Alveg er mér fyrirmunað að skilja hversvegna Toyotaumboðið telur sér sæma að sletta ensku framan í þjóðina í hverri auglýsingunni á fætur annarri. Slettan að „smæla“ á ekkert erindi inn í íslenskan málheim. Það er þessu ágæta fyrirtæki til minnkunar að gefa íslenskri tungu og þeim sem unna móðurmálinu langt nef með þessum hætti. Við höfum komist …
Orðbragð á blogginu
Held mig geta fullyrt að ég sé engin pempía. . En lifandis skelfing finnst mér ósmekklegt þegar fólk notar enska blótsyrðið „motherfucker“ á almennum ritvelli eins og Moggablogginu, samanber: „Sækadellik motherfucker takk fyrir kærlega“, en þetta mátti lesa í dag á bloggi konu sem kennir sig við femínisma og vinstri grænt. Orðbragð af þessu tagi …
Orkuhroki ?
Það er einkennileg afstaða Orkuveitu Reykjavíkur að neita fjölmiðlum um upplýsingar um það hverjum fyrirtækið bauð á tónleika Erics Claptons. Er þetta einhverskonar orkuhroki ? Eiga ekki allir viðskiptavinir fyrirtækisins heimtingu á því að vita hverjum var boðið? Það er ekki annarleg forvitni eða hnýsni heldur eðlileg krafa um upplýsingar. Orkuveitan getur ekki haft neitt …
Heitt í Beijing !
Það er greinilega venjulegur sumarhiti í Beijing + 30°C , nálægt 35°C var einhversstaðar sagt. Haft var að gamanmálum í Beijing að þar færi hitinn aldrei upp fyrir 38¨C. Hversvegna ? Vegna þess að ef hitinn fer upp fyrir 38°C verður að loka vinnustöðum og gefa frí. Þessvegna sýni opinberir hitamælar aldrei meiri hita en …
Múgur og margmenni — skjánum !
Svolítið var sérkennilegt að heyra fréttamann ríkissjónvarpsins segja horfendum/hlustendum að múgur og margmenni hafi verið á bryggjunni í Sandgerði ,þegar Landhelgisgæslumenn sigldu báti kvótalausa sjómannsins til hafnar. Fréttamyndirnar sýndu hinsvegar örfáar hræður á bryggjunni. Það er svo sjálfsagt einhverjum umhugsunarefni að fjölmiðlar hafa sagt alþingismann hafa aðstoðað sjómanninn sem var að brjóta lög við að …
Fjársjóðsflotinn kínverski – Zheng He
Það var lofsvert framtak hjá RÚV að sýna heimildamynd um kínverska flotaforingjann Zheng He. Þetta var að vísu ekki þýsk heimildamynd eins og kynnt var heldur þýsk samantekt úr sjónvarpsþáttaröð, einir sex þættir, muni ég rétt sem kínverska sjónvarpið CCTV gerði fyrir nokkrum árum. Kvöldstund í Beijing fyrir fjórum árum átti ég þess kost ásamt …
Ekki fráleit samlíking
Samlíkingin Norður Ameríka=Norður Kórea er hreint ekki svo fráleit þegar grannt er skoðað. Rétt er þó að undanþiggja Kanada. Við komuna til Pyongyang höfuðborgar Norður Kóreu eru farsímar teknir af ferðalöngum og ekki afhentir fyrr en við brottför úr landinu. Það hefur sá sem þetta skrifar upplifað. Svo virðist hinsvegar af fréttum að dæma að …
Moggafjólur blómsta
Þær blómstra fjólurnar í Mogga. Í þessari frétt er talað um termítamaura. Termítar eru maurar, hvítmauarar segir íslensk orðabók.Að tala um termítamaura er út í hött. Þessir hvítmaurar voru í Ástralíu.Sú álfa er Mogga svolítið erfið. Ekki er langt síðan snillingar þar á bæ bjuggu til borgina Aboriginal í Ástralíu!! Moggi verður að gera betur. …
Ótrúleg ósvífni RÚV
Það er ótrúleg ósvífni hjá Ríkisútvarpinu að birta áfengisauglýsingar í trássi við lög. Í kvöld að loknum fréttum var auglýstur Heineken bjór. Hrein áfengisauglýsing. Það breytir engu þótt orðið léttöl birtist með örsmáu letri í eina sekúndu eða svo neðst í horni á skjánum. Þetta er áfengisauglýsing og þar með lögbrot. Hvar eru nú þeir …
Fjölmiðlar hafðir að fíflum
Það er fróðlegt að fylgjast með því hvernig fámennum krakkahópi tekst að hafa alla íslenska fjölmiðla að fíflum. Greinilegt er að fjölmiðlar eru látnir vitna í hvert skipti sem vitleysisgangurinn byrjar hvort sem það er að raska friðhelgi einkalífs á heimilum ,senda fölsk boð um bruna eða stöðva vinnu með ofbeldi. Þá er hlaupið til, skrifað …