Upplýsingarnar um bókhaldsbrellur og bankarán Glitnismanna,sem fram komu í fréttum Ríkissjónvarps og Kastljósi (08.12.2010) voru svakalegar. Þeir Svavar Halldórsson og Helgi Seljan fá prik fyrir sinn þátt í framsetningu málsins. Þarna beraðist ótrúlegt svindilbrask. Þarna heyrðum við því lýst hvernig banki var rændur. Ekki með kúbeini eins og úrabúðin Leonard í Kringlunni Heldur af hvítflibbakrimmum með tölvur og excel forritið að vopni ,sem voru sérfræðingar í bókhaldsbrellum.
Sérstakur kapítuli þessa máls er hlutur endurskoðunarfyrirtækisins Price Waterhouse Coopers. Venjulegur hlustandi og áhorfandi getur varla dregið aðra ályktun en þá, að þar hafi verið við störf bjánar eða að menn í fyrirtækinu hafi vitandi vits og skipulega unnið með þeim sem voru að ræna bankann og settu Glitni í þrot.
Nú þegar lokið hefur verið tekið af Pandóruboxinu á örugglega margt fleira misjafnt eftir að koma í ljós.
Á forsíðu Fréttablaðsins (08.12.2010) segir frá opnun nýrrar gosdrykkjaverksmiðju. Þar segir: … þegar Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra vígði verksmiðjuna. Katrín Júlíusdóttir er ekki vígð kona. Þess vegna getur hún ekki vígt eitt eða neitt. Hún gangsetti verksmiðjuna eftir öllum sólarmerkjum að dæma.
Einkennilega var tekið til orða í inngangi fréttar um offituvanda á Stöð tvö (07.12.2010). Þulur sagði eitthvað á þessa leið: Um fimmtungur íslensku þjóðarinnar þjáist af alvarlegustu tegund offita. Ekki ætti að þurfa að taka það fram að orðið offita er ekki til í fleirtölu.
Ríkissjónvarpið komst á síður dagblaðanna (08.12.2010. Hversvegna vegna? Vegna þess að ekki tekst að ná samningum um ameríska sápuþáttaröð. Hvað var það sem Jón Baldvin kallaði Ríkissjónvarpið á dögunum ? Ameríska vídeóleigu ? Það minnir mig. Jón Baldvin hittir oft naglann á höfuðið. Það sárvantar auðvitað ameríska sápu í Efstaleitið. En gott væri ef sápan væri notuð eins og á að nota sápu. Til að hreinsa. Til að gera hreint. Það er borin von.
Mikið væri annars gaman ef Ríkissjónvarpið sýndi okkur þó ekki væri nema eins og tvisvar í mánuði upptökur frá tónleikum þar sem flutt er sígild tónlist. Svo virðist sem sígild tónlist sé á svörtum lista í Efstaleitinu. Það er óskiljanlegt og til skammar.
Skildu eftir svar