Forvitnilegt væri að heyra um afstöðu Blaðamannafélags til þess er félagsmaður tekur ófrjálsri hendi efni sem aldrei hefur verið sýnt og notar til að ná sér niðri á stjórnmálamanni. Blaðamannafélagið hefur látið til sín heyra af minna tilefni. Eitthvað kynni Vegagerð ríkisins líka að hafa að segja um málið en er það ekki svo að …
Kampavín Kvenréttindafélagsins í kreppunni !
Gaman væri að heyra hvað fólki finnst um það framtak Kvenréttindafélags Íslands að efna til víndrykkju um miðjan dag fyrir framan norska sendiráðið í tilefni af tiltekinni samþykkt norska Stórþíngsins. Kvenréttindafélagið er greinilega vel statt fjárhagslega fyrst það á fyrir kampavíni eða freyðivíni í kreppunni ,sem nú bitnar hart á mörgum íslenskum heimilum. Mér finnst …
Jólabókin í ár ?
Rak nefið inn í bókabúð í Reykjavík í gær. Þar voru meðal annars á boðstólum ýmsar leiðbeininga- og sjálfshjálparbækur. Þar á meðal þýdd bók eftir ofurfjárfestinn Warren Buffet. Það hefði kannski dugað að vitna í fræg ummæli hans er hann var beðinn um leiðbeiningar fyrir fjárfesta. Hann á að hafa svarað: Buy low, sell high. Með …
„Framtakið heillaði mig“
Alþingismaður skrifar: „Var staddur á Austurvelli í gær þegar Bónusfáninn var dreginn að húni á þaki Alþingishússins. Þó svo að lögbrot við mótmælaaðgerðir heilli mig sjaldan þá sé ég enga ástæðu til að liggja á því að framtakið heillaði mig“. Hvað var svona heillandi við það að vanvirða þinghúsið? Vonandi er Bjarni Harðarson eini alþingismaðurinn …
Blessunin hún Björk !
Blessunin hún Björk er sannarlega óþreytandi að segja okkur til um eitt og annað. Jafnan er rithöfundurinn geðþekki (eins og nú er í tísku að segja um alla) Andri Snær við hlið hennar, svona til trausts og halds, ef svo ólíklega vildi til að hún þyrfti á hjálp hans að halda, eða henni yrði orða …
Ekki starfsmannastjór
Orðið starfsmannastjóri hefur skýrt afmarkaða merkingu í atvinnulífinu og í íslensku máli. Á ensku er hér verið að tala um "chief of staff" í Hvíta húsinu. Það er að segja yfirmann alls starfsliðs forsetans í Hvítahúsinu. Rahm Emanuel er ekki frekar starfsmannastjóri en "General Staff" var Staff hershöfðingi í Mogga í gamla daga. Obama …