Molar um málfar og miðla 267

 Prýðileg umfjöllun um Færeyjar var í þeim langlífa og ágæta þætti  Steinunnar Harðardóttur Út um græna grundu á Rás eitt í Rúv  (06.03.2010). Þar var rætt við Sigrúnu  Valbergsdóttur,  sem þekkir  manna best til vel til í Færeyjum og er þar tíður gestur. Umsjónarmaður hefði þó mátt nota nýrri  tölur  en frá  2006 um íbúafjölda.Tölur frá  2009 …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 266

 Athyglisverð  viðtöl voru flutt í morgunþætti Rásar tvö (03.03.2010) um Herbalife,sem kallað er  fæðubótarefni. Annarsvegar var rætt við  rólegan og yfirvegaðan prófessor, sem ásamt   fleiri læknum  hefur rannsakað aukaverkanir Herbalife.  Hinsvegar var rætt við óðamála, og allt að því dónalegan, höfuðpaur Herbalife innflutnings. Aldeilis dæmalaust.  Þessi  tvö  viðtöl  mundu henta  vel  sem  dæmi í kennslu í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 265

Kunna menn ekki lengur að leggja saman? Í  kvöldfréttum útvarps  (01.03.2010) var greint frá  afstöðu almennings  til Icesave laganna,sem   forsetinn neitaði  að undirrita.  Sagt var að 74%  væru á móti,  19% með og 8% ætluðu að  skila  auðu.  Þetta eru samtals  101%! Þessar röngu tölur  voru svo  endurteknar á mbl.is  og vísað í fréttir   RÚV   og  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 264

Konur leyfðar í kafbátum,segir dv.is (24.02.2010) í fyrirsögn. Sama dag er svohljóðandi fyrirsögn á dv. is: Konur leyfðar í réttarsölum. Sami snillingur hefur sjálfsagt verið að verki í báðum tilvikum. Konur fá að þjóna í kafbátum,segir á mbl.is sama dag. Molaskrifari veit varla hvor fyrirsögnin er verri; báðar eru slæmar. Fyrirsögn mbl.is er aulaþýðing úr …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 263

Líklega  er  málfarsráðunautur  RÚV búinn að leggja  blessun  sína  yfir það orðalag fréttamanna að tala um síðasta vetur, síðasta  sumar og  síðasta sunnudag. Önnur  ályktun verður vart  dregin  af því ,að  þetta  orðalag skuli nú heyrast næstum í hverjum fréttatíma. Kannski gafst hann bara upp. Molaskrifara  finnst þetta ekki gott mál.   Þegar  ég sá …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 262

Fjögurra dálka fyrirsögn var á bls. 7 í Mogga (22.002.2010): Tungumál mega ekki detta út. Vandað málfar? Ekki finnst Molaskrifara það. Úr dv.is (20.02.2010): Lögreglunni á Suðurnesjum hefur þó ekki borist fleiri tilkynningar um slíkt athæfi í Garðinum. Hér hefði átt að standa: Lögreglunni á Suðurnesjum hafa þó ekki borist… Í íþróttafréttum RÚV sjónvarps var …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 261

Í hálfrar mínútu sjónvarpsviðtali í Ríkissjónvarpinu (20.02.2010) tókst sigurvegaranum í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi að segja þrisvar sinnum ofsalega og einu sinni ofboðslega. Ofsaleg orðgnótt, – ekki satt ? Í dægurmálaþætti á Rás eitt , RÚV, var nýlega sagt: …. framkvæma tvöfalt lögheimili og …engin efnisbreyting sem þarf að breyta. Rétt er að fram komi, …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 260

Fjölmiðlar dreifa og búa til efni af ýmsu tagi. Fréttastofur framleiða texta, ef þannig má að orði komast, ritað mál eða talað. Í öllum framleiðslufyrirtækjum er gæðaeftirlit. Unnið er í samræmi við ákveðna staðla og þess gætt að framleiðslan standist tilteknar kröfur. Þessu er ekki þannig háttað með íslenska fjölmiðla. Þar er gæðaeftirliti oftast látið …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 259

Góð redding í bili, var letrað á skjáinn í fréttatíma Ríkissjónvarpsins (17.02.2010). Þetta er kæruleysilegt og óvandað málfar, sem ekki á erindi  á skjáinn. Ýmsa í Efstaleiti skortir tilfinningu fyrir því hvað boðlegt er í þessum efnum. Þetta var ekki boðlegt. Betur fór en á horfðist, þegar mæðgin fundust heil á húfi í illviðri, eftir …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 258

Sérkennilega var komist að orði í frétt sem visir.is birtir (12.02.2010) um rússneskan bónda ,sem kom heimatilbúnum jarðsprengjum fyrir í kartöflugarði sínum: „Upp um þetta komst þegar þjófur lenti á einni jarðsprengjunni og fannst í umtalsverðum tætlum. Það var í ágúst á síðasta ári og þjófurinn er búinn að jafna sig þokkalega. “ Það var …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts