Skrifað er á pressan.is (29.09.2010): …en stöðvarnar höfðu deilt um hvort fyrrnefnda stöðin bæri skylda til þess. Hér hefði átt að segja:… hvort fyrrnefndu stöðinni bæri skylda til þess. Máltilfinning ekki til staðar.
Við erum áratug eftir á, sagði fréttamaður Stöðvar tvö (30.09.2010) og átti við, að við værum áratug á eftir þeim, sem um var rætt.
Fín músík hjá KK á Rás eitt á morgnana. Hann er ótrúlega naskur að finna hljóðritanir, sem sárasjaldan heyrast.
Úr mbl.is (30.09.2010): Tildrögin voru þau að tilkynning barst um yfirstandandi innbrot í hverfinu. Í hönd fór leit að innbrotsþjófum en lokað var fyrir aðkomuleiðir að hverfinu. Yfirstandandi innbrot! Í hönd fór leit ! Lokað fyrir aðkomuleiðir ! Væntanlega var verið að koma í veg fyrir að þjófarnir kæmust út úr hverfinu, ekki inn í það. Ekkert af ofangreindu er í rauninni rangt, þótt orðatiltækið að loka fyrir leiðir sé ekki í samræmi við málvenju, en ……..
Molaskrifari lagði það á sig á hlusta á síðdegisútvarp Útvarps Sögu (30.09.2010) á leiðinni austur í sveitir. Kynningartónlistin í upphafi var eins og margframlengd endurómun á upphafstónlist biblíumyndar eftir bandaríska leikstjórann Cecil B. DeMille (Boðorðion tíu , ofl. ). Annars var þátturinn óttalegur þunnur þrettándi. Eitt og annað var þó bitastætt hjá lagadoktornum. Útvarpsstjórinn afhjúpaði fávisku sína, þegar í ljós kom, að hún veit ekki , að orðið alkálfur er notað um kálf, sem alinn er til slátrunar !
Ekkert lát er á lögbrotum stjórnenda Ríkisútvarpsins, þegar kemur að áfengisauglýsingum. Að kveldi miðvikudags (29.09.2010) á undan og eftir ágætri Kilju Egils (kostaði mig tvær nýjar bækur) var auglýstur bjór og ágæti bjórþambs. Orðið léttöl var nær algjörlega ósýnilegt og því ólæsilegt á flösku hægra megin á skjánum. Hvernig er hægt að ætlast til þess, að almennir borgarar beri virðingu fyrir lögum landsins, þegar hið opinbera, fulltrúar stjórnvalda brjóta lögin blygðunarlaust í augsýn alþjóðar Það er til skammar að láta Ríkisútvarpið komast upp með þessa ósvinnu. Stjórnendur RÚV eiga að sæta ábyrgð fyrir lögbrot.
Skildu eftir svar