvaldsdóttur og  félögum. Þetta er enn eitt  dæmi um slæleg vinnubrögð  auglýsingadeildar Ríkisútvarpsins.  Þar    virðist þeim hafa farið ört  fækkandi, sem  eru vel að sér í  íslensku.  Skylt er að geta þess að þulur las  setninguna rétt.  Stundum leiðrétta þulir  auglýsingatexta. Nýlega  var  sagt að   endurvinnslustöðvar Sorpu opnuðu …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 548

    Íþróttafréttamaður Stöðvar tvö  talaði  á laugardagskvöld (05.03.2011) um lið ,sem  hefðu barist á banaspjótum. Það er ekkert til í íslensku máli, sem  heitir að berjast á á banaspjótum. Rétt er  orðtakið  að berast  á  banaspjót/(banaspjótum), og þýðir að eigast  mjög illt  við, vega hver  annan ( þegar um hópa er að ræða) eins og  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 547

Dæmi um staðreyndabrengl í  fréttum mbl.is (04.03.2011): …sem kjörnir voru í stjórnlagaþingskosningunum sem dæmdar voru ólöglegar af Hæstarétti.  Hæstiréttur  dæmdi engar kosningar  ólöglegar. Hæstiréttur  úrskurðaði að kosningarnar væru ógildar. Það ætti að vera hægt að treysta því  að  Morgunblaðið fari rétt með svona  einfalda hluti.  Úr mbl.is (03.03.2011):„Við höfum fengið ábendingar um að Bob sé haldið …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts