Gamall ósiður

Það er gamall ósiður, að þingmenn  breyti  ræðum eftir  flutning og  fyrir prentun í þingtíðindum. Sennilega er þetta frá þeim  tíma er  þingritarar handskrifuðu ræður  eftir  þingmönnum. Þá  gat verið hætta  á misheyrn eða  misskilningi. Svo varð  Alþíngi  fyrst þjóðþinga í veröldinni    til að  taka  ræður þingmann  upp á  segulband,  eða  stálþráð eins og þá …

Lesa meira »

Føroyski hasjhundurin fann rúsevni í týskum bili

 Þessi frásögn er af heimasíðu færeyska  útvarpsins í   kvöld : Føroyski hasjhundurin fann rúsevni í týskum bili     mikudagur, 03. september 2008 18.47 – Innland     Tað var hundurin hjá føroyska tollvaldinum, sum fann rúsevnini í bilinum, sum tollarar á Seyðisfirði tóku í gjár. Norrøna kom á Havnina úr Hanstholm mánadagin. Millum bilarnar, sum skuldu víðari til …

Lesa meira »

Hinn nýi kansellístíll

„… konur í barnseignarferli“.  Alltaf batnar  það. En hér er þó  skv.  fréttinni  ekki við mbl.is  að sakast. Víða engin neyðarvakt

Meira sjónvarpshrós !

 Útsending   sjónvarpsins RÚV  frá komu  Silfurliðsins  til landsins í gær  og  hátíðahöldunum sem  fylgdu í kjölfarið var tæknilegt afrek. Til hamingju með  það  sjónvarpsfólk. Mér þykir ekki ósennilegt að þetta  sé ein flóknasta  beina  útsending í sögu  sjónvarpsins.  Þetta  var eiginlega  tindurinn  eftir  frambæra frammistöðu  sjónvarpsmanna í Beijing. Í Færeyjum  fylgdumst við  með þessu  um   gervihnöttinn …

Lesa meira »

Góð auglýsing frá Bræðrunum Ormsson

Hér  eru stundum  gerðar athugasemdir   við málfar ,- í fréttum og í auglýsingum. Stutt og snaggaraleg auglýsing   frá  Bræðrunum Ormsson í sjónvarpinu í kvöld  er hrósverð. Þar  sagði einfaldlega : Þessi árangur er  gulls ígildi! Eitthvað annað en enskusletturnar  frá   bílaumboðunum Toyota og  Ingvari Helgasyni sem hrella unnendur móðurmálsins  með „smæl“ og „outlet“. Fínt hjá  …

Lesa meira »

Fullt hús í Fútastovu

Það var fullt út úr  dyrum í Fútastovu  í morgun. Þangað komu  50-60 manns, –  fleiri komust ekki  fyrir með  góðu móti. Margir Íslendingar  voru í  hópnum og  meðal  Færeyinganna   voru   Íslandsvinir, Lögþingsmenn og  Högni Höydal utanríkisráðherra.  „Við vinnum „,  sögðu  Færeyingar áður en leikurinn byrjaði. Stemmingin var frábær. Frakkarnir reyndust ofjarlar okkar. Við því er …

Lesa meira »

Opið hús í Fútastovu

Í Færeyjum er  gríðarlegur íþróttaáhugi. Hér  í Þórshöfn gleðjast vinir okkar yfir  frammistöðu íslenska handboltaliðsins. Hamingjuóskum rigndi yfir  ræðismann í SMS  eða  Sölumiðstöðinni í morgun. Raunar rignir svo mikið í dag að  öllu flugi var aflýst um hádegi vegna  þoku og  roks í Vágum. Vélin sem átti að koma frá Íslandi í gærkveldi kemur  því …

Lesa meira »

Sjónvarpsmenn fá hrós

Hér í Færeyjum  höfum við eingöngu, –  stopult þó –  fyglst með beinum útsendingum RÚV  frá Beijing. Það hefur  verið ógleymanlegt, – og ekki allt búið enn !  Sjónvarpsmennirnir  frá RÚV  sem þar hafa komið  við sögu hafa  staðið sig  frábærlega  og  eiga sannarlega hrós  skilið. Hafa    verið velvakandi  allan  sólarhringinn. Tímamunurinn í Kína er  …

Lesa meira »

Hundraðfalt húrra !

Stórkostlegt. Fái handboltaliðið eins og það leggur  sig  ekki íslensku fálkaorðuna þegar það kemur  heim  úr þessari  frægðarför er  eins  gott leggja það fyrirbæri niðuir !

Bensínverð: Langlundargeð neytenda ,- og stjórnvalda

Langlundargeð okkar íslenskra neytenda,- og  stjórnvalda,-  gagnvart olíufélögunum er með ólíkindum. Á sömu stundu og fréttir berast  af hækkunum olíuverðs erlendis hækka olíufélögin á Íslandi  verð  til neytenda. Þegar  olíuverð hinsvegar lækkar erlendis, – og það hefur lækkað mikið  að undanförnu,- gerist ekkert  á sömu stundu, heldur  gerist lítið  og  seint. Ótrúleg var fréttin í dag …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts