Brandari ársins !

Lokasetning fréttatilkynningar þingflokks Sjálfstæðisflokksins  hlýtur að vera  brandari ársins: En þingflokkur Sjálfstæðisflokksins mun eftir sem áður vinna af heilindum og málefnalega að þeim úrlausnarefnum sem fyrir liggja með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Hafna því að hafa rofið trúnað

Enn einu sinni…

….hefur fagmennsku verið fórnað á altari þröngra sérhagsmuna hinna  fáu. Ólafur lætur af starfi ritstjóra

Molar um málfar og miðla CLI

 Ágætis aukablað um sögu Hagkaups  fylgir  Morgunblaðinu (17.09.2009). Saga þessa fyrirtækis  err  stórmerk og  sorglegt til þess að  vita  hvernig  glannaskapur hefur nú leitt  fyrirtækið í  fjárhagslegar ógöngur. Var það ekki   Vilmundur Gylfason  sem  sagði að  Pálmi í Hagkaup   hefði bætt kjör launþega á Íslandi meira en verkalýðsforingjum  hefði  tekist? Orð að sönnu  Saga  Hagkaups …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CL

 Áskorun  forsetans stóð á  skjánum í RÚV  sjónvarpsfréttum (16.09.2009) með mynd  af Obama.Fyrst  hélt molaskrifari  að Obama hefði verið að skora á einhvern. Nei ,verið  var að  fjalla um erfið og ögrandi verkefni í heilbrigðismálum  sem  bíða úrlausnar.   Hef aldrei  getað sætt  mig   við að  enska orðið  challengesé alltaf þýtt áskoruná íslensku. Nú ætlar  fulltrúar …

Lesa meira »

Sölufrekja DV

 Í kvöld var hringt  heim tíl mín og  spurt eftir mér með nafni. Í símanum var  ungur maður  svo kumpánlegur að það  var eins og hann væri  að tala  við yngri  bróður sinn eða mann sem hann hefði  þekkt í  fimmtíu ár  eða  svo.  Erindi hans  var að  bjóða mér áskrift að  DV með  sérstökum …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXLIX

 Tækju á móti sendinefndinni opnum örmum,  sagði fréttamaður í  sjö fréttum RÚV sjónvarps(12.09.2009). Þetta  er auðvitað ekki  rangt, en   Molaskrifara hefði þótt  fallegra að  segja: Tækju sendinefndinni opnum örmum. Í sama  fréttatíma  var sagt: lesa sig í gegnum skýrslu, betra hefði verið að segja: Lesa skýrslu. Í fréttum  Stöðvar tvö var  sagt frá öflugri öryggisgæslu …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXLVIII

 Á Bolungarvík,sagði  fréttaþulur  RÚV sjónvaps (10.09.2009) í  tíufréttum. Þeir  Bolvíkingar ,sem Molaskrifari þekkir, segja  í  Bolungarvík, jafnvel bara í Víkinni. Hvað  segja lesendur Mola ? Hún er háskalega smitandi nútíðar-nafnháttarsýkin. En þessi ríkisstjórnin er ekki að standa sig. Þetta skrifar bloggari, (10.09.2009)   hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður. Hann ætti að vita  betur.  Það  er óþarft …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXLVII

„Stundum eyðileggur fólk líka bara fyrir sér sjálft, þegar það firrist við að svara eðlilegum fyrirspurnum blaðsins,“  segir  bloggari  í Vefdv (08.09.2009). Molaskrifari hefur aldrei heyrt orðatiltækið að  firrast við.  Nafnorðið firra  er  fjarstæða  eða  vitleysa. Sögnin að firra  þýðir að   svipta einhvern einhverju  eða  losa einhvern við eitthvað. Miðmynd  sagnarinnar að  firrast  er að  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXLVI

Ekki linnir aðilafárinu í fjölmiðlum. Þetta er úr Vefmogga  (08.09.2009): Tveir erlendir aðilar á miðjum aldri.. ..  Af hverju ekki tveir útlendingar á miðjum aldri ?  Mennirnir  voru fullir og  höfðu klifrað upp  í turn Hallgrímskirkju og tekið  til  við  að  slá í kirkjuklukkurnar. Á vef RÚV  er  þessi frétt einnig, en þar er talað um …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla CXLV

 Í fréttum Stöðvar  tvö (07.09.2009) af ferjuslysi  við  Filippseyjar var  sagt  skipið  tók að hallast.  Það er  gott og gilt orðalag, en lakara  var að  heyra í  sömu  frétt að skipið  hefði   skyndilega  byrjað að hallast á  hliðina. Í  RÚV  sjónvarpsfréttum var  fjallað um bát sem  sökk      á Ohrid vatni undan  strönd Makedóníu. Þar var sagt:  …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts