«

»

Molar um málfar og miðla 486

Upp til hópa eru þingmenn bara svín bara svín við trog. Mokum öllu þessi ógeði á haugana , skrifar Jónas Kristjánsson  (16.12.2010). Gallinn við þessa hugmynd er sá að í staðinn kæmu að öllum líkindum önnur svín og ekki sjálfgefið að þau yrðu betri.  Bandaríkjamenn nota orðið pork (svínakjöt) um pólitíska kjósendagreiða, greiðslur  eða  störf og  pork barrel  (svínakjötstunna) um  kjördæmapotsverkefni.

Margir þeirra sem skrifa fréttir mættu að ósekju þekkja landið sitt betur.  Úr   mbl. is  (14.12.2010.) :  Hópurinn kom ekki heim fyrr en undir morgun en hann fór alla leið upp að Rangárvöllum hjá Heklu,    Betra hefði verið að segja  segja  að hópurinn hafi farið  austur á Rangárvelli. Líka mun málvenja að tala um að fara upp á Rangárvelli.Að tala um alla leið gefur til að  að farið sé  mjög langan veg.  Setningin hljómar eins og Rangárvellir séu tiltekinn blettur í grennd við  Heklu.

    Úr fréttatilkynningu frá stjórn Trúfélagsins Krossins ((14.12.2010): Við hörmum þær athugasemdir sem voru látnar falla af hendi meðlims í varastjórn kirkjunnar enda var samþykkt einróma að málið skyldi fara í faglegan farveg. Engar skoðanir okkar, hverjar sem þær kunna að vera, hefðu þar áhrif á.

 Það eru ótrúlegt  hvað streymir út í ljósvakann frá Útvarpi  Sögu. Einn af vildarvinum stöðvarinnar  sagði við Pétur Gunnlaugsson stjórnlagaþingsmann (10.12.2010) að  fundist hefði haglaskot við dyr  Alþingishússins eftir síðustu mótmæli. Hann fullyrti ,að  lögreglan hefði verið með haglabyssur  tilbúin að skjóta  fólkið.  Stjórnandi þáttarins steinþagði  undir  þessu bulli.

  Þá var  Molaskrifara bent á að  fyrr þennan  sama  dag hefði sami þáttarstjórnandi sagt að ríkisstjórnin ætti við geðræn vandamál að stríða. Er hægt að komast neðar í lágkúru? Líklega ekki.   Það er  dómgreindarleysi  að hafa alvarleg  veikindi í flimtingum með þessum hætti

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>