Ríkissjónvarpið féll á prófinu í gærkveldi (02.10.2010). Hinn nýi skemmtiþáttur, Hringekjan, stóð ekki undir væntingum.Svo ófyndinn, sem mest má verða. Hversvegna var verið að þvælast til Vestmannaeyja? Meira en lítið klént. Það kemur ekkert í staðinn fyrir Spaugstofuna.
Þingheimur hefur nýlokið við að ganga inn í Dómkirkjuna, sagði fréttamaður Ríkissjónvarps (011.10.2010). Nýlokið við að ganga inn í Dómkirkjuna!!! Svo lauk þessi sami fréttamaður máli sínu með því að segja: Eru mótmælin í dag aðeins forsmekkur þess sem koma skal? Í fyrsta lagi , herra fréttastjóri Ríkissjónvarps: Fólk þarf að vera þokkalega talandi svo hægt sé að hleypa því fram fyrir myndavél og láttu fréttamenn hafa sínar vangaveltur fyrir sig. Þær eiga ekki erindi inn í stofurnar okkar. Þetta eru ófagleg vinnubrögð.
Þrælreyndur fréttaþulur Stöðvar tvö sagði okkur (02.10.2010) að vegamálastjóri hefði vígt Héðinsfjarðargöngin í dag. Með fullri virðingu fyrir vegamálastjóra, þá vígir hann hvorki eitt né neitt, enda ekki vígður maður. Hann, ásamt öðrum, opnaði Héðinsfjarðargöngin fyrir almennri umferð í dag. mbl.is sagði rétt frá þessum atburði. Það gerði Ríkissjónvarpið líka í sjöfréttum. Plús fyrir það.
Séra Þórir Stephensen, sem Molaskrifari hitti á förnum vegi á dögunum, nefndi misnotkun fréttamanna á sögninni að vígja. Þetta var ein af grunnreglunum í blaðamennsku á árum áður. Aðeins prestar geta vígt mannvirki og gera reyndar oft. Þá er tilefni til að minna á að eignarfall orðsins jarðgöng er jarðganga. Eignarfall orðsins göngur, fjárleitir, er gangna. Gangnamenn er ekki það sama og göngumenn eða gangamenn,sem gætu verið þeir sem gera jarðgöng.
Nær daglega tala fjölmiðlar um að draga eigi Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir Landsdóm. Síðast heyrði Molaskrifari þetta orðalag í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (01.10.2010). Þetta er vissulega myndrænt orðalag, en um leið finnst Molaskrifara það jaðra við að vera dónalegt. Hversvegna er ekki sagt: Stefna fyrir landsdóm?
Þessar línur bárust Molum (01.10.2010): „Mig minnir að núverandi ritstjóri Morgunblaðsins hafi notað orðin „víðáttumikið þekkingarleysi“ eða eitthvað þvíumlíkt á sínum tíma um pólitíska andstæðinga sína. Þau orð virðast eiga vel við um ýmsa undirmenn hans í dag. Þrátt fyrir ítrekaðar leiðbeiningar þínar stendur þetta í Netmogga í dag: „Roland Cavaille, vínekrubóndi í Frakklandi, brá heldur í brún þegar hann vaknaði um helgina…“ Það er engu líkara en heil hjörð fjölmiðlafólks hafi komið til starfa án grunnþekkingar á beygingu nafnorða.
kv.Molavin“. Takk fyrir sendinguna.
Það er tilhæfulaust þvaður, þegar þáttastjórnandi í Útvarpi Sögu segir við hlustendur: Við eigum bara að gera tvíhliða samning við Evrópusambandið. Það þarf tvo eða fleiri til að gera samning. Tvíhliða samningur við ESB stendur okkur ekki til boða og hefur aldrei staðið okkur til boða. Sjálfstæðisflokkurinn var að þvæla um þetta fyrir tuttugu árum en skipti um skoðun í stuttri sjóferð yfir Viðeyjarsund, þegar Viðeyjarstjórnin var mynduð 30. apríl 1991. Útvarp Saga mun sjálfsagt halda sínu endalausa rugli áfram. Við því er víst ekkert að gera.
Skildu eftir svar