Enginn ágreiningur – Ágreiningur

  Makalausa framsetningu  á þessu máli mátti   sjá í fréttum  RÚV í kvöld. Meðan útvarpsstjóri  las  skýrt og  greinilega , að enginn ágreiningur  væri í ríkisstjórn um málið, birtist  texti á  skjánum: Ágreiningur um Gaza. Þetta  eru ekki þau  faglegu  vinnubrögð sem vegsömuð  eru  í auglýsingu  RÚV um eigið ágæti.   Ekki ágreiningur í ríkisstjórn

Dylgjufréttamennska – „Látum þá neita því“

 Undanfarna  daga  hefur maður orðið  vitni að sérkennilegri  dylgjublaðamennsku Fréttastofu Ríkisútvarpsins.  Fyrst koma   fullyrðingar um  óviðurkvæmileg eða jafnvel ólögleg  afskipti þeirra   Tryggva Jónssonar  og Helga Jóhannessonar  af  sölu  fyrirtækja. Þetta er  sagt í fréttum  og því  fylgt  eftir í Kastljósi. Tryggvi og  Helgi  skýra  sín mál, en áfram  er haldið. Svo  koma  seinna  skýringar þeirra  …

Lesa meira »

Undan huliðshjálmi – Sólskinsdrengurinn

Einhverfa var mér ekki  merkingarmikið orð, — fyrr en í kvöld..Heimildamyndin Sólskinsdrengurinn fer með okkur í ferðalag á slóðir, sem ég  vissi ekki að væru til. Einhverfa getur verið  margrar gerðar og haft í  för með sér mismikla  röskun.   Í þessari  stórkostlegu mynd  sjáum við  hvernig  þrautseigja, þolinmæði ,-  og móðurást  lyfta huliðshjálminum,  opna  …

Lesa meira »

„Með leiðindi“

Sumarið  1957  starfaði ég sem  bílstjóri hjá  Innkaupaskrifstofu Varnarliðsins.Skrifstofan var í Tryggvagötu 8.  Starfið  fólst í útréttingum og nær  daglegum ferðum  til Keflavíkur  eftir gamla malarveginum. Þegar ég tók við  bílnum   ,sem  var blár að lit  eins og aðrir  bílar  flughersins og   merktur   flughernum og  Varnarliðinu í bak og  ftyrir  var lögð  rík áhersla á það  …

Lesa meira »

Ekki staðkunnugur

„Tíu tonna bátur sem strandaði í innsiglingunni við Garð í Gerðahreppi „. Hér  hefur sá sem skrifaði  fréttina  ekki rætt  við  staðkunnugan mann og þekkir er  ekki til  staðhátta  sjálfur.  Það er  ekkert til sem  heitir innsiglingin  „við Garð  í Gerðahreppi“. Gæti báturinn hafa  strandað  á Gerðahólmanum á leið  að  bryggjunni í Gerðum í  sveitarfélaginu …

Lesa meira »

Misnotkun

Misnotkun á börnum er með ýmsum hætti. Við  sáum  eina  mynd  misnotkunar í fréttum í kvöld er átta ára stúlka  flutti  ræðu á  Austurvelli , –  ræðu sem hún viðurkenndi að faðir hennar hefði  hjálpað henni að semja. Það ætti að varða  við lög að nota  börn  með þessum hætti. Alveg sama hver málstaðurinn er. Þetta …

Lesa meira »

Afeitrun við Mývatn

Það er  góðra gjalda vert að hleypa  af stokkunum  nýjum verkefnum á landsbyggðinni eins og  athafnakonan Jónína Benediktsdóttir er  að gera við Mývatn.  En hversvegna  að kalla  það sem þarna verður í  boði “Detox”?  Þessi  sletta er stytting á  enska  orðinu  “detoxification”, en   það  heitir  á íslensku  afeitrun, gegnsætt orð og  gott.  Er ekki  tilgangurinn …

Lesa meira »

Ekki ein báran stök

Hay-Adams hótelið í  Washington DC   er ekki sögulegt. Það er  hinsvegar  sögufrægt, — sem er allt  annað. Hvar er móðurmálskunnáttanna, ágætu Moggamenn?

Óvígður Obama

Bandaríkjaforsetar eru ekki vígðir. Biskupar eru vígðir. Bandaríkjaforsetar sverja embættiseið. Styttist í embættistöku Obama

Aulafyndni á Austurvelli

Fréttatímar eiga að vera fréttatímar, –   ekki vettvangur   fyrir aulafyndni fréttamanna. Stutt  er síðan fréttamaður RÚV stóð á  Austurvelli og át  harðsoðið  egg. Þetta átti að vera  fyndið   af því að mótmælendur  höfðu kastað  eggjum   í  Alþingishúsið daginn áður. Þetta var hinsvegar  bara bjánalegt. Í gærkveldi   féll annar fréttamaður   RÚV  í þessa  sömu gryfju ,,— á  …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts