Heimildamyndin, sem Ríkissjónvarpið sýndi (06.12.2010) um eldgos á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli, var um margt ágæt. Skrítið var þó, að valið skyldi að sýna fréttainnslög frá Fox sjónvarpsstöðinni bandarísku , sem ekki er þekkt fyrir áreiðanlega fréttaþjónustu. Nokkrir hnökrar voru í þulartexta og jafnvægi skorti í hljóðblöndun, – bakgrunnshljóð voru stundum nálægt því að yfirgnæfa þulinn. Þessi mynd á þrátt fyrir það eftir að fara víða.
Skelfilegt var að heyra fulltrúa kjörinn á stjórnlagaþing, formann stjórnar Útvarps Sögu, líkja íslensku stjórnarfari við stjórnarfarið í Norður Kóreu (07.12.2010). Það sýnir, að hann veit ekkert í sinn haus um Ísland og enn síður Norður Kóreu.
Það er dálítið einkennilegt, að höfundi forsetasögu Ólafs Ragnars Grímssonar skuli greiddar 600 þúsund krónur úr sjóðnum Gjöf Jóns Sigurðssonar á árinu 2010. Löngu er komið fram að bankabófarnir í Glitni, Kaupþingi og Landsbanka kostuðu útgáfu og ritun bókarinnar. Bókin kom út fyrir tveimur árum. Hún er mikill og gagnrýnislaus lofsöngur um Ólaf Ragnar og útrásarliðið, þar sem bankabófarnir fóru fremstir með sínar Fálkaorður í barminum. Ekki jók bókin hróður höfundar sem sagnfræðings. Þetta mál kallar á skýringar.
Málvenja er að tala um fallegan fisk, fallega síld, eða fallega loðnu. Það er hinsvegar nokkur nýlunda að segja að loðna sé fögur eins og gert var í Morgunblaðinu (07.12.2010). Á þessu er munur að mati Molaskrifara.
Seinni fréttum Ríkissjónvarps seinkaði um tæpar tíu mínútur að kveldi þriðjudags (07.12.2010). Sjónvarpsstöðvar, sem kunna sig, segja frá slíkri seinkun í skjátexta. Hún er fyrirsjáanleg og kemur útsendingarstjórum ekki á óvart. Þar er áhorfendum sýnd kurteisi. Líklega ollu íþróttirnar þessu , enn einu sinni. Það tíðkast ekki í Efstaleiti að tilkynna seinkun dagskrárliða á skjánum. Þulur baðst að vísu afsökunar á seinkuninni við upphaf frétta eftir býsna skrautlega byrjun fréttatímans.
Eins og oft étur hver fjölmiðillinn eftir öðrum, þegar tiltekin orðtök komast í tísku. Nú er allt að bresta á. Friður brestur á og í fréttum Stöðvar tvö (07.12.2010) af Icesave málinu var okkur sagt að samingar væru að bresta á.
Skildu eftir svar