Í Noregi eru þung viðurlög við umferðarlagabrotum. Miklu þyngri en hér á landi. Í vefútgáfu norska blaðsins (16.10.2009) VG er frá því greint að lögreglan hafi stöðvað kunnan lögfræðing á 109 km hraða á vegi þar sem hámarskhraði var 60 km á klukkustund. Lögfræðingurinn var að fara fram úr bíl, sem ók hægar en 60 …
Molar um málfar og miðla CLXXVII
Nýr fréttatími Morgunblaðsins og Skjás eins sá dagsins ljós í kvöld (15.10.2009), ef þannig má að orðið komast. Um fréttatímann er svo sem lítið að segja. Engin straumhvörf. Molaskrifara fannst hinsvegar sviðsmynd og umhverfi fréttaþularins,sem skilaði sínu ágætlega, einstaklega lítið spennandi. Ekki heyrði Molaskrifari betur í fréttum Stöðvar tvö (14.10.2009), en fréttamaður talaði um …
Molar um málfar og miðla CLXXVI
Prestar fylkjast um séra Gunnar, segir í fyrirsögn á Vefdv (14.10.2009). Sögnin að fylkjast er ekki til í íslensku. Hér hefði fyrirsagnarhöfundur átt að skrifa: Prestar fylkja sér um séra Gunnar. Það er góð og gild íslenska. Það var einkennilegt orðalag í fréttum Stöðvar tvö (14.10.2009) , þegar sagt var að tiltekinn rafmagnsbíll hefði farið …
Molar um málfar og miðla CLXXV
Í fyrirsögn í Vefmogga (14.10.2009) segir: Prentsmiðja lokar og vikublað hættir útgáfu. Ekki er mikilli móðurmálskunnáttu fyrir að fara hjá höfundi þessarar fyrirsagnar. Hverju lokaði prentsmiðjan? Hvaða útgáfu hætti vikublaðið? Réttara hefði verið: Prentsmiðju lokað og útgáfu vikublaðs hætt.Litlar kröfur um fagmennsku hjá Mogga þessa dagan. Auglýsingar sækja að okkur úr öllum áttum. Allsstaðar. Molaskrifari …
Einkennileg gagnrýni og vanheilagt bandalag
Undanfarið hefur ekki linnt gagnrýni á íslensku utanríkisþjónustuna. Margir hafa sagt að nýta bera nútímasamskiptatækni betur og megi að skaðlausu leggja niður mörg, ef ekki öll, sendiráð lýðveldisins. Svo bregður svo við þegar forsætisráðherra okkar sendir forsætisráðherra Noregs tölvupóst, þar sem sá síðarnefndi er í miðjum stjórnarmyndunarviðræðum, til að spyrja einfaldra spurninga um ómerkilegt …
Molar um málfar og miðla CLXXIV
Vinsamleg ábending til fréttastofu RÚV: Togbátur er ekki dráttarbátur eins og sagt var í hádegisfréttum (12.10.2009). Togbátur er fiskiskip,sem veiðir með botnvörpu, sem skipið dregur eða togar á eftir sér. Togbátur, eða trollbátur eins og áður var sagt ,er minni en togari.. Dráttarbátur er skip sem er hannað til þess að draga önnur skip …
Molar um málfar og miðla CLXXIII
Það var gaman að sjá og heyra Karlakór Reykjavíkur syngja í Alþingishúsinu í lok RÚV sjónvarpsfrétta (10.10.2009).Flottur endir á fréttatíma á laugardagskvöldi. En það var subbulegt í meira lagi að klippa á söng kórsins í miðri tónhendingu og skella auglýsingastefinu inn á fullum hljóðstyrk. Annaðhvort hefði átt að deyfa sönginn niður eða klippa á hljóðið …
Molar um málfar og miðla CLXXII
Það hefur verið mikið um óveðursfréttir í öllum miðlum undanfarinn sólarhring. Það er mikill vindhraði hér núna ,sagði fréttamaður RÚV (09.10.2009) sem staddur var á Kjalarnesi. Betur hefði Molaskrifari kunnað að meta ef fréttamaður hefði til dæmis talað um mikið hvassviðri eða ofsarok. Í Vefmogga (09.10.2009) var sagt að vindmælir undir Hafnarfjalli væri bilaður og vegfarendum …
Molar um matreiðsluþátt
Matreiðsluþáttur Jóhönnu Vigdísar í kvöld (08.10.2009) var ágæt tilbreyting. í dagskránni,- yfirlætislaus og einfaldur að allri gerð. Dæmi um gott og ódýrt dagskrárefni. Jóhanna Vigdís skilaði sínu prýðilega. Sem áhugamaður um eldamennsku vill Molaskrifari þó gera nokkrar athugasemdir,- vel meintar. Hversvegna nota ýsu ? Ýsan er alls ekki besti matfiskurinn. Í gamla …
Molar um málfar og miðla CLXXI
Skemmtileg frétt hjá RÚV (08.10.2009) um sykurskreytingar rússnesk/íslenskrar konu sem voru sannkölluð listaverk. :Það bætti hinsvegar ekki fréttina að fréttamaður skyldi tala um tvö verðlaun. Þeir sem segja fréttir í þjóðarsjónvarpinu verða að kunna grundvallarreglur tungunnar. Verðlaun er fleirtöluorð. Þess vegna átti að segja: Tvenn verðlaun. (forseti lýðveldisins hefur reyndar flaskað á þessu sama) Verslanakeðjan Krónan …