«

»

Molar um málfar og miðla 420

Héðinsfjarðargöngin opna formlega á laugardag, sagði reyndasti fréttaþulur Stöðvar tvö (30.09.2010) Spurt er: Hvað ætla Héðinsfjarðargöngin að opna? Göngin opna hvorki eitt né neitt. Eins og hér hefur senn verið sagt svona þúsund sinnum. Þau verða opnuð. Fréttamaður  Stöðvar tvö notaði sama orðalag í framhaldi af þessum inngangi. Með endemum. Sami fréttamaður sagði um jarðgöngin, að þau færu til Siglufjarðar, færu til  Héðinsfjarðar. Meira rugl. Jarðgöng fara hvorki eitt né neitt.

Einkennilegt er hve  greiðan aðgang einstakir lögmenn eiga að fréttatíma Ríkissjónvarpsins. Ekki einleikið. Gerir fréttir tortryggilegar. 

 Samtímis því sem þátturinn Orð skulu standa er skorinn við trog undir yfirskini sparnaðar, borgar  menningarstofnunin í Efstaleiti fyrir  ómerkilegt slúður í hverri einustu viku vestan úr leikarabyggðum í Hollywood. Konan sem  þar er rætt  við  er svo illa  málai  farin, að hún á ekkert erindi í útvarp. Þetta er með ólíkindum. Það er eins og stundum sé engin sómatilfinning í Efstaleiti.

  Í fréttum Ríkisútvarpsins klukkan sex (30.09.2010)  var ítrekað talað um Æksbanka í Færeyjum. Rangt.  Bogi Ágústsson var með þetta á hreinu í fréttum Ríkissjónvarps sama kvöld. Bogi er iðinn  við að segja fréttir af frændum okkar. Bankinn heitir EIK banki. Eik hefur  sömu merkingu á íslensku og færeysku, þótt framburðurinn sé annar.  Bogi þekkir til í Færeyjum og veit um hvað hann er að tala. Gaman var að heyra í Elís Paulsen, sem lærði íslensku í Lindargötuskólanum hjá Halldóri Blöndal. Dóri sló ekki slöku við, þegar hann kúskaði ólátabekkinn til, –  fyrir líklega  55 árum eða svo. Elís hefur  miklar mætur á Halldóri og hefur gaman af að segja  frá þessu.  Öndvegismaður Elís.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>