Í Fréttablaðinu (02.12.2010) er einstaklega ósmekkleg auglýsing frá Stöð 2, Sport 2. Þar eru auglýstir 50 helgileikir í jólamánuðinum. Átt er við knattspyrnuleiki. Í auglýsingu er mynd af knattspyrnumanni við steindan glugga og undir stendur: Hann er upprisinn. Í texta auglýsingarinnar stendur svo: Stöð 2, Sport 2 boðar yður mikinn fögnuð… Er hægt að leggjast lægra? Á þetta að vera fyndið ? Nýtt lágkúrumet.
Í fréttum Ríkisútvarpsins var talað um salmónellu í kjúklingi (02.12.2010). Fremur ólíklegt er að um einn kjúkling hafi verið að ræða. Þetta orðalag var margendurtekið í hádegisfréttum sama dag. Yfirdyralæknir talaði hinsvegar um salmonellusýkingu í eldishópum. Málvenja er að tala um að vinna í fiski og fiskverkun. Molaskrifari kannast ekki við sömu málvenju varðandi kjúklinga.
Á fullveldisdaginn sæmdi Háskóli Íslands þrjá mæta rithöfunda heiðursdoktorsnafnbót. Það var að verðleikum. Ekki varð Molaskrifari þess var að sjónvarpsstöðvunum þætti þetta fréttnæmt. Vera má þó, að frétt um þennan atburð hafi farið fram hjá honum.
Glöggur lesandi spurði hvort ekki væri eitthvað athugavert við auglýsingu um morgunþátt Sigga Storms á heimasíðu Útvarps Sögu. Það er rétt athugað. Þar stendur: Morgunþáttur með Sigga Storm. Á auðvitað að vera: Morgunþáttur með Sigga Stormi.
Í seinni fréttum Ríkissjónvarps stærir stofnunin sig gjarnan af því að fréttavefur RÚV á netinu sé uppfærður allan sólarhringinn. Molaskrifari fór í fréttaleit og skoðaði fréttavef Ríkisútvarpsins. Erlendar fréttir á vef RÚV: Frétt klukkan 20 22 (02.12.2010). Næsta frétt klukkan 02 23 (03.12.2010). Þar næsta frétt klukkan 05 27 (03.12.2010). Ekki er útkoman betri , þegar kemur að innlendum fréttum á vefnum. Þar var frétt sett á vefinn klukkan 22 42 (02.12.2010). Næsta frétt var sett inn klukkan 07 46 (03.12.2010) Þetta kallar RÚV að vefurinn sé uppfærður allan sólarhringinn ! Ekki verður sagt, að þessi fréttaþjónusta sé upp á marga fiska.
Skildu eftir svar