Molar um málfar og miðla CLXI

  Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokks líst illa á .. sagði fréttamaður RÚV í hádegisfréttum (217.09.2009). Er það ekki ótrúlegt að þurfa að hlusta á svona ambögur í þjóðarútvarpinu.  Engar kröfur um gott málfar, eða hvað ? Þarna átti  fréttamaður að nota þágufall. Höskuldi Þór Þórhallssyni þingmanni Framsóknarflokks líst illa á… Mér líst illa á. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLX

  Molar CLXRíkisútvarpið heldur áfram að leggja íslenskri tungu lið. Bröns á sunnudaginn, Hótel Hérað. Þannig hljóðaði auglýsing ,sem Ríkisútvarpið flutti okkur hlustendum (26.09.2009). Hótel Loftleiðir byrjaði að auglýsa þessa  smekkleysu. Nú glymur þetta í eyrum kvölds og morgna. Það er atlaga gegn tungunni að festa þetta orðskrípi, þessa slettu, í sessi. Samtímis er svo …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLIX

   Það er fínt hjá fréttastofu RÚV að rifja upp atburði í aðdraganda hrunsins í fyrra. Það rímar líka ágætlega við það sem er að gerast þessa dagana.    Líklega er Ríkisútvarpið eini fjölmiðillinn,sem er svo vel í stakk búinn að hafa sérstakan slúðurfréttaritara á vesturströnd Bandaríkjanna. Mikilvægt er fyrir okkur hlustendur að geta fylgst …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLVIII

Það var drottningarsvipur yfir viðtali Sigmars  við Óskar Magnússon (24.09.2009) í Kastljósi. Sigmar getur gert miklu betur en þetta.  Með ólíkindum var umfjöllun Kastljóss um Ragnar Önundarson. Reynt  var að rýja hann öllu trausti og honum ekki gefinn kostur á að verja sig. Man varla  eftir að hafa heyrt  nafngreindan einstakling tekinn fyrir með þessum hætti án þess að honum gæfist …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLVII

 Ríkisútvarpið á það til að misbjóða hlustendum með ýmsum hætti, þótt margt sé þar auðvitað ágætlega gert. Í morgunþætti  Rásar tvö (23.09.2009) skoðuðu umsjónarmenn dagblöðin og frétt á  forsíðu Morgunblaðsins um sendiráð Íslands í Japan varð þeim  tilefni til nokkurra orðaskipta.    Skemmst er frá því að segja að samtalið einkenndist af fáfræði og fordómum um utanríkisþjónustu lýðveldisins og íslensk sendiráð. Raddblærinn sagði sitt um skoðun umsjónarmanna á …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLVI

 Munir úr Pourquoi pas? ráku á land,  sagði fréttamaður RÚV í  sjónvarpsfréttum  (22.09.2009). Hann hefði átt að  segja: Muni úr  Pourquoi pas? rak á land. Ambögudeildin á  fréttastofunni er í vexti.  En hvernig má það annars ver að erlent skip  skuli geta verið  nánast uppi í landsteinum vestur við Mýrar líkast til í nokkra  daga án þess …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLV

Merkilegt fyrirbæri Útvarp Saga. Þar vellur bullið oft fram í stríðum straumum. Nú vill útvarpsstjórinn fá utanþingsstjórn. Mikill barnaskapur er að halda að það breyti einhverju.Vill líka skipta út öllu þingliðinu. Víst er ekki valinn maður í hverju rúmi á Alþingi og hefur aldrei verið. En það eru kjósendur sem velja menn til setu á …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLIV

 Gott Silfur Egils (20.09.2009).   Ágæt umræða. Prýðisþýðing á  viðtali við  formann loftslagsnefndar Sþ.  Kastljósi  RÚV hrakar hinsvegar  með hverjum þætti. Þar þarf að að breyta. Þau  Sigmar og Þóra  klikka ekki í Útsvari,sem er með allra  besta  efni  RÚV.   Meðal annars vegna þess að  allir sem á horfa verða óbeinir þátttakendur í keppni liðanna. Fréttaauki Elínar …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLIII

  Jákvæð og athyglisverð er  fréttin um að norskur fjárfestir ætli  að leggja  1400 milljónir í MP  banka. Hann kom hingað upphaflega  fyrir  tilstilli  landa síns  Sven Haralds Øygards, sem tímabundið  gegndi  stöðu   seðlabankastjóra.  Muna menn, að  Sjálfstæðismenn  fundu honum  það  til foráttu, að hann talaði ensku með norskum hreim? Fyrrverandi  formaður Sjálfstæðisflokksins  taldi líka …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CLII

 Það er eftirsjá að  Ólafi Stephensen úr ritstjórastóli Morgunblaðsins. Ólafur  er fagmaður, góður fagmaður og var á réttri leið með  blaðið. En hann var  nýjum eigendum ekki þóknanlegur. Það er  hinsvegar mikið  veikleikamerki hjá  nýjum eigendum  að hafa ekki   samdægurs tilkynnt hver taki við  starfi Ólafs.  Magnað hvað menn eiga  erfitt með orðið  fé. Kunnur  …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts