Molar um málfar og miðla 473

Auglýsingastofur, stórfyrirtæki og nokkur veitingahús hafa að undanförnu lagst á  eitt  að troða  slettum inn í málið. Þessar slettur  eru  tax-free dagar (Þegar veittur er afsláttur ,sem nemur virðisaukaskattsprósentunni), outlet (einskonar verksmiðjuútsala) og  bruns eða bröns(veglegur  hádegisverður, oftast á laugardegi eða  sunnudegi, blanda úr ensku orðunum breakfast og lunch). Þessir aðilar eru að vinna  óþurftarverk …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 472

Eftirfarandi setningarbrot úr dv.is (26.11.2010) er lýsandi dæmi um skort á máltilfinningu: Kostnaðurinn nemur um tvær milljónir króna …  Hér  ætti að standa: Kostnaðurinn nemur um tveimur milljónum króna.   Annað dæmi um skort  á máltilfinningu úr hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (26.11.2010): Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum vegna  álvers við Bakka á  Húsavík var skilað í gær….  Mat var ekki skilað, heldur var …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 471

Kjörstaðir opna klukkan tíu, sagði fréttamaður Ríkisútvarpsins í hádegisfréttum (26.11.2010). Er mönnum alveg  fyrirmunað að nota  sögnina að opna rétt ?  Kjörstaðir opna  hvorki eitt  né neitt. Kjörstaðir verða  opnaðir  klukkan tíu. Ótrúlegt. Hvað segir málfarsráðunautur? Er hann ekki örugglega enn við  störf?   Var leitað til íslenskra dómara með aðstoð, sagði íþróttafréttamaður Ríkisútvarpsins í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 470

Í frétt Morgunblaðsins (24.11.2010) um framkvæmdir í grennd við náttúruperlu í Noregi segir: „Ferðamenn leggi bílum sínum við veitingastaðinn, borgi sem svarar 1200 kr fyrir bílastæðið og og þaðan liggi gönguleiðir um fjallið og næsta nágrenni“. Svo ætla talsmenn ferðaþjónustunnar á Íslandi að ganga af göflunum ef rætt er um smávægilega gjaldtöku við íslenskar náttúruperlur, …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 469

Í sexfréttum  Ríkisútvarpsins (23.11.2010)  sagði talsmaður  Íslandspósts, ekki einu sinni heldur tvisvar:  Ef fólki vantar…. Þegar fyrirtæki senda  fólk í  fjölmiðla á að velja   fólk,sem  er sæmilega talandi.    Molaskrifari hnaut um eftirfarandi fyrirsögn í Morgunblaðinu (23.11.2010): Hagsmunir sjóðsins  rekast á. Þetta hljómar ekki rétt í eyrum Molaskrifara. Því ekki er sagt á hvað hagsmunirnir rekast.Í fréttinni …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 468

Það er ofur eðlilegt að  þeir sem lesa  fréttir eða segja   mismæli sig. Þá er  bara að leiðrétta mismælið og halda ótrauður áfram.  Ef mismælið er  ekki leiðrétt eru  líklega  fyrir því  tvær  ástæður.   Sá sem  mismælir sig veit ekki betur og  heldur að hann   sé  að lesa það sem rétt er. Hin ástæðan er …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 467

Réðust á par af tilefnislausu , segir í fyrirsögn á dv.is (21.11.2010). Hér  hefði átt að standa: Réðust  á par að tilefnislausu.   Úr mbl.is  (22.11.2010): Júlíana Grétarsdóttir hafnaði í 19. sæti og Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir í 26. sæti af 38 keppendum í novice-flokki á Opna Varsjármótinu í listhlaupi á skautum um helgina.  Orðið  novice er  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 466

Ferðaskrifstofan  Iceland Express hvetur Íslendinga til að  sniðganga verslanir á Íslandi og gera jólainnkaupin í New York.  Ferðaskrifstofan auglýsir í Ríkisútvarpinu (19.11.2010): Hvernig væri að versla  jólagjafirnar í Bloomingdale… (Bloomingdale  er  þekkt  stórverslun í New York). Það kemur ekki á óvart, að frá þessari ferðaskrifstofu komi auglýsingar á  vondu máli , en  svolítið kemur á …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 465

Það er mikil nýbreytni í íslenskri pólitík, að  nú skuli ekki ganga  hnífurinn  á milli þeirra sem áður  voru traustustu stuðningsmenn  vestrænnar samvinnu (Styrmis, Björns og  Davíðs) og  sumra helstu kommaleiðtoga Alþýðubandalagsins,   Ragnars Arnalds, Hjörleifs og Ragnars jarðskjálftafræðings og félaga. Bandaríkjamenn hafa löngum sagt að undarlegasta fólk sængi saman í pólitík ( e. politics makes strange bedfellows). Það á einkar …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 464

Allt ætlaði um koll að keyra í bókstaflegri merkingu , sagði íþróttafréttamaður í Ríkissjónvarpinu (17.11.2010). Þetta fannst Molaskrifara  einkennilegt orðalag. Af hverju í  bókstaflegri merkingu ?  Nægt hefði  að segja að allt hefði ætlað um koll að keyra.  Í  sjónvarpsauglýsingu er talað um bestu gæði. Það  þýðir að  gæði séu  góð en  slíkt orðalag  er …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts