Í fréttatíma Stöðvar tvö (05.01.2011) var sagt frá verðbreytingum á bílum, – verðlækkun á lúxusjeppum. Þá spara ég mest á að versla Porsche-inn, sagði fréttamaður. Versla Porsche-inn !Hvílíkt endemisbull. Kaupa Porsche-inn átti hann við. Í sexfréttum Ríkisútvarps var sagt frá lýsingu í Hvalfjarðargöngunum. Fréttamaður sagði um lýsinguna: … þó þurfi að bæta úr henni …
Molar um málfar og miðla 492
Orðið jarðlest ,sem nú er oft notað um farartækin sem einu sinni voru kölluð neðanjarðarlestir, er fínt orð. Kemur í stað orðs sem var bæði langt og óþjált. Jarðlestarstöð er hundrað sinnum betra en neðanjarðarlestarstöð. Gaman væri að vita hvaða orðhagi maður bjó til orðið jarðlest. Rétt er að vekja athygli þeirra sem semja …
Molar um málfar og miðla 490
Fjarskiptafyrirtækið Síminn hefur ekki mikið álit á eldri kynslóðinni, öfum og ömmum. í auglýsingu frá Símanum eru auglýstar ýmsar gerðir símtækja: Allt frá afasímum til snjallsíma. Merkingin er: Allt frá hinu sára einfalda til hins flókna og fullkomna. Snjallsímar eru sem sagt ekki fyrir afa. Þeir ráða líklega ekki við að nota þá. Neðst í auglýsingunni …
Molar um málfar og miðla 491
Molaskrifari óskar lesendum gleðilegs og gæfuríks árs og þakkar ánægjuleg samskipti á liðnu ári. Þótt ekki hafi verið skrifaðir Molar frá því fyrir jól, er ekki þar með sagt að skrifari hafi hætt að lesa eða hlusta! Verður því hér á næstunni vikið að ýmsu sem fyrir augu og eyru bar í kring um …
Molar um málfar og miðla 489
Ríkisútvarpið á áttræðisafmæli í dag, 20. desember. Það var merkur áfangi í þjóðlífinu, þegar Ríkisútvarpið tók til starfa, en einstaklingar höfðu þá rekið útvarp um nokkurt skeið. Annar merkur áfangi var upphaf sjónvarps 30. september 1966. Margt hefur vel tekist hjá þessari þjóðarstofnun. Í fórum hennar eru ómetanleg verðmæti um sögu og menningu þjóðarinnar. Ríkisútvarpið varðveitir mikilvægan hluta menningararfs …
Molar um málfar og miðla 488
Í fréttum af óveðrinu,sem gekk yfir landið (17.12.2010) var ágætlega orðað í Ríkisútvarpinu að björgunarsveitarmenn og lögreglumenn hefðu haft í mörg horn að líta og staðið í ströngu. Morgunblaðið sagði ágætlega í forsíðufyrirsögn: Óveður gerði víða usla. Hinsvegar var það ekki vel orðað, þegar fréttamaður Ríkisútvarpsins sagði: Áætlunarferðir sem lögðu af stað frá Reykjavík til Akureyrar… Ferðir leggja …
Molar um málfar og miðla 487
Ekki sakar að geta þess í aðdraganda jólanna að orðið jól er fleirtöluorð. Þessvegna tölum við ekki um þrjú jól, eins og nýlega heyrðist í sjónvarpi. Við tölum um þrenn jól, fern jól. Leppi er fyrir annað augað, segir í myndatexta í Morgunblaðinu (18.12.2010). Ekki þekkir Molaskrifari orðið leppi í merkingunni leppur fyrir auga. Leppur …
Molar um málfar og miðla 486
Upp til hópa eru þingmenn bara svín bara svín við trog. Mokum öllu þessi ógeði á haugana , skrifar Jónas Kristjánsson (16.12.2010). Gallinn við þessa hugmynd er sá að í staðinn kæmu að öllum líkindum önnur svín og ekki sjálfgefið að þau yrðu betri. Bandaríkjamenn nota orðið pork (svínakjöt) um pólitíska kjósendagreiða, greiðslur eða störf og …
Molar um málfar og miðla 485
Eitthvað munu Molaskrif strjálast um sinn í aðdraganda jóla. Jólin eru líklega hætt að ganga í garð. Heldur bresta þau á. Svo tók sá ágæti Egill Helgason til orða í lok Kiljunnar (15.12.2010) Sagði forsetinn ósatt? Úr Morgunblaðinu (11.12.2010): „Samskiptin voru þó ekki nánari en svo að Jóhanna frétti ekki af niðurstöðu forseta fyrr en hann kynnti …
Molar um málfar og miðla 484
Höskuldur Þráinsson, prófessor, sendi Molaskrifara á dögunum svolitla ádrepu í athugasemdum við færslu nr. 471 á blog.is. Molaskrifari birtir athugasemd Höskuldar hér þar sem fleiri sjá hana en á blog.is: Mig langar að gera athugasemd við eftirfarandi athugasemd frá þér ( skrifar Höskuldur Þráinsson): Kjörstaðir opna klukkan tíu, sagði fréttamaður Ríkisútvarpsins í hádegisfréttum (26.11.2010). Er …