MÁLFARSÓVITAR Molavin skrifaði (07.05.2016): ,,Ríkisútvarpið hefur málfarsráðgjafa á launaskrá og Morgunblaðið birtir daglega þátt um það sem betur má fara í málfari fréttamanna. En það er sem þetta nái ekki til þeirra sem ætlað er að læra. Morgunblaðið birtir í dag, 7. maí, forsíðufrétt með fyrirsögninni: Metfé fyrir lúxusíbúðir. Um það hefur verið ítarlega fjallað …
Molar um málfar og miðla 1943
GÓÐU GESTIRNIR Molavin skrifaði (03.005.2016):,, „Ég söng og fagnaði góðum gesti og gaf þér hjartað í brjósti mér,“ segir í ljóði Davíðs Stefánssonar sem oft er sungið sem síðasta lag fyrir fréttir. Þarna lýsir skáldið heitri ást. Og svo hjartkærir virðast allir þeir viðmælendur vera sem koma til viðtals í þætti útvarpsins að aldrei eru …
Molar um málfar og miðla 1942
KJÁLKALÍNAN Molavin skrifaði (04.05.2015): ,,Það er mikið lagt á unga blaðamenn Vísis, að þurfa að þýða slúðurfréttir úr ensku yfir á skiljanlegt íslenskt mannamál. Fyrirsögn í dag (4.5.2016) er svohljóðandi: „Rumer Willis brjáluð yfir því að kjálkalínu sinni var breytt með Photoshop: „Þetta er einelti og ég mun ekki líða það.“ Um er að ræða …
Molar um málfar og miðla 1941
TIGNIR GESTIR Molavin skrifaði (30.04.2016): ,, Var það gráglettni hjá fréttastofu Ríkisútvarpsins að telja upp forseta Íslands meðal konungborinna í hádegisfrétt um sjötugsafmæli Svíakonungs? „Meðal tiginna gesta voru Margrét Þórhildur, danadrottning, Ólafur Ragnar Grímsson og Viktoría krónprinsessa…“ Hans hátign…!?!” Molaskrifari þakkar bréfið. Kannski voru þetta einhverskonar ósjálfráð viðbrögð hjá fréttamanni ! HRÚGA AF HESTUM …
Molar um málfar og miðla 1940
TVÖFÖLD NEITUN ER SAMÞYKKI Kolbrún Halldórsdóttir , sendi línu (29.04.2016) og þakkaði fyrir Molana. Hún segir:Mig hefur oft langað að senda þér ábendingar og læt nú verða af því: Frétt á vef Ríkisútvarpsins (29.04.2016) http://www.ruv.is/frett/russell-crowe-greiddi-skatta-a-islandi Fréttastofa fékk aftur á móti ekki endanlegan úrskurð ráðuneytisins fyrr en í gærmorgun þar sem forsvarsmenn Truenorth lögðust gegn …
Molar um málfar og miðla 1939
AÐ BEYGJA BOLTANN T.H. skrifaði (28.04.2016) og benti á þessa frétt á dv.is: http://www.visir.is/fimm-leyndarmal-gylfa-i-aukaspyrnum-laerdu-ad-beygja-boltann-eins-og-gylfi-thor/article/2016160428951 „Fimm leyndarmál Gylfa í aukaspyrnum: Lærðu að beygja boltann eins og Gylfi Þór.“ „Hann gefur upp öll leyndarmálin sem geta kennt fólki að beygja boltann eins og Gylfi Þór Sigurðsson“. Það er nú ákaflega erfitt, svo ekki sé meira sagt, …
Molar um málfar og miðla 1938
MARG UMRÆDDUR VIÐTENGINGARHÁTTUR Molavin skrifaði (27.04. 2016): ,, Enn heldur Fréttastofa Ríkisútvarpsins áfram að misþyrma viðtengingarhætti. Þessi þráláta misþyrming móðurmálsins sýnir einbeittan brotavilja. „Ný lög takmarki framkvæmdir sveitarfélaga“ segir í fyrirsögn fréttar Rúnars Reynissonar (27.04.2016) og mætti ætla af henni að hvatt sé til þess að dregið verði úr framkvæmdum. Við lestur kemur í ljós …
Molar um málfar og miðla 1937
VEÐRUN ALMANNATRAUSTS Lesandi benti Molaskrifara á þessa frétt á mbl.is (27.04.2016) og sagði, – ,,Hefði ekki verið betra að birta frumtextann. Þetta er óskiljanlegt”. Fréttina er rétt að birta í heild: ,, Lögreglustjórinn í Suður-Jórvíkurskíri í Bretlandi var leystur frá störfum í dag „í kjölfar aðdragana og útgáfu Hillsborough úrskurðarins“ hvers niðurstaða var …
Molar um málfar og miðla 1936
RUGLINGUR Í þessari frétt á mbl.is (26.04.2016) kemur fram að blaðamaðurinn, sem skrifar fréttina þekkir ekki, muninn á forsætisráðuneytinu og skrifstofu forseta Íslands. Skrifstofustjóri forsætisráðuneytisins er tvisvar nefndur í fréttinni og raunar nafngreindur einu sinni, þegar spurningum er beint til forseta Íslands. Til forsetaskrifstofu. Þetta mun hafa verið leiðrétt er leið á daginn. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/04/26/olafur_ragnar_ekki_motad_afstodu/ Þetta …
Molar um málfar og miðla 1935
EKKERT LÁT Á AMBÖGUNUM K.Þ. skrifaði Molum (23.04.2016) og benti á þessa ambögu á vefnum Pressan – eyjan.is „… þar sem skoðanakannanir hafa verið óafgerandi í báðar áttir.“ Ambögurnar í þessari frétt eru reyndar fleiri. http://eyjan.pressan.is/frettir/2016/04/23/obama-segir-breta-fara-aftast-i-rodina-ef-their-segi-sig-ur-esb-farage-obama-er-ad-rifa-nidur-bretland/ Hann bætir við: ,,Ekki virðast vera nein takmörk fyrir ambögunum!” Molaskrifari þakkar ábendinguna. UPP ÚR ÖLLU VELDI Miklu …