Molar um málfar og miðla 181

  Fínn þáttur, Hrafnaþing, á ÍNN í kvöld (20.10.2009). Ragnar Önundarson talaði um efnahagsmál af skynsemi og á mannamáli. Hann setti fram athyglisverðar hugmyndir. Ingvi Hrafn spurði réttu spurninganna. Skýrar og góðar glærur. Báðum til sóma. Stjórnvöldum ber skylda til að skoða hugmyndir Ragnars ítarlega. Mæli með að  áhugasamir  horfi á endursýningu þáttarins.   Úr …

Lesa meira »

Fíflagangur á Alþingi

  Í gær og í dag hafa  þingmenn stjórnarandstöðunnar rætt Icesave málið á Alþingi undir   ýmsum  dagskrárliðum, þykjast  til dæmis vera að tala um störf þingsins eða  fundarstjórn forseta. Þegar  kom að því dag  að því að greiða  atkvæði um  afbrigði  frá þingsköpum eins og  alsiða  er að  gera   svo  taka megi málið á dagskrá …

Lesa meira »

Breyting í Hádegismóahöll

 Þegar Bjarni Benediktsson tók við ritstjórn Morgunblaðsins 1956 tók hann ákvörðun um að breyta þingfréttaskrifum blaðsins í þá  veru að sagt  væri  heiðarlega frá  ræðum  þingmanna  annarra flokka. Það hafði ekki  tíðkast í Morgunblaðinu fram að því. Sagt var frá ræðum Sjálfstæðismanna  en  ræðum  þingmanna annarra flokka ekki gerð mikil skil. Þessu breytti Bjarni og á …

Lesa meira »

Molar uym málfar og miðla 180

Í tíu fréttum RÚV (16.10.2009) var sagt… áframhaldandi starf hans sem sóknarprestur á Selfossi. Hefði átt að vera: … áframhaldandi starf hans sem sóknarprests á Selfossi.  Úr Vefdv (17.10.2009): 45 ára gömul kona frá Big Sandy í Texas í Bandaríkjunum hefur verið gert að sæta geðrannsókn eftir að yfirvöld … Hér ætti að standa: 45 …

Lesa meira »

Upphlaup ábyrgðarmannanna

   Fyrir venjulega borgara  með sæmilegt minni er erfitt ,ef ekki útilokað, að skilja gauragang forystu Sjálfstæðisflokksins eftir að nýtt og hagstæðara samkomulag  náðist um Icesave-klúður Sjálfstæðisflokksins.  Davíð Oddsson seðlabankastjóri og  Árni Mathiesen fjármálaráðherra viðurkenndu ábyrgð Íslands í  þessu máli með undirskrift sinni.  Það var í nóvember í fyrra.  Með gildum rökum má segja  að …

Lesa meira »

Er ekki….

hægt að fá þá til að rannsaka  Seðlabanka Íslands líka? Auknar líkur á breskri rannsókn

Molar um málfar og miðla 179

Glöggur hlustandi gerði athugasemdir við málfar íþróttafréttamanna, sem oft niðra lið sem tapa með orðalagi eins að liðið hafi verið svínburstað eða niðurlægt ef munurinn á frammistöðu liðanna er mikill. Ekki er þetta hinn sanni íþrótttaandi , sagði þessi vinur minn. Það er hárrétt. Það er nóg að segja að lið hafi sigrað, unnið tapað …

Lesa meira »

Óviðunandi ?????

  Það er nákvæmlega sama  hver niðurstaða þessa máls   hefði orðið Bjarni og  Sigmundur   hefðu alltaf talið hana óviðunandi.  Flokkar þeirra  bera  þó öllum öðrum meiri ábyrgð á því hvernig komið er fyrir  þjóðinni. Upphaf málsins var þegar  flokkar þeirra gáfu  vinum sínum  ríkisbankana. Þar eru ræturnar.  Það þarf  karlmennsku og kjark  til að  ljúka þessu …

Lesa meira »

Nú reynir á …..

 Nú reynir á hvort  stjórnarstaðan hefur snefil af ábyrgðartilfinningu, eða er bara í sýndar- og hræsnileik. Nú kemur í ljós hvort lýðskrumið eða ábyrgðin verða ofan á.  Fróðlegt verður að sjá. Ekki verður sagt meira að sinni. Icesave-fyrirvörum breytt

Molar um málfar og miðla CLXXVIII

  Úr Vefmogga (16.10.2009): Slökkviliðið kom umsvifalaust á staðinn og hafði ráðið niðurlögum eldsins á innan við 10 mínútur. Eldurinn hafði breiðst út í hálm á túninu og þurfi einnig að slökkvi í því. Við þetta er eiginlega engu að bæta !   Úr Vefdv 16.10.2009): Gunnari sagðist þykja vænt um alla Selfyssinga. Hér ætti …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts