Ég dáist að Jóni Ásgeiri fyrir að þora að í Silfri Egils mæta einn allra þeirra sem boðið var til þáttarins og fyrir að halda stóískri ró allan tímann. Með því sýndi hann hugrekki. Egill Helgason,sem er að jafnaði einn okkar bestu þáttastjórnenda missti algjörlega stjórn á sér undir lokin. Það var honum ekki til …
Röng þýðing
Enn flaskar Morgunblaðið á þýðingu úr öðru máli, nú færeysku. Í færeyskum netmiðlum stendur að bíllinn sem konan tók á leigu hafi fundist „á Grönanesi í gjár“. „Í gjár“ þýðir ekki „í gjá“ heldur þýðir það í gær. Þetta er af vef færeyska útvarpsins: „Bilurin, sum kvinnan hevði leigað, varð funnin Úti í Stíggj á …
Hélt að mér hefði misheyrst
Sannast sagna hélt ég að mér hefði misheyrst er ég heyrði forseta Íslands tala um „sovereign“ í sambandi við fullveldisdaginn í ræðu sem hann flutti við setningu Alþingis í dag. Mér misheyrðist ekki. Forseti Íslands sagði: „Innan tíðar, 1. desember, verða 90 ár liðin frá því að þjóðin varð fullvalda — „sovereign“ eins og það …
Konan og kjötið
Auglýsing um ágæti íslenska lambakjötsins, sem nú birtist oft á skjánum hefur orðið mér umhugsunarefni. Þar stendur maður við kjötborð, bendir á lambakjöt í borðinu og segist ætla að kaupa það. Þar með er kominn á samningur milli hans og afgreiðslumannsins eða verslunarinnar.Þá kemur aðvífandi kona sem greinilega væntir sín, hún ágirnist kjötið líka. Hún …
Óskynsamleg dagskrárgerð RÚV
Það er góðra gjalda vert að sjónvarp ríkisins framleiði leikið íslenskt efni eins og sakamálaþáttinn Svarta Engla þar sem margt er vel gert. Það er hinsvegar afspyrnu léleg og óskynsamleg dagskrárgerð að sýna þátt með atriðum sem ekki eru við hæfi barna klukkan 19:40 á sunnudagskvöldum Hversvegna er þáttur Evu Maríu ekki sýndur strax á eftir …
Hvað á að kalla það ?
Hvað á að kalla það, þegar alda samúðar með ljósmæðrum rís með þjóðinni og nær allir virðast á einu máli um að leiðrétta beri laun þeirra með tillitli til menntunar og fjölmargir taka fram að aðrar stéttir geti ekki byggt kröfur á því hvernig samið verði við ljósmæður ? Svo er samið við ljósmæður um …
Háðung !
Þessi frétt , ef frétt skyldi kalla, er svo illa skrifuð og illa unninn að hún er Morgunblaðinu til háðungar. Það er eins og stjórnendur Morgunblaðsins hafi engan áhuga á því að birta vandaðan og vel unninn texta. Ambögurnar blómstra sem aldrei fyrr í Hádegismóum. Morgunblaðið heldur áfram að viðhalda fornri fjólufrægð. Þykist hafa tekið eftir …
TÓMARÚM
Á framboðsfundum í Vesturlandskjördæmi fyrir 30 árum gerðu kommúnistar og hernámsandstæðingar gys að þeirri kenningu minni, að vera varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli skapaði okkur öryggi og ákveðna festu í þessum heimshluta. Vera bandaríska varnarliðsins á Íslandi væri mikilvæg. Færi varnarliðið, mundi skapast tómarúm,sem þrýst væri á úr öllum áttum og yrði því ekki lengi tómarúm. Þetta sannast …