Molar um málfar og miðla 197

  Ritstjórar og fréttastjórar ættu að taka sér tak og kenna fréttaskrifurum að fallbeygja nöfn  fyrirtækja. Í fréttum Stöðvar tvö (10.11.2009) var sagt: … send fréttatilkynning frá Nýja Kaupþing. Átti auðvitað að vera : …frá Nýja Kaupþingi.   Sigraði píanókeppnina, sagði umsjónarmaður Kastljóss við okkur í kvöld (11.11.2009) er hún kynnti efni þáttarins. Aftur og aftur sömu …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 196

Af hverju þurfa umsjónarmenn Kastljóss RÚV  (10.11.2009) að misbjóða mörgum áhorfendum með því að   tala um að   bjóða  fólki á  fitness námskeið  þar sem  fólki er kennt að pósa rétt ? Molaskrifara fannst  þetta efni  lítið erindi eiga í Kastljós.  Umfjöllunin var um  það sem  ég leyfi mér að kalla sjúklega afskræmingu mannslíkamans  og notkun litarefna  til …

Lesa meira »

Óskiljanleg linkind

Sá röggsami embættismaður, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Stefán Eiríksson, lét svo ummælt í fjölmiðlum um daginn, að heimilt væri að senda útlendinga, sem brotið hefðu íslensk lög, úr landi. Til síns heima. Auðvitað á að gera þetta.  Sagt var frá því  í fréttum í dag,  þriðjudaginn 10. nóvember, að fimm manna hópur útlendinga hefði látið greipar sópa …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 195

 Vegagerðin varar við hálkumyndun norðanlands í kvöld, sagði Vefmoggi (05.11.2009) Var ekki bara verið að vara við hálku?  Bjarni Sigtryggsson skrifar: Þegar Stöð 2 og visir.is sögðu skilanefnd hafa eignast meirihluta í skartgripakeðju, datt manni helzt í hug hálsmen. En í ljós kom í fréttum annarra miðla að um var að ræða skartgripaverzlanakeðju. – Molaskrifari hugsaði …

Lesa meira »

Molar um útvarp og fleira 194

 Molaskrifari  hefur að undanförnu jöfnum höndum lesið ýmislegt um kínverska sögu og menningu í aldanna rás og íslenskar æviminningar, einkum frá nítjándu og tuttugustu öld. Meðal annars bækur þar sem tveir gagnmerkir blaðamenn birtu viðtöl við samtímamenn.  Þessir blaðamenn voru Valtýr Stefánsson,ritstjóri og Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, blaðamaður og rithöfundur sem mér auðnaðist að verða málkunnugur. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 193

   Úr frétt í Vefdv (03.11.2009): Er þeir ætluðu að ráðast á Patel sparkaði hann í klof eins árásarmannanna og kýldi hinn með leifturhraða í andlitið þannig að báðir árásarmennirnir fóru í jörðina. Einmitt það. Þeir fóru báðir í jörðina! Á íslensku segjum að hann hafi yfirbugað þá báða eða slegið þá báða niður.Þótt hann …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 192

    Í morgunútvarpi Rásar tvö (04.11.2009) talaði annar umsjónarmanna um kindur með hala. Kannski átti þetta að vera fyndni. Aulafyndni. Í  sama þætti töluðu umsjónarmenn við samstarfsmann sinn eins og svo algengt er hjá RÚV. Það eru hæg heimatökin. Rætt var um veggjöld.  Innanhússmaðurinn, sem rætt var við fullyrti að hvergi í veröldinni væri það svo að …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 191

  Eitt  versta drottningarviðtal, sem Molaskrifari hefur lengi  séð, var viðtalið  við  Gunnar Sigurðsson sem titlaður er leikstjóri og  sýnt  var í Kastljósi kvöldsins (03.11.2009). Gunnar lýsti sig  gjaldþrota. Fallegur spyrjandinn brosti og  brosti en ekki var spurt um neitt, sem máli skipti. Það er  gott að gjaldþrota maður  skuli geta þeyst um heiminn þveran og endilangan til að gera …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 190

  Í morgunfréttum RÚV klukkan átta ( 03.11.2009) var þannig tekið  til orða við upphaf og lok frétta: Þrýstingur vex á Karzai að deila með sér völdum. Fréttin var um stjórnmálaástandið í Afghanistan. Samkvæmt málkennd Molaskrifara er þessi setning ekki rétt. Tveir eða fleiri geta deilt með sér völdum. Einn maður deilir ekki með sér …

Lesa meira »

Lesið á biðstofu læknisins

 Beið í þrjá stundarfjórðunga á læknabiðstofu  í dag  meðan mér nákominn var í læknisrannsókn. Á biðstofunni lá  frammi  svokallað  tekjublað Frjálsrar verslunar frá 2007. Ég  stytti mér  stundir  við að skoða það.   Þaðr  voru  einstaklingar  með  allt upp í rúmlega  60 milljónir  króna í mánaðarlaun.  20-30 milljónir margir,  enn  fleiri milli  10 og  20  milljónir á mánuði …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts