Það var ýmislegt athyglisvert við fréttatíma sjónvarpsstöðvanna þriðjudagskvöldið 4. maí. Í fréttum Stöðvar tvö var viðtal við forstjóra Vinnumálastofnunar sem taldi atvinnuleysi fara minnkandi og bjartari horfur framundan. Fyrsta frétt Ríkissjónvarpsins um atvinnumálin var í allt aðra átt: Ástandið aldrei verra. Þetta var sérkennilegt. Það var einnig athyglisvert að Ríkissjónvarpinu þótti fyrirlestur sem William K. Black lögfræðingur …
Molar um miðla og málfar 296
Í leiðréttingu í Fréttablaðinu (28.04.2010) segir: Þar víxluðust vörumerki Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Vörumerki? Af hverju ekki flokksmerki? Í hádegisfréttum RÚV (23.04.2010) var fjallað um hugmynd umhverfisráðherra um bann við hreindýraveiðum og rjúpna- og gæsaveiðum á tilteknum svæðum í Vatnajökulsþjóðgarði. Viðmælandi fréttastofu sagði að bannið væri tilhæfulaust. Að eitthvað sé tilhæfulaust , þýðir að það sé upplogið, ekki fótur fyrir því. …
Molar um málfar og miðla 295
Það var ótrúlegt dómgreindarleysi, þegar dagskrárkynnir (þula) Ríkissjónvarpsins birtist áhorfendum með kornabarn í fanginu (25.04.2010). Hver var tilgangurinn ? Hvað á svona bjánagangur að þýða? Af hverju þarf Iceland Express að ávarpa íslenska sjónvarpsáhorfendur á ensku í nýjustu auglýsingu sinni og segja: Is it true? Þetta er ferðaskrifstofunni ekki til sóma. Úr mbl.is (21.04.2010): Um tíma …
Molar um málfar og miðla 294
Í Molum var stundum vikið að fáránlegum auglýsingum Sparisjóðsins Byrs um það sem sparisjóðurinn kallaði fjárhagslega heilsu. Nú er komið í ljós, að Sparisjóðurinn Byr var helsjúkur og er búinn að geispa golunni. Það er gjörsamlega út í hött ef nota á fé skattgreiðenda til að bjarga þeim sem settu Byr á hausinn. Þar er Molaskrifari hjartanlega sammála Jónasi …
Molar um málfar og miðla 293
Í fréttum sjónvarps ríkisins um truflanir á flugi í Evrópu vegna eldgossins (20.04.2010) sagði fréttamaður, að ferðamenn , — skeyttu skapi sínu á flugvallarstarfsfólk ! það var og! Í fréttum Stöðvar tvö (20.04.2010) talaði fréttamaður ranglega um strandarglópa. Rétta orðið er strandaglópar, það á við um þá sem missa af skipi eða flugvél, eða eru stöðvaðir …
Molar um málfar og miðla 292
Makalaust er, að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, skuli koma fram í sjónvarpi BBC og hóta umheiminum Kötlugosi (19.04.2010). Orð hans hafa þegar valdið okkur miklu tjóni. Athyglissýkin á Álftanesi virðist ekki eiga sér nein takmörk. Ólafur Ragnar hefur alla ævi verið gjörsamlega dómgreindarlaus á sjálfan sig. Viðtalið er skelfilegt: http://news.bbc.co.uk/2/hi/programmes/newsnight/8631343.stm?ls Sýna Hrafni stuðning með því …
Molar um málfar og miðla 291
Af hverju þarf mbl.is (16.04.2010) að falla á léttustu prófunum? Flug Icelandair til London, Kaupmannahafnar, Stokkhólms og Amsterdam í fyrramálið verður seinkað til klukkan 12 á hádegi ..Þetta á að vera. Flugi Icelandair… seinkar. Tvennt úr fréttum Stöðvar tvö (16.04.2010): Búist er við að ösku taki að falla… Búist er að öskufall verði, – …
Molar um málfar og miðla 290
Eftirfarandi snilldarsetning er úr dv. is (15.04.2010): Talið er útilokað að hann sé ekki borgunarmaður fyrir skuldinni.Hér hefur blaðamaður líklega ætlað að skrifa : Talið er útilokað, að hann sé borgunarmaður fyir skuldinni. Tvöfalda neitunin snýr merkingunni við. Kannski er þetta rangt hjá Molaskrifara Í fréttum RÚV var (15.04.2010) sagt frá kosningabaráttu í Bretland og …
Molar um málfar og miðla 289
Það er virðingarvert og þakkarvert að Morgunblaðið skuli vikulega birta pistla um íslenskt mál undir heitinu Tungutak. Nýjasta pistilinn (11.042010) skrifaði Ingibjörg B. Frímannsdóttir. Hann heitir: Meira um mælt mál. Allir fjölmiðlamenn, sem lesa fréttir í útvarpi eða sjónvarpi, ættu að lesa þennan pistil og tileinka sér það sem þar er sagt. Það gildir einnig um …
Molar um málfar og miðla 288
Stórskemmtilegt var að hlusta á frásagnir Eiríks Kristóferssonar skipherra í samtali frá árinu 1966 við Jónas Jónasson (Rás eitt, RÚV 11.04.2010). Eiríkur talaði vandað mál, enda af þeirri kynslóð og ekki langskólagenginn. Hann talaði um myrkhræðslu, ekki myrkfælni (bæði orðin að sjálfsögðu góð og gild) og hann sagðist hafa sett stefnuna þannig að þeir væru langlausir …