Í tvígang hefur Hannes þó ekki tekið þátt á mótinu, sagði íþróttafréttamaður RÚV í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins (10.04.2010). Ekki í fyrsta skipi, sem íþróttafréttamenn taka svo til orða. Menn taka ekki þátt á móti heldur í móti. Menn geta hinsvegar keppt á móti. Málfarsráðunautur Ríkisútvarpsiins þarf að skýra þetta út fyrir íþróttafréttamönnum. Fólk vill sjá íslensk …
Molar um málfar og miðla 286
Samfylkingin vill að bærinn kaupi ókláruð íbúðarhúsnæði í bænum og breyti þeim í kaupleiguíbúðir og félagslegar íbúðir.Úr dv.is (08.04.2010). Orðið húsnæði er eintöluorð. Það er ekki til í fleirtölu. Í fréttum Ríkissjónvarpsins (08.04.2010) var fjallað um auðlindagjald og sagt: Gjaldtakan gæti aukið tekjur ríkisins af erlendum stóriðjum.Orðið stóriðja er eintöluorð, ekki til í fleirtölu. Sjá …
Molar um málfar og miðla 285
Molaskrifari er einkar íhaldssamur. Hann hefur jafnan hlustað á morgunfréttir RÚV oftast bæði klukkan sjö og átta. Hann hefur nú uppgötvað að morgunfréttir Bylgjunnar eru oftast betri. Betra er seint en aldrei, segir líklega einhver. Starfsmannafjöldi og mikill kostnaður við fréttastofu skiptir ekki sköpum í þessu tilliti. Fréttir Bylgjunnar klukkan tólf á hádegi eru …
Molar um málfar og miðla 284
Átakanlegt var að horfa á Kastljós að kveldi annars páskadags, er sýnt var myndband af því er bandarískir hermenn skjóta óbreytta borgara í Bagdad með hríðskotabyssu úr þyrlu. Þetta var skelfilegt og þyngra en tárum tekur að horfa á saklausa borgara myrta og heyra svo hermennina hreykja sér af voðaverkunum. Það er hinsvegar ámælisverð dagskrárgerð …
Molar um málfar og miðla 283
Stundum verður óskiljanlegur talnaruglingur í fréttum. Morgunblaðið segir (05.04.2010) frá kínversku kolaskipi er strandaði undan ströndum Ástralíu: 950 þúsund lestir af olíu eru um borð í skipinu, sem var að flytja kol til Kína þegar það strandaði. Hvernig skyldi kolaflutningaskip, sem er með 950 þúsund lestir af olíu innanborðs líta út? Auðvitað hafa þetta verið …
Molar um málfar og miðla 282
Boðorð blaðamanna Nýlega fann Molaskrifara gamla úrklippu úr Morgunblaðinu,sem hann hafði lagt inn í bók og stungið upp í hillu. Úrklippan er frá 30. ágúst 1997 og ber fyrirsögnina: „Tólf boðorð góðrar blaðamennsku“. Boðorðin eru tekin úr ræðu sem spænski rithöfundurinn Camilo Jose Cela hélt á heimsþingi rithöfunda í Granada það sama ár. Camilo Jose …
Molar um málfar og miðla 281
Úr mbl.is (01.04.02010): Farþegalest lenti saman við aðra lest í Slóvakíu í morgun með þeim afleiðingum að þrír létust og þrír slösuðust alvarlega. Ekki er þetta nú kunnáttusamlega orðað. Orðabókin segir: Þeim lenti saman, – þeir deildu, urðu ósáttir, flugust á, slógust, voru samtímis á sama stað. Farþegalestin rakst á aðra lest, eða ók á aðra …
Molar um málfar og miðla 280
Einhver kann að halda að Molaskrifari sitji með stækkunargler og lúslesi prentblöðin og netblöðin til að leita uppi ambögur. Svo er ekki. Þær hreinlega hrökkva framan í Molaskrifara af síðum og skjám. Sama er með útvarp og sjónvarp. Ambögurnar þar stinga í eyru. Lítil minniskompa er sjaldan langt undan. Þá punktar Molaskrifari hjá sér, það sem …
Molar um málfar og miðla 279
Mikið var gaman að hlusta á Alexander Ómar Breiðfjörð Kristjánsson , níu ára listamann frá Grund, skammt frá Selfossi, í Kastljósi (30.03.2010). Ef allir fjölmiðlamenn væru jafnvel máli farnir og þessi níu ára drengur, hefði Molaskrifari fátt um að skrifa. Gerinilegt er, að alla ævi þessa drengs hefur verið talað við hann eins og fullorðinn. …
Molar um málfar og miðla 278
Fréttamenn verða að þekkja merkingu þeirra orða, sem þeir láta sér um munn fara. Íþróttafréttamaður RÚV sagði í sjónvarpsfréttum (29.03.2010) um forráðamenn skíðalandsmótsins, að þeir hefðu ekki verið upplitsdjarfir um morguninn, en þá var veðurútlit slæmt fyrir skíðakeppni. Að vera upplitsdjarfur,segir Íslensk orðabók, er að þora að horfast í augu við aðra , vera feimulaus …