Grein sem birtist í Fréttablaðinu 10. júlí 2014: Alltaf er það gott þegar fólk er heiðrað að verðleikum fyrir vel unnin störf og afrek á lífsleiðinni. Snemma í maí var frá því greint í Morgunblaðinu (02.05.2014) að American Scandinavian Foundation , sem eru eins og blaðið segir ,,aðalsamtök fólks af norrænum uppruna í Bandaríkjunum” …
Molar um málfar og miðla 1514
Enginn sammála um ágæti Costco, segir í feitletraðri fjögurra dálka fyrirsögn í DV (8.-10.07.2014). Molaskrifara finnst þessi fyrirsögn ekki í lagi. Finnst að hér sé hugsanavilla á ferð. Betra hefði verið, til dæmis: Enginn einhugur um ágæti Costco. Hvað segja Molalesendur? Pétur Kristjánsson skrifari Molum (09.07.2014): ,,Eitt aðaleinkenni á íslensku talmáli er að …
Molar um málfar og miðla 1513
Molavin skrifaði: ,,Í frétt DV (07.07.14) um eggjasósufyrirtækið Gunnars Majónes segir svo: „Síðan þá hefur sigið á ógæfuhliðina og er kennitala fyrirtækisins nú komin í þrot.“ Þetta er ekki aðeins rangt heldur mjög villandi. Kennitala hefur engan rekstur. Það er fyrirtækið, sem er komið í þrot. Það var stofnað nýtt fyrirtæki, sem fékk að sjálfsögðu …
Molar um málfar og miðla 1512
K.Þ. benti á eftirfarandi úr Viðskiptablaðinu (06.07.2014): Kennörum skortir sjálfum þekkingu og hæfni til að kenna fjármálalæsi. Fjármálalæsi unglinga í íslenskum grunnskólum er lítið og þeir hafa litla verðvitund. Það bitnar á getu þeirra til að taka skynsamar ákvarðanir um fjármál þegar þeir eldast. Þetta er meðal niðurstaðna í lokaverkefni Klöru Guðbrandsdóttur við viðskiptadeild …
Molar um málfar og miðla 1511
Af dv.is (04.07.2014): ,,Mál Justin Ross Harris, föðurs sem ákærður hefur verið fyrir að myrða 22 mánaða gamlan son sinn, verður sífellt undarlegra en svo virðist sem ….”. Í barnaskóla lærðu nemendur forðum meðal annars að beygja orðin faðir, móðir, systir og bróðir. Nú er það væntanlega kennt í öllum grunnskólum. Sá sem skrifaði þetta …
Molar um málfar og miðla 1510
Í hádegisfréttum Ríkisútvarps (04.07.2014) var ítrekað talað um álver Reyðarfjarðar. Heitir álverið ekki Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði? Minnir það. Í tíufréttum Ríkissjónvarps á fimmtudagskvöld (03.07.2014) var talað um hluta flaks skemmtiferðaskipsins Costa Concordia, sem enn væri undir vatni. Betra hefði verið að segja, – … sem enn væri undir sjólínu, eða sem enn …
Molar um málfar og miðla 1509
Útvarpsstjóri Útvarps Sögu bauð hlustendum (02.07.2014) í auglýsingu frá Laxdal að versla merkjavöru á góðu verði. Hvað þarf fólk að starfa lengi við fjölmiðlun til að læra þá einföldu reglu að fólk verslar ekki vörur? Fólk kaupir vörur. Úr frétt á mbl.is (02.07.2014): Hæstiréttur ógilti dóminn í fyrra og vísaði málinu aftur til undirrétts. …
Að rífa fólk upp með rótum
Í tilefni af Fiskistofuumræðunni og furðulegum og vanhugsuðum ummælum sjávarútvegsráðherrans varð mér hugsað aftur í tímann. Þegar ég var kosinn á þing fyrir Alþýðuflokkinn í Vesturlandskjördæmi 1978 var ég fljótt spurður: Ætlarðu ekki að flytja í kjördæmið? Ég spurði á móti: Hvert? Á Akranes, í Borgarnes, í Stykkishólm, í Grundarfjörð í Ólafsvík , á …
Molar um málfar og miðla 1508
Í DV (0.1-03.07.2014) var smáfrétt um ábyrgð flugfélaga þegar farangur farþega skilar sér ekki. Þar segir:.. Ef að (svo!) taskan finnst ekki innan þriggja vikna er hún formlega ,,týnd” en á meðan er flugfélagið skuldbundið til að sjá farþegum fyrir nauðsynjavöru svo sem salernisvöru, nærfötum og öðrum nauðsynjum sem kunna að vera í töskunni.” Sjá …
Molar um málfar og miðla 1507
Í kvöldfréttum Ríkisútvarps á sunnudag (29.06.2014) var sagt: Tildrög slyssins eru óljós samkvæmt lögreglu. Molaskrifara finnst það ekki gott orðalag, þegar eitthvað er sagt vera svona og svona samkvæmt lögreglu. Einhver á fréttastofunni er á sama máli, því seinna var þessu breytt og sagt, að sögn lögreglu, sem er miklu betra. Fólkið gat gengið …