Einkennileg tilfinning

Það er einkennileg  tilfinning  sem  fylgir þvi að horfa á   grímuklæddan einbeittan  íslenskan  ungling maska  hverja  rúðuna á  fætur annarri og  valda  tugþúsunda  ef ekki hundruð þúsunda   tjóni. Álengdar stendur lögreglan og hefst  ekki að. Kannski var það skynsamlegt. Reynslan sýnir að þeir sem  voga  sé að blaka  við þessum  svokölluðu  mótmælendum eiga á hættu …

Lesa meira »

„Að versla bók“ og „kolsvört ástarsaga“

Ósköp er hvimleitt  að heyra kvöld  eftir  kvöld  stagast á því í auglýsingu frá  fyrirtækinu sem heitir því rammíslenska  nafni „Office 1“   að „versla  bók“. Þetta er  málleysa.  Mér þykir  ólíklegt  að þeir sem unna íslenskri tungu geri  sér  ferð í þessa  verslun   til að kaupa bók, enda þótt  þar sé  verslað með  bækur. Einkennilegt …

Lesa meira »

Að sökkva tönnum – Yalu -Yellow

Um  daginn var spurt  hér  hvaðan orð úr  bókarauglýsingu  væru komin.  Talað  var um að  lesendur  gætu  ekki“beðið   eftir að sökkva  tönnunum í meira“.  Svarið  við þessu  er  einfalt.  Þetta  er aulaþýðing   ensku. Á íslensku    getur maður  sökkt  sér  niður í  bók  eða  verið niðursokkinn í lestur. En það  er ´ ekki   góð  íslenska  að   tala um …

Lesa meira »

Það var og !

Netabáturinn fékk færið í skrúfuna. Þekking á  undirstöðuatriðum í  helstu atvinnugreinum  þjóðarinnar er ekki til  staðar á  ritstjórnum.  Næst  fær  líklega  handfærabátur  netin í skrúfuna. Svo  getur  línubátur líklega  fengið  trollið  í  skrúfuna! Fékk færið í skrúfuna

Hvað kostar svo vitleysan?

Ríkisútvarpið berst í bökkum.  Það  segir upp  fólki. Dregur  svo uppsagnir  til baka.  Það  tikynnir  lokun svæðisútvarps á landsbyggðinni.  Fellur  svo þeirri  ákvörðun . Svæðisútvarp  verður  rekið  áfram. Það  gefur  auga leið að þessar   ákvarðanir hafa ekki verið mjög  vandlega undirbúnar. Eftir  að hafa  horft  að hluta  til (gafst  eiginlega upp) á  þáttinn   Gott kvöld á …

Lesa meira »

Var fleirum brugðið ?

 Mér var verulega brugðið er ég  hlýddi á  sjónvarpsfréttir áðan.  Sagt var frá því að  Davíð Oddsson seðlabankastjóri   hefði mætt á  fund  þingnefndar í morgun „í fylgd lögreglu og lífvarða“. Hvar erum við eiginlega stödd?   Við höfum fram  til þessa  státað okkur  af því að hér  séu ráðamenn óhultir á almannafæri, andstætt því sem er  í  …

Lesa meira »

Auglýsingar á aðventu – Einkamálin markaðsvara

Það er  gaman að  fylgjast með  bókaauglýsingunum  á skjánum og í  blöðunum  núna  þegar   bókavertiðin er að hefjast. Þær  eru auðvitað  eins misjafnar og þær  eru margar. Allt í einu  hefur  skotið upp kollinum  tískuorð,sem ég  minnist ekki  að hafa séð   áður í bókaauglýsingum. Þetta  er  orðið þéttur og  samsetningar þar sem það er  notað.  …

Lesa meira »

Röng og villandi auglýsing

 Hér  hefur  stundum verið  vikið  að  auglýsingum. Eftirfarandi má lesa á heimasíðu  bókaútgáfunnar Veraldar í dag:„30. 11. 2008Óþekkt alþýðukona skekur forsetabók– Brýtur auglýsing um bókina lög sem forsetinn skrifaði undir?Í Morgunblaðinu í dag segir í auglýsingu um Sögu af forseta eftir Guðjón Friðriksson að bókin sé „mest selda ævisagan á Íslandi“. Þetta er rangt og …

Lesa meira »

Svo bregðast…..

Svo bregðast krosstré sem önnur tré.  Ótrúlegt að að  hið gamalsterka Morgunblað og  Árvakur  skuli nú   glíma  við  erfiðustu  fjárhagskreppu  frá upphafi. Þegar sá sem þetta rritar var að byrja í blaðamennsku  snemma  á  sjöunda  áratug  síðustu  aldar  voru  þeir sem  réðust til   Mogga  taldir   hólpnir, —  fjárhagslega  hólpnir. Mogginn   sagði  fólki ekki upp. Í …

Lesa meira »

Misskilningur og rangnefni

Það er misskilningur hjá Mbl.is að  samtökin  sem kalla  sig PETA  séu  dýraverndarsamtök. Þetta  eru  margdæmd umhverfishryðjuverkasamtök ,sem  staðið hafa   fyrir stórfelldum  skemmdarverkum,  innbrotum  og  íkveikjum og  oftlega stofnað mannslífum í hættu. Í eigin skinni á Lækjartorgi

Older posts «

» Newer posts