Í þessum Molum eru ítrekað gerðar athugasemdir við sömu hlutina. Það er gert í þeirri veiku von að dropinn holi steininn. Það er engu líkara en fjölmiðlar hafi bundist samtökum um að kasta fyrir róða þeirri gamalgrónu málvenju að segja, í fyrra vor eða í fyrra sumar. Nú er í tísku að tala um síðasta …
Molar um málfar og miðla 256
Ríkisútvarpið á hrós skilið fyrir umfjöllun um íslenskt mál á fimmtudags- og föstudagsmorgnum í morgunþætti Rásar eitt, Víðu og breiðu. Sömuleiðis ber að hrósa Morgunblaðinu fyrir að birta nú vikulega pistla í Lesbók um íslenska tungu. Þetta er allt af hinu góða. Svona breytist tungan: „Það verður bara ekki gefist upp“, sagði framhaldsskólanemi í fréttum …
Molar um málfar og miðla 255
„Meðlimir“ eru lífseigir. Svona var tekið til orða á mbl.is (08.02.2010) : „Þetta er í fyrsta skipti sem Rússar kaupa vopn frá meðlimi Atlantshafsbandalagsins, Nató.“ Rússar voru að kaupa herskip af Frökkum. Eðlilegt hefði verið að segja: Þetta er í fyrsta skipti sem Rússar kaupa herskip af Natóríki. Í hádegisfréttum RÚV (08.02.2010) var sagt …
Molar um málfar og miðla 254
Það er arfavitlaus ráðstöfun yfirstjórnar RÚV að skera þættina Viðtalið og Fréttaaukann niður við trog. Þessir þættir hafa verið vandaðir og þeir eru ekki það sem kallast getur dýr dagskrárgerð. Þetta er ódýrt efni. Kannski fáum við í staðinn fleiri þætti á borð við „Desperate Houswives“ og „Army Wives“. Næst fáum við kannski „TV Wives“? …
Molar um málfar og miðla 253
Ein hallærislegasta auglýsing, sem Molaskrifari hefur er lengi séð, er frá Sjóvá. Þar er talað um að viðskiptavinbir fái sendar ávísanir og sagt „Sjóvá- ávísun á ánægju“. Þetta er nú eiginlega hámark skrums og hræsni .Ríkissjóður er nýbúinn að greiða á annan tug milljarða til að bjarga Sjóvá. Eigendurnir höfðu nefnilega tæmt bótasjóð félagsins sjálfum …
Molar um málfar og miðla 252
Þeir sem koma fram í fjölmiðlum, hvort sem það eru fréttamenn, stjórnmálamenn eða aðrir, eiga að temja sér skýran framburð. Meðan Frjálslyndi flokkurinn var og hét , var algengt að heyra forystumenn hans tala um Frjáslda flokkinn. Í morgun (04.02.2010) sagði útvarpsstjóri Útvarps Sögu: .. áður en við heyrum hljóstina, – hljómsveitina , átti það …
Molar um málfar og miðla 251
Í hádegisfréttum RÚV (03.02.2010) var fjallað um fjárhagsvanda Álftaness. Talað var um að koma þyrfti í veg fyrir fólksflótta úr byggðarlaginu, en þess sé farin að berast merki nú þegar. Eðlilegra hefði verið að segja, að þess sæjust merki nú þegar. Í sömu frétt var talað um að setja á sérstaka stjórn yfir sveitarfélaginu. Eðlilegra …
Molar um málfar og miðla 250
Úr mbl. is. (01.02.2010) Þetta er sem sagt gamli Gullfoss sem við endurbyggðum til þess að sýna fólki hvernig sjómennirnir komu niður Gullfossi á þessa gömlu trébryggjur. Komu niður Gullfossi á þessar gömlut trébryggjur ? Ólafur segir mikið fjáraustur sigursælla frambjóðenda… Þetta er úr dv.is (02.02.2010). Fjáraustur er karlkynsnafnorð. Þessvegna hefði þarna átt að standa …
Molar um málfar og miðla 249
Hvaða lausnir sérðu möguleika á? Svona orðaði fréttamaður RÚV spurningu í hádegisfréttum (30.01.2010). Hann hefði getað sagt: Hvaða lausnir eru í sjónmáli ? Eða: Hvaða lausnir eru mögulegar?, – ekki gott. (30.01.2010) Í sama fréttatíma var sagt: „… strax á eftir helgina.“. Þarna var á-inu ofaukið. Lögreglubolir enn á lausu, sagði í þriggja dálka forsíðufyrirsögn …
Molar um málfar og miðla 247
Sú árátta helst í fréttum flestra miðla að segja: …samkvæmt þessum og samkvæmt hinum. Í fréttum Stöðvar tvö (26.01.2010) var sagt: … frestun kosningadags á samkvæmt Steingrími ekki að hafa….. Þessi tískuambaga breiðist hratt út og heyrðist einnig í hádegisfréttum RÚV (29.01.2010) þegar vitnað var til orða forstjóra Íslandspósts og sagt: Samkvæmt Ingimundi, enskan skín …