Enn bregst Mogginn

 Þeir sem borga fyrir að fá Morgunblaðið heim til sín á morgnana eiga heimtingu á því að þar sé í fréttum  fjallað um menn og  málefni af heiðarleika og réttsýni. Það var augljóslega mjög fréttnæmt er eignir fyrrverandi ráðuneytisstjóra  í fjármálaráðuneytinu, voru kyrrsettar. Það var  vegna þess að hann var grunaður um að hafa nýtt …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 203

  Á fréttavef RÚV segir (18.11.2009): Ísraelsstjórn heimilaði í gær byggingu 900 húseininga á hernumdu svæði í útjaðri austurhluta Jerúsalemborgar. Sama orðalag var í morgunfréttum. Hér hefur greinilega verið illa þýtt úr ensku þar sem talað hefur verið um housing units, það er að segja hús eða íbúðir. Á íslensku  er orðið húseiningar notað um …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 202

   Vefdv (17.11.2009)… og þannig verði fjöldi starfsmanna atvinnulaust og birgja fyrir miklu tjóni. Tær og skýr hugsun , ekki satt? – Meira úr Vefdv sama dag: … komið hefur verið upp sérstakri aðstöðu fyrir ofurölva nemendur. Lýsingarorðið ofurölvi beygist ekki. Því ætti að standa þarna:.. fyrir nemendur sem eru ofurölvi.  Vefdv er um þessar …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 201

  Molaskrifari   fær ekki betur séð en allir þeir, sem heiðraðir voru á degi íslenskrar  tungu, séu vel að þeim heiðri komnir. Þorsteinn frá  Hamri er höfuðskáld, – þeir  Baggalútspiltar  stór góðir. Lagið við ljóð  Káins , Sólskinið í Dakota, eftir Braga  Valdimar Skúlason, í flutningi þeirra  heillaði  mig er ég er  heyrði það  fyrst  …

Lesa meira »

Gullfiskaminnið og heiðarleikinn

     Þegar stjórnmálamaður fullyrðir að hann hafi ekki haft hugmynd um að Baugur  hafi  styrkt  kosningabaráttu hans  fyrir  fjórum árum, um eina milljón  króna  þá kemur tvennt    upp í í hugann. Hann heldur  að kjósendur séu heimskir.  Kjósendur  skynja að hann er ekki  eins   klár og hann vill vera láta. Allavega er hann ekki minnisgóður.    …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 200

Í dag, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, er dagur íslenskrar tungu. Það er vel til fundið. En fjölmiðlamenn ættu að hugsa til þess, að allir dagar eru dagar íslenskrar tungu og orð fjölmiðlamenn vega þungt við mótun málsins. Þess vegna eiga þeir að kappkosta að skrifa vandað mál. Til hamingju með daginn.  Á baksíðu Morgunblaðsins er …

Lesa meira »

Mogginn leggst í ræsið

  Nýrri ritstjórn Morgunblaðsins fylgja nýir pistlahöfundur. Á laugardaginn var lagðist Morgunblaðið í ræsið með birtingu pistils eftir Sverri Stormsker um Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Ritstjórarnir leggja blessun sína yfir sorann. Þessi pistill er eitt það sóðalegasta sem ég hef lesið í dagblaði. Þetta er verra en gamli Þjóðviljinn þegar hann var sem verstur og verra …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 199

   Alþingismaðurinn Lilja Mósesdóttir kallar sig rebel í viðtali við DV (13.11.2009) Orðið rebel er enska og þýðir uppreisnarmaður. Hversvegna þarf íslenskur þingmaður að sletta ensku á lesendur ? Getur hún ekki talað íslensku við Íslendinga ?  Finnst henni flott að sletta? Molaskrifari skilur ekki þjóðkjörna fulltrúa, sem svona tala til fólksins í landinu.  Í …

Lesa meira »

Stutt er Sturlunef

 Dapurlegt er að sjá hvernig samflokksmenn  og  samherjar Þorsteins Pálssonar ráðast  nú að honum með  aðdróttunum og stóryrðum fyrir það eitt að hafa tekið sæti í samninganefndinni um aðild okkar að ESB. Þeir skammsýnu og hugumlitlu menn, sem þetta gera, ættu miklu frekar að fagna  setu  Þorsteins í nefndinni.  Að honum er mikill fengur. Enginn …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 198

    Snilldin blómstrar á Morgunvaktinni á Rás tvö hjá RÚV, enda hrapar hlustun, samkvæmt könnunum. Í morgun (13.11.2009) var þar rætt um að díla við meðvirkni og gera aðra ævisögu. Svo voru hlustendum fluttar fréttir sem umsjónarmenn réttilega kalla slúðurfréttir um fræga fólkið í henni Ameríku. Skorinorður og vel fluttur pistill Láru Hönnu meðal annars …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts