Get ekki orða bundist. Var að horfa á auglýsingu um ágæti íslenska lambakjötsins. Ábyrgðaraðili auglýsingarinnar er vefsvæðið lambakjot.is Að baki því standa væntanlega íslenskir bændur. Boðskapur þessarar auglýsingar er skelfilegur, en kannski er hann bara tímanna tákn. Það er verið að segja fólki að það sé í lagi að ljúga og svíkja til að hafa …
Merkileg umræða
Hún er merkileg umræðan um mynt fyrir okkur Íslendinga. Hver ágætismaðurinn af öðrum hefur sagt að við eigum að taka upp evru án inngöngu í ESB. Hver leiðtoginn á vettvangi ESB af öðrum hefur sagt við okkur að það sé ekki mögulegt. Samt er haldið áfram að tala um að taka upp Evru án þess …
Einstakt vinarbragð
Færeyingar hafa sýnt það aftur og enn hvern vinarhug þeir bera til okkar Íslendinga. Tilboð þeirra um lán er mikið drengskaparbragð.Þeir sýndu líka í verki hvernig þeir hugsa til okkar bæði í Vestmannaeyjagosi og þegar snjóflóðin féllu á Flateyri og í Súðavík. Færeyingar eru kannski smáþjóð, en þeir eru smáþjóð með stórt hjarta. Umræðan um …
Fiskabúrin í Pyongyang
Í bókinni Fiskabúrin í Pyongyang sem upphaflega kom út á frönsku árið 2000 eru hrikalegar lýsingar á tíu ára dvöl í í norður kóreska gúlaginu. Bókin er lýsing á ævi Kang Chol-Hwan og fjölskyldu hans sem fóru frá Japan í "sæluna" í Norður Kóreu. Bókin er skrifuð í samvinnu við Pierre Rigoulot. Fróðleg en óhugnanleg …
Einstök snilld á dv.is
Ekki verður annað sagt en þessi stutta klausa á dv.is í dag sé hrein snilld : Við þurftum að kalla út sérsveit sem sér um hættuleg eiturefni. Okkar menn náðu að stöðva lyktina í loftinu og að lokum fundu þeir hest. Hvernig á jörðinni dettur nokkrum manni svona í hug, að fara með hross upp …
Gamlar sögur úr Noregi
Norðmenn eru frábærir og geta verið bráðskemmtilegir. Þeir hafa mjög sérstaka sýn á sögu sína , – og okkar. 1993 var til dæmis sýning í Ríkislistasafninu í Osló af myndum af norskum listamönnum. Númer eitt á sýningunni var brjóstmynd af Snorra Sturlusyni ! Nokkru síðar kom út ritröð hjá einu stærsta útgáfufyrirtæki Noregs undir heitinu: Meginstoðir …
Mismæli og málspjöll
Það var skemmtilegt mismæli hjá forsetafrúnni, þegar hún sagði á gleðistund að Ísland væri “stórasta”land í heimi. Í Morgunblaðsviðtali sagði hún síðar að þetta hefði verið slæmt mismæli. Svo var ekki: Þetta var skiljanlegt og eðlilegt mismæli þess sem ekki á íslensku að móðurmáli og er að læra málið. Forsetafrúin á virðingu skilið fyrir að …
Vönduð vinna
Skoðaði fyrir nokkrum dögum slökkvibíl frá SM í Vestmanna í Færeyjum. Greinilega mjög vandaður bíll og slökkviliðsmenn þar lýstu mikilli ánægju með hann .Handbragð allt og búnaður til fyrirmyndar. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Brýnt er að hlú að þessari starfsemi. Atvinnuskapandi og getur líka fært okkur gjaldeyri eins og þetta dæmi sannar. „Ósanngjörn …
Metnaðarleysi miðlanna
Það er kannski út úr kú þessa dagana að gera athugasemdir við málfar í fjölmiðlum. Hlustaði í kvöld á hádegisfréttir Bylgjunnar á netinu. Þar var sagt: „Hann gekk vel í náminu“. Síðan var talað um“fjögur viðskipti“. Ekki tók betra við í Kastljósi Sjónvarps ríkisins þegar umræðustjóri sagði við gesti sína: „Ég óska ykkur svo góðrar …