Í frétt Morgunblaðsins (24.11.2010) um framkvæmdir í grennd við náttúruperlu í Noregi segir: „Ferðamenn leggi bílum sínum við veitingastaðinn, borgi sem svarar 1200 kr fyrir bílastæðið og og þaðan liggi gönguleiðir um fjallið og næsta nágrenni“. Svo ætla talsmenn ferðaþjónustunnar á Íslandi að ganga af göflunum ef rætt er um smávægilega gjaldtöku við íslenskar náttúruperlur, sem nú eru margar hverjar í eyðileggingarhættu vegna mikillar umferðar og áníðslu. Við getum margt lært af Norðmönnum um ferðamennsku.
Talsmanni Arion banka tókst að segja að minnsta kosti þrisvar sinnum: Við erum að sjá , við erum ekki að sjá,þegar rætt var um verðbólguhorfur í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins ((25.11.2010)
Gaman er að geta fylgst með fréttum japanska NHK World News og hins kínverska CCTV 9 af atburðum á Kóreuskaga. Kínverjar taka ekki mikið upp í sig og stíga varlega til jarðar. Hafa til dæmis ekkert sagt um hvor hleypti af fyrsta skotinu. Japanir ganga aðeins lengra. Þeir segja framferðir Norður Kóreru hættulegt óafsakanlegt.
Nýlega var þeirri spurningu varpað fram í Útvarpi Sögu hvort íslenskir fjölmiðlar almennt væru frjálsir, – þ.e. lausir við áhrif eigenda sinna. Þetta kalla stjórnendur stöðvarinnar skoðanakönnun, sem það auðvitað er ekki, – langur vegur frá. 453 svöruðu á vefsíðu stöðvarinnar. 80.09% töldu að fjölmiðlar væru ekki frjálsir. 18.36% töldu fjölmiðla frjálsa, 1.55% voru hlutlausir. Ef kalla á Útvarp Sögu fjölmiðil, þá er líklega leit að miðli , sem bergmálar skoðanir eigenda og stjórnenda sinna jafn purkunarlaust og gert er í Útvarpi Sögu. Það var hinsvegar meiriháttar skemmtiatriði að hlusta á stjórnarformann Útvarps Sögu skýra frá úrslitum þessa samkvæmisleiks stöðvarinnar. Molaskrifari þorir ekki freista þess að búa til tengil á dáraskapinn, enda yrði hann líklega umsvifalaust kærður fyrir óheimila notkun á útvarpsefni úr Útvarpi Sögu. Þeir sem hafa áhuga á geta sjálfsagt fundið þetta á netinu en þetta var óborganlegt í alla staði !
Skildu eftir svar