Molar um málfar og miðla CLXX

  Fleiri fréttir frá Færeyjum ! Gaman var að sjá myndir úr leitum og smölun í Færeyjum í fréttum RÚV (07.10.2009). Við þurfum að frétta fleira frá Færeyjum. Líklega hafa tugir þúsunda Íslendinga einhverskonar tengsl við Færeyjar. Vinur minn færeyskur sendi mér tölvupóst fyrir nokkrum dögum og þar sagði hann: Eg fór suður til Sumbiar at …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLXIX

     Icesave í hnetuskel , skrifar Moggabloggari (06.10.2009). Þetta er aulaþýðing úr ensku. Á íslensku  ætti  eftir málvenju að segja: Icesave í hnotskurn.   Þjóðarútvarpið RÚV heldur áfram að fara á svig við lög og misbjóða stórum hópi eigenda sinna. Nú fylgir auglýsing um Tuborg bjór  nýrri danskri þáttaröð um Trúðinn. Tuborg kostar sýningu þáttanna að …

Lesa meira »

Molar um málfar og miða CLXVIII

  Það var órökrétt orðalag þegar sagt var i fréttum Stöðvar tvö ( 05.10.2009) um bréfaskriftir forseta Íslands til þjóðhöfðingja í þágu útrásarvíkinga að forsetinn segðist: … engin bréf hafa skrifað nema  eitt.  Rökrétt hefði verið að segja:.. að forsetinn segðist aðeins hafa skrifað eitt bréf, eða ekki hafa skrifað nema eitt bréf. Setningin: Engin …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLXVII

   Molaskrifari leyfir sér í allri þeirri neikvæðu umræðu, sem átt hefur sér stað undanfarið um sendiráð Íslands, að vitna í eftirfarandi ummæli Nínu Margrétar Grímsdóttur,píanóleikara,sem nýkomin er úr velheppnaðri tónleikaferð til Kína (Morgunblaðið 4.10.2009): Sendiherra Íslands í Kína hefur verið óþreytandi að kynna íslenska menningu, ekki síst tónlist, enda ágætur píanóleikari sjálfur… Hún segir Gunnar …

Lesa meira »

Molar um miðla og málfar CLXVI

  Úr Vefmogga (02.10.2009) : .. stærstu einstöku mannvirkjaframkvæmd Íslandssögunnar er nú lokið eftir sex ára framkvæmdir. Þessi setning hlýtur að teljast með helstu gullkornum Moggans. Mannvirkjaframkvæmd!   Meira úr Vefmogga (03.10.2009): Fram kemur á vef BBC að bilunin hafi komið upp kl. 8 að staðartíma og ollið töfum víða á Bretlandseyjum, Sögnin að velda …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLXV

    Gaman var að sjá Færeyinga og heyra færeysku í fréttum RÚV sjónvarps (01.10.2009). Tungumál granna okkar mætti gjarnan heyrast oftar með fréttum af því sem þar er að gerast. Samantekt fréttastofu RÚV um hrunið fyrir ári var prýðileg. í alla staði. Ríkisútvarpið verður að svara því hversvegna netföng starfsmanna eru ekki aðgengileg á Netinu. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLXIV

Safnað fyrir Kyrrahafseyjum,segir í fyrirsögn á Vefmogga (30.09.2009). Þessi fyrirsögn er út í hött. Ekki stendur til að kaupa Kyrrahafseyjar. Að safna fyrir einhverju er að aura saman fyrir einhverju eða spara fyrir einhverju. Það er ekki verið að safna fyrir  eyjum. Það er verið að safna fé til hjálpar fólki á  Samóaeyjum í Kyrrahafi …

Lesa meira »

Þjóðstjórnarþvælan

Forsendan fyrir myndun þjóðstjórnar, eða stjórnar allra flokka, er sú að flokkarnir séu sammála um afstöðu og aðgerðir gegn sameiginlegu verkefni eða sameiginlegum óvini. Í Bretlandi var mynduð þjóðstjórn gegn sameiginlegum óvini,- Þýskalandi Hitlers.   Hér á landi er engin samstaða með flokkunum um aðgerðir gegn afleiðingum hrunsins,sem tveir flokkanna bera höfuðábyrgð á.   Þjóðstjórn …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLXIII

 Eftirfarandi stendur í Vefdv (29.09.2009): Þær höfðu sætt ofsókna í tíu ár. Undarleg og illskýranleg ambaga. Þær höfðu sætt ofsóknum í tíu ár. Meira úr Vefdv: …eyddi að minnsta kosti 331 dag í að skoða klám á tölvunni … Rétt væri : …eyddi að minnsta kosti 331 degi í að…  Af vef RÚV (29.09.2009): Nýjum …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLXII

Stúlkan hlaut stungusár á brjóstkassa.,  segir á vef RÚV (27.09.2008). Af hverju ekki að segja eins og var stúlkan var stungin í brjóstið? Í tíu fréttum RÚV sama dag var fjallað um þá sem missa atvinnuleysisbætur vegna svika og pretta. Sagt var að þeir dyttu af bótum. Þetta orðalag er barnamál sem ekki á heima …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts