Orðskrípið áhafnarmeðlimur lifir góðu lífi og dafnar í Efstaleitinu. Það kom við sögu í sexfréttum Ríkisútvarpsins (10.02.2011). Þar hafa menn orðið skipverji ekki á takteinum. Þegar fjallað er um málefni Sparisjóðsins Byrs er það nánast undantekning að nafn sjóðsins sé beygt. Eignarfall et. af byr getur verið bæði byrjar og byrs. Nafnið á auðvitað að …
Molar um málfar og miðla 528
Margir fréttaskrifarar eiga í erfiðleikum með áhrifssagnir. Þetta dæmi er af pressan.is (10.002.2011) Krabbameinssamtök í Danmörku vilja útrýma með öllu reykingar á vinnustöðum, … Samtökin vilja útrýma reykingum, ekki reykingar eins og pressupenninn skrifar. Villandi myndskreyting var í upphafi frétta Stöðvar tvö (09.02.2011), þegar birt var mynd af þotum Icelandair í Keflavík með frétt …
Molar um málfar og miðla 527
Í íþróttafréttum Ríkissjónvarps (08.02.2011) var talað um að brúa mun. Málvenja er að tala um að brúa bil. Bilin á að brúa, heitir ævisaga Halldórs E. Sigurðssonar fv. þingmanns og ráðherra. Það var ónákvæmt orðalag hjá Agli Helgasyni í Kiljunni að blaðamaður Guardian hefði verið rekinn frá Rússlandi. Hið rétta er , að Luke Harding …
Molar um málfar og miðla 526
Sumir hafa tamið sér að setja hikorð inn í næstum hverja setningu. Algeng hikorð eru, hérna, sko, þú veist,svo aðeins þrjú dæmi séu nefnd. Heldur er þetta hvimleitt fyrir þann sem hlustar. Í morgunútvarpi (08.02.2011) heyrði Molaskrifari til konu, sem sagði þú veist í hverri setningu og stundum oftar en einu sinni. Sennilega veit hún …
Molar um málfar og miðla 525
Dómgreindarleysi hjá fréttastofu Ríkisútvarpsins að taka alvarlega marklaust blaður Samfylkingarþingmanns í Silfri Egils um að hann sé reiðubúinn að mynda nýja ríkisstjórn! Þetta þótti fréttnæmt í sexfréttum (06.02.2011). Einstakir þingmenn hafa ekkert umboð til stjórnarmyndunar, ekki einu sinni í Silfri Egils. Góður Landi í Ríkissjónvarpinu á sunnudagskvöld (06.02.2011). Prýðilegur var þáttur þeirra Ara Trausta …
Molar um málfar og miðla 524
Það er lofsvert hve vel fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur gengið fram í því að upplýsa glæpsamlegt framferði ýmissa forráðamanna og stjórnenda sparisjóða. Hrós fyrir það. Framferði og sjálftaka þessara manna kostar skattgreiðendur milljarða. Á hverjum degi erum við upplýst betur og betur um framferði þessara hvítflibbaþjófa. Furðulegt að þeir skuli enn ganga lausir. Sparisjóðurinn Byr fékk …
Viskíið flýtur
Þegar ég hafði lokið við fylgjast með Barnaby lögregluforingja leysa flókna morðgátu (honum tekst það alltaf !) í danska sjónvarpinu í gærkveldi (05.02.2011) kíkti ég á BBC One. Svona til að fullnægja fréttafíkninni fyrir svefninn. Allt sat við sama í Egyptalandi. Við hliðina á BBC One á skjálistanum er BBC Alba, þ.e BBC Skotland. Alba er …
Molar um málfar og miðla 523
Rás eitt er eina réttlætingin fyrir tilvist Ríkisútvarpsins, eftir að Ríkissjónvarpinu var breytt í vídéóleigu og íþróttarás. Á Rás eitt er margt prýðilegt að finna bæði í tónum og töluðu máli. Fjölmargir vandaðir þættir eru þar á boðstólum. Að morgni laugardags (05.02.2011) hlustaði Molaskrifari á tímabæran og fróðlegan , endurtekinn, Víðsjárþátt um Egyptaland. Ódulbúið …
Ungir píanósnillingar í Texas
Virtasta tónlistarkeppni ungra píanóleikara í veröldinni er áreiðanlega Van Cliburn keppnin, sem fram fer fjórða hvert ár í Fort Worth í Texas. Keppnin er kennd við bandaríska píanóleikarann Van Cliburn (74) sem bar sigur úr býtum í Tsjækovskí- einleikarakeppninni í Moskvu 1958. Þar lék hann píanókonsert Tsjækovskís nr. eitt og Rakmaninoff konsert. Hann varð þjóðhetja í …
Molar um málfar og miðla 522
Enn eitt dæmið um villandi fréttaflutning Morgunblaðsins var á mbl.is (05.02.2011). Þar sagði í myndatexta: Vilja þjóðaratkvæði. Yfir var mynd af þeim Bjarna Benediktssyni og Kristjáni Þór Júlíussyni þar sem þeir héldust í hendur og fögnuðu sigri. Í fréttinni kom fram, að Kristján Þór var fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu en Bjarni Benediktsson vildi ekki útiloka þjóðaratkvæðagreiðslu. Hálfsannleikur. …