Ferðaþjónustan fullsödd af dýrum mat , er fín forsíðufyrirsögn í Fréttablaðinu (004.02.2011). Molaskrifari las það einhversstaðar, að vefurinn ring.is hafi verið tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna. Það þykir Molaskrifara skrítið. Orðið ring er nefnilega ekki íslenska heldur enska. Það er ekkert til ,sem heitir um tuttugu og níu manns eins og sagt var í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (03.02.2011). Tuttugu og níu …
Að deila við dómarann
Á einveldistímanum mátti ekki gagnrýna einvaldinn, orð hans eða gjörðir. Það sama hefur líklega gilt um dómstólana ,sem voru í vasa einvaldsins. Nú á tuttugustu og fyrstu öldinni ætlar mætasta fólk af göflum að ganga, ef einhver leyfir sér að gagnrýna þá niðurstöðu Hæstaréttar að ógilda kosninguna til Stjórnlagaþings, – kosningu sem mörgum á …
Molar um málfar og miðla 520
Það er alvarlegt áfall fyrir trúverðugleika Morgunblaðsins,sem fréttamiðils, að uppsláttur blaðsins (31.01.2011) um að blaðamaður DV hafi stöðu grunaðs manns í tilteknu málu skuli hafa verið uppspuni. Það tekur langan tíma fyrir fjölmiðla að endurvinna traust, þegar þeir bregðast trausti lesenda sinna. Merkilegt fréttamat hjá Fréttastofu Ríkisútvarpsins, að það skuli vera fréttaefni, að tiltekinn blaðamaður …
Molar um málfar og miðla 519
Góðvinur Mola, Bjarni Sigtryggsson, benti á eftirfarandi á dv.is (31.01.2011) Frá janúarbyrjun ársins 2002 og til nóvemberloka árið 2010 ullu ökumenn sem voru sjúkir, þreyttir eða undir áhrifum löglegra lyfja 30 banaslysum og 69 alvarlegum slysum. ….Það ár ullu ökumenn í þessum hópi alls 152 slysum. Sá sem skrifaði þessa frétt má eiga það …
Árás Morgunblaðsins
Enn ræðst Morgunblaðið að embættismönnum utanríkisþjónustunnar í nafnlausum leiðara. Enn færir blaðið í málflutningi sig nær hinu gamla málgagni íslenskra kommúnista , Þjóðviljanum , þegar hann var sem verstur. Morgunblaðið beinir í dag spjótum sínum að Stefáni Hauki Jóhannessyni aðalsamningamanni Íslands í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið og leiðarahöfundur beitir orðbragði götustráks. Gamli Þjóðviljinn uppnefndi líka þá …
Molar um málfar og miðla 518
Þættir Jónasar Sen , Átta raddir, eru skrautfjöður í annars heldur fátæklegum hatti Ríkissjónvarpsins. Þar á bæ virðast menn aðeins að vakna til vitundar um að til er annars konar tónlist en dægurtónlist því fyrr um daginn (30.01.2011) var sýndur erlendur þáttur með efni úr óperum frá 2010. Gott mál. Handboltalega séð … varnarlega sterkir. (Handboltaþáttur …
Molar um málfar og miðla 517
Hinum berfættu í Afríku vantar ekki háhælaða skó. (blog.is 29.01.2011). Þágufallssýkin er þrálát. Fagmennska björgunarsveitarmanna, sem fundu Þjóðverjann á Eyjafjallajökli , vekur aðdáun. Þar var svo sannarlega vel að verki staðið. Vaskir menn og vel útbúnir. Mikil þjálfun og góður búnaður voru forsenda þessa góða árangurs. Þetta minnir okkur á að standa þétt við bakið á björgunarsveitunum, þegar …
Molar um málfar og miðla 516
Úr mbl.is ( 28.01.2011): Innanríkisráðherra Egyptalands varar við að „markvissum aðgerðum“ verði beitt á mótmælum, sem fyrirhuguð eru eftir föstudagsbænir í dag. Að beita aðgerðum á mótmælum er ekki gott orðalag. betra væri gegn mótmælum, eða gegn mótmælendum sem hefðu sig í frammi…. Ríkissjónvarpið bauð okkur viðskiptavinum sínum að horfa á tvær kvikmyndir í …
Molar um málfar og miðla 515
Alþingi hefur nú kjörið Ríkisútvarpinu nýja fimm manna stjórn til fjögurra ára. Allt eru það valinkunnir einstaklingar,sem örugglega hafa víðtæka þekkingu reynslu af öllu sem snertir útvarp og sjónvarp. Annars hefðu þau varla verið kosin. Eða hvað? Á fréttavef Ríkisútvarpsins segir í fyrirsögn (25.01.2011): Aldrei fleiri fengið bók í gjöf. Molaskrifari hefði orðað þetta á annan …
Molar um málfar og miðla 514
Morgunblaðið fetar dyggilega í fótspor gamla kommúnistablaðsins, Þjóðviljans. Minnisstætt er að Þjóðviljinn leitaðist jafnan við að birta sem verstar og hallærislegastar myndir af pólitískum andstæðingum sínum. Einkum Bjarna Benediktssyni og í nokkrum mæli Jóhanni Hafstein. Nú leikur Moggi þennan sama leik gagnvart Jóhönnu Sigurðardóttur. Svona gera pólitískir sneplar, ekki alvöru dagblöð. Athygli vekur (27.01.2011) að …