Þess sér stað, að ekki er lengur kennd landafræði í skólum hérlendis. Í fréttum Stöðvar tvö (25.03.2010) var sagt frá erni ,sem verið hefur í Húsadýragarðinum í Reykjavík að undanförnu, en aflífa varð fuglinn, því hann var ekki lífvænlegur. Fréttamaður Stöðvar tvö sagði ,að fuglinn hefði verið handsamaður við Bjarnarhöfða á Snæfellsnesi síðasta haust. Það …
Molar um málfar og miðla 276
Fín frammistaða hjá Fréttastofu RÚV á Fimmvörðuhálsi og þar í grennd (24.-25. 03.2010).Stórkostlegar myndir. Liggur við að gamall fréttafiðringur taki sig upp. Frammistaða Stöðvar tvö hefur og verið með miklum ágætum, þótt þar sé fréttaliðið langtum fámennara. Kristján Már Unnarsson stendur fyrir sínu. Margra fréttamanna maki. Formaður þingflokks VG lét sér sæma að sletta ensku í …
Molar um málfar og miðla 275
Tvennt fannst Molaskrifara einkennilegt í baksíðufrétt Morgunblaðsins (22.03.2010) þar sem sagt var frá því, að rannsóknaskipið Árni Friðriksson hefði fengið framhluta trillu í veiðarfæri í Faxaflóa. Fyrst var fyrirsögnin: „„Veiddu“ upp lúkarskappa“. Það er út í hött að tala um að „veiða“ upp, þegar brak úr skipi kemur í veiðarfæri. Seinna í fréttinni segir : Annars var þetta …
Molar um málfar og miðla 274
Laun verkafólks hækkaði mest,sagði í fyrirsögn á mbl.is (18.03.2010). Orðið laun er ekki til eintölu. Svo einfalt er nú það. Þessvegna hefði fyrirsögnin átt að vera: Laun verkafólks hækkuðu mest. Molaskrifari lætur lesendum eftir að dæma eftirfarandi málsgrein (visir.is 18.03.2010): Þótt aðeins séu um 13 kílómetrar milli Bakkafjöru í Landeyjum og Heimaey hefur hafnleysið á …
Molar um málfar og miðla 273
Í íslensku eru mörg föst orðasambönd. Þeir sem skrifa og segja fréttir verða að kunna skil á þeim algengustu. Í síðdegisfréttum RÚV ( Klukkan 16 00 19.03.2010) sagði fréttamaður: … eftir að viðræður runnu út um þúfur á þriðja tímanum í dag. Hér er ruglað rækilega saman tveimur orðatiltækjum. Það er ekkert til sem heitir …
Molar um málfar og miðla 272
Í ágætum morgunþætti Rásar eitt Víðu og breiðu (17.03.2010) var sagt, að á vef RÚV væri frétt um, að hugsanlega yrði nýtt afvopnunarsamkomulag Bandaríkjamanna og Rússa undirritað í Reykjavík. Nánar yrði líklega fjallað um málið í áttafréttum. Ekki var orð um málið í áttafréttum. Þegar vefur RÚV var skoðaður var fréttin vissulega þar. Undir fréttaflokknum …
Molar um málfar og miðla 271
Í heilsíðuauglýsingu (DV 15.03.2010) frá Samtökum verslunar og þjónustu og VR segir stórum stöfum: Þú spilar stórt hlutverk. Þetta er ekki góð íslenska. Þetta er heldur vond prentsmiðjudanska. Danir tala um að spille en rolle, ef dönskukunnáttan ekki bregst Molaskrifara. Á íslensku tölum við um að leika hlutverk. Enn eitt dæmi málspjöll auglýsingafólks. Fjöldasamtök, eins …
Molar um málfar og miðla 270
Bjarni Sigtryggsson sendir Molum eftirfarandi undir fyrirsögninni, „Enn um útbreidda vanþekkingu á viðtengingar hætti. Hvað er athugavert við þessa upphafsmálsgrein RÚV-fréttar í dag, fimmtudag? „Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, segir augljóst að færa þurfi fjármál Álftaness til betri vegar áður en farið verður að ræða sameiningu við annað sveitarfélag.“ Jú, það sem er athugavert er …
Molar um málfar og miðla 269
Bjartsýnn var Molaskrifari á að fréttamönnum tækist að tala rétt um það hvenær kjörstaðir væru opnar og hvenær þeim væri lokað í þjóðaratkvæðagreiðslunni a laugardaginn var. Bjartsýnn þar til hann hann heyrði þrautreyndan fréttamann á Stöð tvö segja (06.03.2010): Kjörstöðum lokar klukkan tíu í kvöld. Kjörstöðum lokar ekki, kjörstöðum var lokað klukka tíu um kvöldið. …
Molar um málfar og miðla 268
Í fréttum beggja sjónvarpsstöðvanna (03.03.2010) var talað um að skipa bráðabirgðastjórn yfir bankanum (VBS). Þetta samræmist ekki máltilfinningu Molaskrifara. Honum finnst eðlilegra að tala um bankanum hafi verið skipuð bráðabirgðastjórn, eða að bráðabirgða stjórn hafi verið skipuð,eða sett, yfir bankann. Nú má vel vera að þetta sé rangt hjá Molaskrifara. Fróðlegt væri að fá viðbrögð …