Í neðanmálstexta í fréttum Ríkissjónvarps (21.08.2013) var tvisvar sinnum minnst á Ramsa-samninginn. Samningur er kenndur við Ramsar í Íran þar sem hann var undirritaður. Smáatriðin skipta líka máli. Molaskrifari skrifaði nýlega um Vegagerð ríkisins þar sem hann starfaði þrjú sumur fyrir meira en hálfri öld. Hann hefur nú fengið ábendingar um að Samgöngustofa sé …
Molar um málfar og miðla 1285
Í íþróttafréttum Ríkissjónvarps (20.08.2013) var okkur sagt frá ökumanni sem sigraði sérútbúna flokkinn. Er útilokað að íþróttafréttamenn geti farið rétt með þetta? Menn sigra ekki flokka, sigra ekki heldur keppni. Þetta er ekkert flókið. Menn sigra í flokki eða í keppni. Í sama fréttatíma var okkur sagt frá heimsmeistara í badminton sem hefði spilað eins …
Molar um málfar og miðla 1284
Svo sem Molalesendur gjörla vita er skrifari á stundum sérvitur, þegar að málfari kemur. Í fréttum að undanförnu hefur ítrekað verið talað um að fólk taki lögin í eigin hendur. Molaskrifari er vanur því að heyra talað um að fólk taki lögin í sínar hendur. Þegar fólk tekur til sinna ráða án tillits til laga …
Molar um málfar og miðla 1283
Í fréttum Stöðvar tvö á laugardagskvöld (17.08.2013) var farið í Laugardalinn í mikilli veðurblíðu. Fréttamaður sagði: ,, … sýna sig og sjá aðra og versla ýmsan varning”. Fréttamenn, einkum af yngri kynslóðinni, eiga margir hverjir afar erfitt með að gera greinarmun á sögnunum að versla og að kaupa. Hér hefði fremur átt að tala um …
Molar um málfar og miðla 1282
Af mbl.is (16.08.2013): Á öðrum tímanum í nótt tilkynnti skip um þrjá borgarísjaka sem eru staðsettir um það bil 45-50 sjómílur norðnorðaustur af Hornbjargi. Hér hefði nægt að segja: … borgaírsjaka sem eru um það bil … Orðið staðsettir er óþarft, – eins og oftast. Meira af mbl.is (18.08.2013): Þar segir í fyrirsögn: Við munum …
Molar um málfar og miðla 1281
Er enginn starfsmaður í forsætisráðuneytinu sem skammlaust getur samið stutta fréttatilkynningu? Svo virðist ekki vera. Þetta er úr fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu á fimmtudag (15.08.2013): ,,Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra mun eiga vinnukvöldverð hinn 4. september næstkomandi með Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, og leiðtogum Norðurlandanna í Svíþjóð, en Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, býður til fundarins í tilefni af …
Molar um málfar og miðla 1280
Prýðilegur fyrsti þáttur af þremur um Reykjanesið í gerð þeirra Ara Trausta Guðmundssonar Valdimars Leifssonar , sem var á dagskrá á miðvikudagskvöld (13.08.2013). Ari Trausti nefndi jarðskorpuflekana sem mætast hér og kallaði þá plötur (e. plate). Molaskrifari hefur frekar vanist því að talað sé um fleka en plötur. Rangt er í dagskrárkynningu Ríkissjónvarpsins um …
Molar um málfar og miðla 1279
… bróðir Hollandsdrottningu , sagði fréttamaður Stöðvar tvö (12.08.2013) Slæmt að segja þetta og verra þegar viðkomandi heyrir ekki vitleysuna og les óhikað áfram. Sigurjón skrifaði (13.08.2013):,, Þeir sem lýsa golfi tala mikið um fínasta högg eða fínasta pútt og svo heyrði ég Veðurfréttamann segja fínasta veður á morgun. Hvað finnst þér um …
Molar um málfar og miðla 1278
Enn er spurt: Hversvegna kemur Ríkissjónvarpið óheiðarlega fram við okkur? Hversvegna segir það okkur ekki satt? Hversvegna var okkur ekki sagt að þáttur Egils Helgasonar og Þorleifs Friðrikssonar um verkamannabústaðina við Hringbraut , Verkamannafélagið Dagsbrún og Héðin Valdimarsson sem sýndur var á miðvikudagskvöld(13.08.2013), væri endursýnt efni? Þetta var gamalt efni úr Kiljunni. Fróðlegt og áhugavert, …
Molar um málfar og miðla 1277
Molavin skrifaði (12.08.2013): ,,Vikudagur segir: „Betur fór en á horfðist þegar fólksbifreið með tveimur mönnum innanborðs hafnaði í Glerá seint í gærkvöld.“ Óþarfa málalengingar af þessu tagi sjást æ oftar. Einkum er fjallað um flugvélar með svo og svo marga „innanborðs“ – rétt eins og títt sé að farþegar séu hafðir hangandi utan á þeim …