Á Morgunvakt Rásar tvö (25.11.2009) var fjallað um hangikjöt. Þá sagði umsjónarmaður: Það er ekki sama hvernig hangikjöt er gert. Þá vaknar spurningin: Gera menn hangikjöt? Spjallað var við starfsmann RÚV eins og alsiða er á þeim bæ, enda óþarfi að leita langt yfir skammt og vera að tala við utanhússfólk, nema í neyðartvikum. Sá …
Molar um málfar og miðla 208
Eftir mikla leit fann hann loks móðir sína, en.. (visir.is 24.11.2009) Greinilegt er að slakað hefur verið á í íslenskukennslu í grunnskólum landsins. Það var svo staðfest í fréttum Stöðvar tvö sama dag, þegar fréttamaður talaði um lögfræðing föðursins. Í sama fréttatíma sagði fréttamaður: .. þegar hann kemst í leitirnar. Hann hefði átt að segja …
Molar um málfar og miðla 207
Í fréttum Stöðvar tvö (22.11.2009) var sagt: Hún segir algengt að menn sem grunaðir séu um nauðgun sé sleppt. Fréttamaðurinn hefði átt að segja: .. að mönnum sem grunaðir séu um nauðgun sé sleppt. Oft er ástæða til að gera athugasemdir við málfar í auglýsingum.Í Útvarpi Sögu glymja nú auglýsingar um meltingarlyf …
Hverja verndar Persónuvernd ?
Einhver undarlegasta frétt, sem lengi hefur birst, er að lögreglunni sé óheimilt að nota myndir úr eftirlitsmyndavélum á bensínstöðvum til að hafa hendur í hári þjófa. Til hvers eru eftirlitsmyndavélarnar, ef ekki til að koma upp um lögbrjóta ? Þjófarnir sem hér um ræðir setja litaða díeselolíu á bíla sína. Litaða olían er eingöngu …
Molar um málfar og miðla 206
Í gegnum sögu Íslands hafa …. Á þessum orðum hefst blaðagrein eftir varaformenn fjögurra stjórnmálaflokka. Í skóla var Molaskrifara kennt að svona ætti ekki að taka til orða. Hér hefði til dæmis mátt byrja á orðunum: Í aldanna rás…. Svo er fjallað um áföllin sem dunið hafa á þjóðinni og sagt: Sum hafa verið …
Molar um málfar og miðla 205
Góður vinur og gamall skólabróðir, Sigurður Oddgeirsson, sem nú dvelst með Jótum , sendi mér eftirfarandi. Sigurður hefur farið vítt um veldi Dana og raunar veröldina , en ekki hefur það dregið úr áhuga hans á mikilvægi móðurmálsins. Kærar þakkir fyrir sendinguna, Siggi: „Ekki veit ég hversu oft þú hlustar á sjónvarps- og/eða …
Saga Sjálfstæðisflokksins á uppboði !
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn setur fágæta muni úr sögu sinni á uppboð, er það ekki merki þess að hann vilji gleyma sögu sinni ? Það er svolítið einkennilegt að setja minjar um sögu flokksins á uppboð og selja hæstbjóðanda. Kannski er þetta einmitt kjarni þeirrar frjálshyggju sem sett hefur svip á flokkin undanfarin ár. Allt er …
Styrmir og Hallgrímur
Margt athyglisvert kom fram í fróðlegu og skemmtilegu samtali þeirra Styrmis Gunnarssonar og Hallgríms Thorsteinssonar í þættinum „Í vikulokin“ á Rás eitt (21.11.2009). Eitt var þó skrítið við umræðuna: Ekki var minnst einu orði á hvernig staðið var að einkavæðingu bankanna, en þar er rótin að því hversu illa fór og hve fáir menn gátu …
Molar um málfar og miðla 204
Úr vefmogga (18.11.2009): Forvarsmenn bandaríska álrisans Century Aluminum segja að stefnt sé að því að hefja fullar framkvæmdir við álverið í Helguvík. Fullar framkvæmdir ? Af hverju nægði ekki að segja: .. að hefja framkvæmdir ? Meira úr vefmogga (19.11.2009): Eftirfarandi er úr frétt um nýjan utanríkisstjóra ESB: Hún var stjórnarformaður heilbrigðisyfirvalda í …