Ríkissjónvarpið stóð sig vel í gærkveldi (09.12.2010) við að koma flóknu efni skilmerkilega til skila í fréttum og Kastljósi. Sannast sagna voru frásagnir af norsku skýrslunni um Landsbankann svo yfirgengilegar að það tekur venjulegt fólk talsverðan tíma að melta það hvernig bankabófarnir komust upp með bankaránið með blessun endurskoðendanna Price Waterhouse Coopers. Ótrúlegra en nokkur …
Molar um málfar og miðla 482
Upplýsingarnar um bókhaldsbrellur og bankarán Glitnismanna,sem fram komu í fréttum Ríkissjónvarps og Kastljósi (08.12.2010) voru svakalegar. Þeir Svavar Halldórsson og Helgi Seljan fá prik fyrir sinn þátt í framsetningu málsins. Þarna beraðist ótrúlegt svindilbrask. Þarna heyrðum við því lýst hvernig banki var rændur. Ekki með kúbeini eins og úrabúðin Leonard í Kringlunni Heldur af hvítflibbakrimmum …
Molar um málfar og miðla 481
Heimildamyndin, sem Ríkissjónvarpið sýndi (06.12.2010) um eldgos á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli, var um margt ágæt. Skrítið var þó, að valið skyldi að sýna fréttainnslög frá Fox sjónvarpsstöðinni bandarísku , sem ekki er þekkt fyrir áreiðanlega fréttaþjónustu. Nokkrir hnökrar voru í þulartexta og jafnvægi skorti í hljóðblöndun, – bakgrunnshljóð voru stundum nálægt því að yfirgnæfa þulinn. Þessi …
Molar um málfar og miðla 480
Fréttamönnum Ríkisútvarps fannst það fréttnæmt, að sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi skyldi fylgjast með mönnum og málefnum og ekki síst stjórnmálahorfum og þróun á Íslandi. Það er hlutverk sendiráða að vera augu og eyru lands síns í gistiríkinu. „Afla upplýsinga“ sagði Jón Baldvin fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra í Bandaríkjunum í Ríkisútvarpinu (06.12.2012) Sendiherrar Íslands sendu til …
Molar um málfar og miðla 479
Dagskrá Ríkissjónvarpsins sunnudagskvöldið 5. desember var góð. ( Góð ,heilt yfir , ætti molaskrifari líklega að segja til að tolla í tískunni, en gerir ekki.). Margt var bitastætt í Landa svo sem oftast er og í mynd þeirra Maríu Sigrúnar og Guðmundar Bergkvist um hinn eina og sanna Sólheima Reyni var prýðilega tvinnað saman gömlu …
Molar um málfar og miðla 478
Ríkisútvarpið flytur margvíslegt gott efni bæði í útvarpi og sjónvarpi. Þar starfar líka margt prýðilega hæft fólk. Stofnuninni eru hinsvegar um margt mislagðar hendur í dagskrárgerðinni. Þar er gleggsta dæmið ,sem oft hefur verið nefnt hér í Molum að á fimmtudagskvöldum er okkur boðið upp á þrjár amerískar þáttaraðir í beit. Það er auðvitað óboðlegt. …
Molar um málfar og miðla 477
Í Fréttablaðinu (02.12.2010) er einstaklega ósmekkleg auglýsing frá Stöð 2, Sport 2. Þar eru auglýstir 50 helgileikir í jólamánuðinum. Átt er við knattspyrnuleiki. Í auglýsingu er mynd af knattspyrnumanni við steindan glugga og undir stendur: Hann er upprisinn. Í texta auglýsingarinnar stendur svo: Stöð 2, Sport 2 boðar yður mikinn fögnuð… Er hægt að leggjast …
Molar um málfar og miðla 476
Fréttapistlar Sveins Helgasonar frá Bandaríkjunum eru með besta efni í fréttatímum Ríkisútvarpsins. Eftir ágæta umfjöllun um efnahagskreppuna á Írlandi, stillti fréttamaður Ríkissjónvarpsins sér upp við barborð í Dyflinni (01.12.2010) og skálaði við hlustendur. Hvert var tilefnið.? Átti þetta að vera fyndið? Í fréttatíma BBC sjónvarpsins á hádegi á fimmtudag (02.12.2010) var fyrstu þrettán mínúturnar einvörðungu velt …
Molar um málfar og miðla 475
Úr dv.is (29.11.2010): Uppljóstrunarsíðan Wikileaks er undir árás en forsvarsmenn síðunnar greina frá því á Twitter-síðu sinni. Á íslensku er ekkert til sem heitir að vera undir árás. Þetta er aulaþýðing úr ensku: .. to be under attack. Á íslensku er talað um a að verða fyrir árs eða sæta árásum. Í þessum Molum hefur …
Molar um málfar og miðla 474
Í fréttum Ríkissjónvarpsins á kjördag (27.11.2010) var rætt við formann landskjörstjórnar, sem fréttamaður kallaði yfirmann landskjörstjórnar. Hvernig hefur þetta verið svona heilt yfir spurði fréttamaður formanninn. Heilt yfir? Það var líka einkar ófaglegt að ætlast til þess að formaður landskjörstjórnar lýsti vonbrigðum með dræma kosningaþátttöku. Fréttamaður sem segir: Dáldil traffík og misjafnt er hvenær kjörstöðum lokar , …