Úr mbl.is (08.08.2010) : Gæði andrúmsloftsins hafa hrakað talsvert í Finnlandi síðustu daga. Gæðin hafa hrakað ! Það var og. Einhverju eða einhverjum hrakar. Þessvegna hefði blaðamaðurinn átt að skrifa: Gæðum andrúmsloftsins hefur hrakað… Það er nú reyndar afrek á sinn hátt að koma tveimur villum í svona stutta setningu. Áhorfendum,sem langar… las fréttaþulur Stöðvar …
Molar um málfar og miðla 373
Í þessa stuttu setningu hefur blaðamanni mbl.is tekist að troða ótrúlega mörgum málvillum : Um borð í dráttarvélinni var maður og barn sem flutt voru með þyrlunni til aðhlynningar á Borgarspítalann. Menn eru ekki um borð í dráttarvél, frekar en menn eru um borð í bíl. Þá hefði átt að segja .. voru maður og barn …
Molar um málfar og miðla 372
Í fréttum Stöðvar tvö (06.08.2010) var sagt frá fyrirhuguðu flugi bandaríska flugfélagsins Delta milli Bandaríkjanna og Íslands. Fréttamaðurinn varvægast sagt illa upplýstur. Í fyrsta lagi sagði hann, að til flugsins yrðu notaðar breiðþotur af gerðinni Boeing 757-200, sem gætu flutt um 180 farþega. Þotur af gerðinni Boeing 757 eru ekki breiðþotur. Það eru samskonar þotur og Icelandair …
Molar um málfar og miðla 371
Í fréttum Ríkisútvarpsins (04.08.2010) um áhrif eldgossins úr Eyjafjallajökli á heilsu fólks í grennd við eldfjallið var hvað eftir annað talað um þá sem voru með sögu um astma. Ekki fellir Molaskrifari sig við þetta orðalag. Betra hefði verið að tala um fólk sem glímt hefði við astma eða sjúkdóma í öndunarfærum eða átt við slíka …
Molar um málfar og miðla 370
Það vantaði svo sannarlega ekki að það væri menningarleg reisn yfir dagskrá íslenska Ríkissjónvarpsins okkar í gærkveldi (05.08.2010). Að loknum fréttum og Kastljósi var okkur boðið upp á eftirfarandi: Bræður og systur, bandarísk þáttaröð. Réttur er settur, bandarísk þáttaröð. Nýgræðingar , bandarísk þáttaröð. Svo komu tíufréttir og veður. Þá kom Framtíðarleiftur, bandarísk þáttaröð. Skylt er að …
Molar um málfar og miðla 369
Bjarni Sigtryggsson ,Molavinur, sendi Molum eftirfarandi réttmæta ábendingu: „Á unglingsárum mínum norðanlands heyrði ég oft talað um *lystiskip* þótt þau væru sjaldséð við Ísland í þá daga. Mér finnst þetta heiti í senn þjálla, fallegra og réttara orð en *skemmtiferðaskip* sem nú er notað nær eingöngu yfir þau siglandi hótel, sem sækja heim íslenzkar hafnir …
Molar um málfar og miðla 368
Af hverju ertu með verðlaunapening, spurði sjónvarpsfréttamaður sjö ára stúlku Stúlkan svaraði að bragði: Af því að ég vann ! Hraðakstrar í Húnaþingi, sagði í fyrirsögn á mbl.is (03.08.2010). Orðið akstur er ekki til í fleirtölu. Svo einfalt er nú það. Aðstoðarmaður menntamálaráðherra varð frægur að endemum á dögunum fyrir orðbragð í tölvupósti. Í tíu fréttum …
Molar um málfar og miðla 367
Visir.is sagði frá því er hvítabjörn var drepinn á Svalbarða (30.07.2010): Hvítabirnir eru friðaðir á Svalbarða. Sýslumaðurinn þar sagði hinsvegar augljóst að dýrið hafi verið drepið í sjálfsvörn og eftirmáli því enginn. Eftirmáli þýðir niðurlagsorð , texti aftan við meginmál. Eftirmál eru hinsvegar eftirköst, afleiðing, rekistefna vegna tiltekins atferlis. Hér hefði því átt að standa: Eftirmál …
Molar um málfar og miðla 366
Væntanleg bók Sölva sjónvarpsmanns um Jónínu Benediktsdóttur fékk milljón króna ókeypis auglýsingu í Kastljósi (29.07.2010). Það merkilega við viðtalið við Sölva var, að þar kom ekkert nýtt fram. Nákvæmlega ekkert. Gott er að geta gert vinum sínum greiða og auglýst verk þeirra, köruð jafnt sem hálfköruð. Ísland er smátt í dag. Úr Mogga (30.07.2010): Óhagstæð …
Molar um málfar og miðla 365
Láta sér ekki muna um, sagði fréttamaður Ríkissjónvarps (30.07.2010) Molaskrifari á því að venjast að talað sé um að láta sig ekki muna um að gera eitthvað. Af hverju í ósköpunum skrifa menn svona? Þremur slökkviliðsbílum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu fóru áleiðis upp í Skálafell rétt eftir klukkan 13 eftir að tilkynnt var um svartan …