Molar um málfar og miðla 1276

Í fréttum Ríkisútvarps á miðnætti á laugardagskvöld (10.08.2013) og í næsta fréttatíma var okkur sagt að forseti Bandaríkjanna væri kominn í frí á vínekru á austurströnd Bandaríkjanna! ,,Barrack Obama Bandaríkjaforseti er kominn í sumarfrí. Samkvæmt fréttatilkynningu er hann kominn úr jakkafötunum og mun eyða næstu vikunni á vínekru á austurströnd Bandaríkjanna”. Hér hefur eitthvað skolast …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1275

Í Molum var nýlega vikið að þáttagerð Andra Freys Viðarssonar í Ríkissjónvarpinu. Af því tilefni skrifar Helgi Haraldsson prófessor emerítus í Osló og vitnar í Molana: ,,Sæll Eiður „Andri Freyr Viðarsson gerir þætti um Andra Frey Viðarsson í Ríkisútvarpi og Ríkissjónvarpi.“ Er þetta ekki sá sami Andri og var í þáttunum „Andri á flandri“ ? …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1274

  Helgi Haraldsson prófessor emeritus í Osló spyr (07.08.2013) : ,,Hvaða veiði er verið að sýna passanum?! Náttúrupassanum er sýnd veiði en ekki gefin. Í skýrslu sem Ferðamálastofa gaf út í gær kemur fram að svonefndum náttúrupassa, sem Samtök ferðaþjónustunnar hafa ályktað sérstaklega um, sé e.t.v. sýnd veiði en ekki gefin.” Von er að spurt …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1273

Áskell sendi eftirfarandi ((04.08.2013): ,,Vefmiðillinn visir.is segir þannig frá mynd Baltasars Kormáks: 1. „Mynd Balta tekur inn milljarð á fyrsta degi.“ 2. „… hefur halað inn 10 milljónum dollara.“ 3. Á lista „Box office“ raðast myndir „eftir því hversu háum fjárhæðum þær safna í sölu aðgangsmiða.“ 4. „Til samanburðar má geta þess að fyrri mynd …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1272

Í hádegisfréttum Bylgjunnar (03.08.2013) var sagt: Á Neskaupstað er útihátíðin Neistaflug haldin hátíðleg. Betra hefði verið að segja, til dæmis: Í Neskaupstað er útihátíðin Neistaflug. Sagt er í kaupstaðekki á kaupstað. Óþarfi er að tala um hátíð sé haldin hátíðleg. Í þessum fréttatíma komu aðilar einnig við sögu í hverri lögreglufréttinni á fætur annarri. – …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1271

Úr frétt á mbl.is (02.08.2013): Ekki var hægt að yfirheyra þennan aðila vegna ölvunarástands en hann verður boðaður í skýrslutöku síðar. Á mannamáli hefði átt að segja: Ekki var hægt að yfirheyra manninn vegna þess hve drukkinn hann var.   Það var eiginlega unun að hlýða á kjarnyrtan pistil Kristins R. Ólafssonar um Berlusconi í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1270

Vesalings Manni! Svo mælir vinur Molanna. Prófessor Helgi Haraldsson í Osló, og vitnar í fyrirsögn á mbl.is : Manni sem var bjargað úr bílskúr er látinn http://www.mbl.is/frettir/erlent/2013/07/30/manni_sem_var_bjargad_ur_bilskur_er_latinn/. Þakka ábendinguna, Helgi. Þetta hefði átt að vera: Maður sem bjargað var úr bílskúr er látinn.   Bjórauglýsing, áfengisauglýsing frá Thule , sem Ríkissjónvarpið sýnir um þessar mundir …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1269

Er Garðabær inn í dag? Þannig spurði fréttamaður Stöðvar tvö bæjarstjórann í Garðabæ í fréttum á mánudagskvöld (29.07.2013). Og bæjarstjórinn svaraði: Garðabær er inn og hefur verið inn bara mjög lengi og verður. Hallærisleg og óþörf enskusletta.   Umsjónarmaður Morgungluggans á Rás eitt í Ríkisútvarpinu sagði okkur í morgun (01.08.2013) að Vilhjálmur Bretaprins yrði næsti …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1268

Það var vel í lagt hjá Ríkissjónvarpinu í gærkveldi (30.07.2013) að leggja þriðjung fréttatímans (og líklega meira ef íþróttafréttir eru frátaldar) undir mál bandaríska uppljóstrarans Brtadley Mannings. Og að sjálfsögðu var viðtal við Kristin Hrafnsson fyrrum starfsmann fréttastofunnar sem virðist  eiga einkar greiðan aðgangað fréttatímum Rikisútvarps og sjónvarps..   Glöggur Molalesandi sendi Molum þessa ábendingu …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1267

  Í þessari frétt á visir.is (27.07.2013) er það eiginlega ekki eitt, heldur allt! ,,Bíl var ekið á veglokun við gamla veginn niður í Selvog við Selfoss laust fyrir þrjú í dag. Tveir farþegar voru í bílnum og varð talsvert högg af árekstrinum að sögn lögreglu. Sjúkrabíll var sendur á staðinn og hlúði að farþegum …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts