Réðust á par af tilefnislausu , segir í fyrirsögn á dv.is (21.11.2010). Hér hefði átt að standa: Réðust á par að tilefnislausu.
Úr mbl.is (22.11.2010): Júlíana Grétarsdóttir hafnaði í 19. sæti og Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir í 26. sæti af 38 keppendum í novice-flokki á Opna Varsjármótinu í listhlaupi á skautum um helgina. Orðið novice er enska og þýðir nýliði. Þessvegna hefði átt að segja, að stúlkurnar hefðu keppt í nýliðaflokki
Glöggur lesandi benti Molaskrifara á frétt í Fréttatímanum (19.-21.11.2010), en þar stendur: Verslunin hyggst bjóða bókina á hálfvirði frá og með deginum í dag og með skilarétti þar til birgðir endast. Eitthvað er athugavert við hugsunina í þessu. Hér hefði setningunni annaðhvort átt að ljúka á orðunum meðan birgðir endast, eða þar til birgðir þrýtur.
Á fundi VG var hart deilt um tvær tillögur um sama mál (20.11.2010). Sú tillaga vann, sagði fréttamaður Ríkissjónvarpsins um þá tillögu er hlaut meiri stuðning. Molaskrifari er ekki sáttur við að nota sögnina að vinna um tillögu. betra hefði verið: Sú tillaga var samþykkt.
Það þurfti að sparka nokkuð oft og fast í okkar gamla Ríkisútvarp svo ráðamenn þar áttuðu sig á því að þeir gátu ekki vikist undan því að kynna frambjóðendur, sem eru í kjöri til Stjórnlagaþings.
Úr visir .is (21.11.2010): Hann vafði plastpoka um fætur sínar og límdi þá fasta til að skilja ekki eftir skóför. Hann setti á sig latexhanska og lambhúshettu og klæddi sig í stóra úlpu og gekk svo síðustu metrana að húsi Hannesar með hnífi í hendi. Hugmyndina að því að undirbúa sig á þennan hátt segist Gunnar hafa fengið úr bíómyndum og sjónvarpsþáttum á borð við CSI. Í blaðagreinum kallaði Helgi Hálfdanarson Sjónvarpið oft Afbrotaskóla ríkisins.
Merkilegt er hve þáttastjórnendur í fjölmiðlum eru glúrnir að hafa uppi allskonar sérfræðingum sem spá því með alvörusvip og miklum þunga, að allt sé á heljarþröm. Lífeyrissjóðakerfið sé að hrynja , ef ekki hrunið, heilbrigðiskerfið sé að hrynja,eða hrunið og svo framvegis. Sem betur fer hafa allir heimsendaspámenn fram til þessa haft á röngu að standa. En fjölmiðlamenn hafa of ríka tilheigingu til að kokgleypa svona stóryrði gagnrýnilaust. Um það eru alltof mörg dæmi að undanförnu.
Skildu eftir svar