Molaskrifari las athyglisverða frétt á fréttavefnum AMX um umfjöllun annarra fjölmiðla um hin furðuleg milljónalán sem Glitnir veitti ungum börnum til kaupa á stofnfjárbréfum í BYR , sparisjóði, (þessum sem sí og æ gortar af fjárhagslegri heilsu). Samkvæmt því sem AMX skrifar var Viðskiptablaðið fyrst með þessa frétt Stöð tvö fjallaði um málið samdægurs og gat …
Molar um Málfar og miðla 188
Þrátt fyrir góðan ásetning og annir við annað gengur enn fremur illa að fækka bloggpistlum ! Það er til lengdar þreytandi að vera alltaf að klifa á sömu atriðunum hér í þessum Molum um málfar og miðla. En segir ekki einhversstaðar að dropinn holi steininn? Í íþróttafréttum Stöðvar tvö sagði íþróttafréttamaður (30.10.2009) að tiltekið lið …
Molar um málfar og miðla 187
Úr Vefvísi (24.10.209): Betur fór en á horfðist þegar fólkbíll velti ofan í djúpan skurð á Suðurlandsvegi og hafnaði á hvolfi, Hverju velti fólksbíllinn? Velta ,velti,valt, ultum oltið.Hverju velti fólkbíllinn ofan í læk ? Hvað segja Molalesendur um eftirfarandi úr Vefmogga (2. 4.10.2009): Bandarískur karlmaður komst í kast við lögin á mánudag þegar hann hellti …
Molar um málfar og miðla 186
Í hádegisfréttatíma RÚV (24.10.2009)var sagt: … sem er eitt af höfuðvígum… Hér var ruglað saman orðum. Víg er bardagi eða dráp. Vígi er hinsvegar er hinsvegar varnarstaður eða víggirðing. Þágufall fleirtölu af vígi er vígjum (borið fram víjum). Í sama fréttatíma var sagt: Þá fara ekki sögur af… Molaskrifari er vanari því að sagt …
MolAr um málfar og miðla 185
Í Morgunblaðinu segir (23.10.2009): Eiginfjárhlutfall Byrs sparisjóðs er langt undir leyfilegum mörkum eða á bilinu 2-3% samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Hlutfallið þarf að vera a.m.k. 8% samkvæmt lögum….. Er ekki kominn tími að þetta fyrirtæki hætti að bulla í auglýsingum um eitthvað sem það kallar fjárhagslega heilsu? Fyrirtækið er meira en lítið heilsutæpt og er þá …
Vitur eftir á
Þegar þeim sem þetta ritar var skipað í flokk sendiherra í „eldri kantinum“ ,sem væru orðnir of margir, eins og sagt var úr ræðustóli Alþingis, var honum svona sæmilega kurteislega þrýst til að hætta ellefu mánuðum fyrir sjötugt og fékk við starfslok greitt sex vikna ótekið sumarleyfi. Enginn starfslokasamningur þar. Ef ég hefði hinsvegar …
Molar um málfar og miðla 184
Einkennilega var til orða tekið í Fréttablaðinu (22.10.2009) þar sem sagt var frá jeppadekkjum sem eru framleidd í Kína. Þar var sagt að dekkin séu smíðuð í Kína. Mola skrifari á mjög erfitt að sjá fyrir sér hvernig dekk eru smíðuð. Hann hefur meira að segja heimsótt dekkjaverksmiðju í Kína. Þar voru engir smiðir …
Molar um málfar og miðla 183
Umsjónarmaður Kastljóss RÚV (22.10.2009) talaði um Rokkhátíð til heiðurs íslensku sauðkindarinnar. Átti að segja: …. til heiðurs íslensku sauðkindinni. Ríkisútvarpið á ekki að senda svona villur í eyru hlustenda. Hálandavaktin aldrei haft jafnmikið að gera (21..10.2009) sagði í fyrirsögn á Vefvísi. Í fréttinni kom í ljós að verið var að fjalla um hálendisvakt …
Ólátabekkurinn við Austurvöll
þeir sem horfðu á fréttir RÚV í kvöld af umræðum á Alþingi í dag um Icesave hafa örugglega tekið eftir því að formaður Sjálfstæðisflokksins,Bjarni Benediktsson, fékk gott hljóð er hann flutti ræðu sína. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins fékk líka gott hljóð er hann flutti sína ræðu. Þannig á þetta auðvitað að vera á Alþingi …
Molar um málfar og miðla 182
Halló,halló Stöð tvö ! Í fréttum ykkar (21.10.2009) var sagt:…vegna þess fjárhagstjóns,sem málið hefur ollið honum… Hvað á að gera við fólk,sem tekur svona til orða? Ekki láta það koma fram í fréttum, í guðanna bænum. Í fréttum Stöðvar 2 (19.10.2009) var sagt ,.. öll spjót standa að…Rétt er orðtakið: Öll spjót standa …