Batnandi fólki er best að lifa. Seinni fréttum Ríkissjónvarps seinkaði um 12 mínútur í gærkveldi. Tilkynning var sett á skjáinn um klukkan tíu um seinkunina og Bogi ,sem las fréttirnar, baðst afsökunar á seinkuninni. Gott mál. Vonandi verður haldið áfram að sýna áhorfendum þá kurteisi að tilkynna og biðjast afsökunar, þegar dagskrá fer úr skorðum. Hinsvegar …
Molar um málfar og miðla 512
Úr mbl.is (24.01.2011): Þurrkurinn fer illa með uppskerur, s.s. hveitiuppskeruna, ….Þrátt fyrir mikinn þurrk þá er einnig mjög kalt í landinu. Við austurströnd landsins hefur ís truflað skipasamgöngur. Stærri skip hafa neyðst til þess að hægja á sér og þau minni komast ekki af stað. Ekki er eðlilegt að tala um uppskerur í fleirtölu í þessu …
Molar um málfar og miðla 511
Prýðilegur þáttur í röð Ríkissjónvarpsins „Átta raddir“ um Bjarna Thor Kristinsson. En hvenær skyldi koma að því að þáttur í kvölddagskrá Ríkissjónvarpsins hefjist á réttum tíma? Líklega er Ríkisjsónvarpið óstundvísasta sjónvarpsstöð norðan Alpafjalla, eins og þar stendur. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (22.01.2011) var talað um óeirðarlögreglu. Eðlilegra hefði verið að tala um óeirðalögreglu. Meira um hádegisfréttir: Í …
Molar um málfar og miðla 510
„Væntanlega liggur útskýringin í sögunni,“ segir Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri Seðlabankans,(visir.is 21.01.2011). Ritstjóri Seðlabankans er líklega ný staða í bankanum. Var hún kannski sett á laggirnar eftir að fyrrum seðlabankastjóri gerðist ritstjóri Morgunblaðsins ? Góður pistill um Sjóvárránið í fréttum Ríkissjónvarpsins (21.01.2011). Það er með ólíkindum að þjófarnir skuli enn ganga lausir. Ríkissjónvarpið gerði stofnfjáreigendadómum …
Molar um málfar og miðla 509
visir.is segir í fyrirsögn ( og texta 21.012011): Heildarverðmæti skulda og hlutafjárs í samkomulagi Landsbankans og .. Orðið fé beygist: fé, fé, fé, fjár. Ekki eru allar ferðir til fjár, þótt farnar séu, segir gamalt máltæki. Þegar Ríkissjónvarpið (20.01.2011) sagði frá geitabúskap í Mývatnssveit heyrði Molaskrifari ekki betur en fréttamaður segði, að geitastofninn hefði á …
Molar um málfar og miðla 508
Ósköp er það hallærislegt, þegar Stöð tvö sýnir hálfan handboltaleik (20.001.2011) í opinni útsendingu, en svo kemur lok, lok og læs í hálfleik. Miklu skárra að loka á allan leikinn. Sýna hann allan læstan eins og Stöð tvö hefur fullan rétt til. En þegar maður les það sem Anna Kristine Magnúsdóttir skrifar um framkomu Stöðvar …
Molar um málfar og miðla 507
Auglýsingabæklingur frá nýrri verslun,sem kallar sig DOMTI (líklega útibú frá erlendri verslanakeðju) kom með dagblöðunum til Molaskrifara í morgun (19.01.2011). Þar stendur á forsíðu: Þín innkaup á einstöku verði. Það er eins og maður, sem ekki er mæltur á íslensku, hafi samið þetta. En því miður er svona eða svipað orðalag ekkert einsdæmi. Brengluð orðaröð …
Molar um málfar og miðla 506
Úr mbl.is (18.01.2011) … í máli ákæruvaldsins á hendur níu einstaklingum sem m.a. gefið að sök árás á Alþingi 8. desember 2008. Ekki er þetta nú alveg í lagi. Betra hefði verið að segja að þessum einstaklingum væri gefið að sök að hafa ráðist að, eða á, Alþingi. Meira úr mbl.is (18.01.2011): Ökumaður missti …
Molar um málfar og miðla 505
300 tonna byggðakvóti fýsir, segir í fyrirsögn á mbl.is (18.01.2011). Molaskrifari þykist vita, að átt sé við, að 300 tonna byggðakvóti freisti eða sé freistandi, en aldrei hefur hann heyrt eða séð sögnina að fýsa notaða með þessum hætti. Algengast er: Mig fýsir, – mig langar. Orðið tafarlaust kom fyrir í frétt í Ríkissjónvarpinu …
Molar um málfar og miðla 504
Enginn má við mörgum, heitir þáttur sem Ríkisútvarpið sýndi á laugardagskvöldið var (15.01.2011). Orðtakið er: Enginn má við margnum og Ríkisútvarpið á ekkert með að breyta því. Úr fréttum Ríkisútvarps (15.01.2011 )…. tíu mínútum síðar barst tilkynning um annað slys, ótengdu hinu fyrra. Ekki var þetta vel að orði komist. Úr mbl.is (15.01.2011): Raunar …