Gamalt slagorð Toyota á Íslandi er Toyota – tákn um gæði. Þessa dagana fer ekki mikið fyrir gæðum í orðavali fyrirtækisins í auglýsingum. Fyrirtækið gerir ekki miklar kröfur til þeirra sem hanna auglýsingar þess. Mannhæðarhátt upplýst auglýsingaskilti með orðskrípinu “smælaðu” blasir við öllum sem aka suður Kringlumýrarbraut/Hafnarfjarðarveg. Skiltinu hefur verið komið fyrir á þaki …
Viðkvæmt mál
Í athugasemd við ótrúlega ósmekkleg skrif Þráins Bertelssonar á Eyjunni lýsti ég þeirri skoðun að makalaust væri að þar skyldi halda um penna maður, sem væri í heiðursritlaunaflokki Alþingis. Ummæli Þráins um veikindi Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar voru fádæma ósmekkleg. Ekki síður var það sem hann skrifaði um Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fáséður ritsóðaskapur. …
Brennuvargar og barnamótmæli
Tiltölulega fámennur hópur hasarfíkla kemur óorði á mótmæli, sem annars væru friðsamleg. Þetta er samskonar lið og á árum áður taldi öllu mikilvægara að kveðja gamla árið með því að slást við lögregluna í Reykjavík.Það er nú sem betur fer liðin tíð. Á mannamáli eru það auðvitað ekkert annað en skrílslæti þegar brennuvargar taka sér bólfestu …
Af hverju misskilja allir Ólaf Ragnar ?
Breska Ríkisútvarpið BBC er þekkt fyrir að misskilja allt milli himins og jarðar og geta yfirleitt ekki farið rétt með nokkurn skapaðan hlut. Nú berast þær fregnir af forsetaskrifstofu lýðveldisins, að BBC hafi misskilið Ólaf Ragnar Grímsson svo að með ólíkindum er. Hann hafi alls ekki sagst ætla að höfða mál gegn bresku þjóðinni, sem menntaði …
Málfar !
Enn eru viðvaningar látnir æfa sig í að skrifa fréttir fyrir lesendur mbl.is Það er íslensk málvenja að segja að ganga að kjörborðinu, ekki „kjörborðunum“. „Kjósa til ritara“ ? Af hverju ekki kjósa ritara ? Þriðja og síðasta athugasemdin við þessa stuttu frétt er að talað er um „hinar ýmsustu ályktanir“. Þetta er málleysa , – …
Úrelt fyrirbæri Evróvisjón
Evrópusöngvakeppnin er löngu úrelt fyrirbæri. Tónlistin er einsleit og hefur lengi verið. Umgjörðin alltaf sú sama. Það segir mikið um þessa dagskrárgerð, þegar það er orðið fjölmiðlum áhugaverðara hverju þeir sem kynna lögin klæðast, fremur en hvað er verið að að kynna. Þær ágætu ,en alltof notuðu sjónvarpskonur, Eva María og Ragnhildur Steinunn voru eins …
„Óumflúið“ hvað
Mín mín málkennd segir mér að orðið „óumflúið“ sé ekki til í íslensku. „Óumflúið að Gæslan segi upp“. Þetta er ambaga, málleysa. Sá sem fréttina skrifaði á við, að uppsagnir hjá Landhelgisgæslunni hafi verið óhjákvæmilegar eða óumflýjanlegar. Seinna orðið er reyndar svolítið andkannalegt í þessu samhengi. Þá segir og í fréttinni að Gæslan hafi þurft …
Sigurður Kári og Ólafur Ragnar
Rétt er að vekja athygli á ágætri grein Ólafs Sigurðssonar fyrrverandi varafréttastjóra Sjónvarps á bls. 28 í Fréttablaðinu í dag þar sem Ólafur vekur athygli á furðulegri fullyrðingu alþingismannsins Sigurðar Kára Kristjánssonar. Þingmaðurinn sagði í útvarpsþætti nýlega, að á fyrstu árum Sjónvarpsins hefðu ráðherrarnir samið spurningarnar fyrir okkur fréttamennina. Nú veit ég ekki alveg …