Icesave samningurinn er milliríkjasamningur. Ekki er venja að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um slíka samninga. En verði það úr, er þá ekki eðlilegt að Hollendingar og Bretar hafi einnig þjóðaratkvæðagreiðslur um Icesave svo fyllsta jafnræðis sé gætt?
Molar um málfar og miðla 217
Sumum finnst líklega smásmugulegt að finna að því að áttafréttir RÚV (08.12.2009) hófust á orðunum: Stjórn og stjórnarandstaða kom sér saman um… Þarna komu tveir aðilar sér saman, gerðu samkomulag. Því átti að segja : Stjórn og stjórnarandstaða komu sér saman. Mogginn í morgun ( 08.12.2009) minnti mig á bernsku mína. Hann var svo þunnur. …
Molar um málfar og miðla 212
Eftirfarandi línur eru frá Bjarna Sigtryggssyni, fyrrum fréttamanni og áhugamanni um fjölmiðlun og íslenska tungu : „Þar sem margt fjölmiðlafólk fylgist vonandi með pistlum þínum langar mig að biðja þig að vekja athygli á því að framundan er í Kaupmannahöfn Aðildarríkjaþing Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, en ekki loftslagsráðstefna, eins og nær allir fjölmiðlar hafa haldið fram …
Molar um málfar og miðla 211
Á vefmiðlinum dv.is er þessi setning ( 30.11.2009): Jóhannes (í Bónus) sakar Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, um að dreifa fluguritum innan háskólans. Það er ekkert til sem heitir flugurit. Rétta orðið er flugrit, dreifirit (pésar eða stakir miðar) segir orðabókin. . Prófessorinn finnur sér ýmislegt að dunda við eftir að …
Molar um málfar og miðla 210
– Eruð þið byrjuð að versla jólagjafirnar? Þessa spurningu lagði fréttamaður Stöðvar tvö (26.11.2009) fyrir par, sem varð á vegi hans í verslanamiðstöð. Ótrúlega mörgum fjölmiðlamönnum virðist ógerlegt að skilja hver munurinn er á sögnunum að versla og að kaupa. Hér hefði fréttamaður átt að segja: Eruð þið byrjuð að kaupa jólagjafirnar? Enn er …
Leikhús fáránleikans við Austurvöll
Stjórnarandstaðan er búin að breyta Alþingi Íslendinga í leikhús fáránleikans. Sá sem þetta ritar trúði eiginlega hvorki augum né eyrum, þegar hann sá þingmenn í ræðustóli vælandi um hungur, að þeir fengju ekki fundarhlé til að raða í sig réttunum úr hinu ágæta ( og líklega niðurgreidda) mötuneyti þingsins. Fáránleikanum og fíflaganginum virðast engin …
Molar: Er þetta það sem koma skal ?
Góðvinur og gamall samstarfsmaður Molaskrifari sendi það sem hér fer á eftir: Eftirfarandi bréf barst stjórnendum MK á dögunum frá nemanda sem vill koma á nýtískulegum kennsluháttum í skólanum: Mörgum nemendum finnst kennarar þeirra vera ótrúlega leim og voða mikið bara að kenna eitthvað júsless stöff. Allar bækurnar sem eru lesnar í íslensku eru …
Molar um málþóf á Alþingi
Það hefur um langa hríð verið ótrúlegt að fylgjast með stjórnarandstöðunni á Alþingi, þar sem reynslulausir foringjar ráða ferð. Stjórnarandstaðan er í minnihluta en heldur meirihlutanum í gíslingu með málþófi út um víðan völl. Málþófi um mál sem búið er að ræða meira og minna í hálft ár. Þar sem búið er að segja …