«

»

Molar um málfar og miðla 489

Ríkisútvarpið á áttræðisafmæli í dag, 20. desember. Það var merkur áfangi í þjóðlífinu, þegar  Ríkisútvarpið tók til starfa, en  einstaklingar höfðu þá  rekið útvarp um nokkurt skeið. Annar  merkur áfangi var  upphaf sjónvarps 30. september 1966. Margt hefur vel tekist hjá þessari þjóðarstofnun. Í fórum hennar eru ómetanleg verðmæti um  sögu og menningu þjóðarinnar. Ríkisútvarpið varðveitir mikilvægan  hluta menningararfs  þessarar þjóðar.

   Á áttatíu ára afmæli Ríkisútvarpsins þarf stofnunin að staldra  við. Hún hefur að sumu leyti misst áttir í fjölmiðlahafi samtímans. Hún þarf að  ná áttum að nýju. Þessi gamla stofnun þarf að ganga í endurnýjun lífdaganna. Menn eiga að  viðurkenna í fullri hreinskilni, að  breyting  Ríkisútvarpsins í svonefnt opinbert hlutafélag hefur   misheppnast. Utanfrá séð, hefur  breytingin  aðallega leitt til  launahækkana hjá æðstu stjórnendum og þess að ekki starfar lengur dagsskrárráð. Menn geta haft ýmsar skoðanir á  störfum útvarpsráðs í áranna rás en það gegndi mikilvægu hlutverki.   Með breytingum  er hér ekki átt við að horfið sé aftur  að gamla  kerfinu, lítt eða ekki breyttu. Það er víðsfjarri. Það þarf hinsvegar að  fara nýjar leiðir  og  skapa  þjóðarsátt um þessa  mikilvægu stofnun, sem  hefur á að skipa mörgum hæfum starfsmönnum og hægt er virkja  betur til góðra verka.

    Íslenska þjóðin á betra skilið en margt það  sem  nú berst um byggðir landsins úr Efstaleitinu. Einkanlega á það við um Ríkissjónvarpið , sem smám saman  hefur verið að  koðna niður í boðveitu fyrir amerískar þáttaraðir og  kappleiki í boltaíþróttum. Íslensk menning og  saga hafa þar orðið hornrekur.  Íþróttir eiga  auðvitað sinn stað í dagskránni, en það er ekki  meginhlutverk  Ríkissjónvarps að dreifa íþróttaefni.

   Það væri  góð  jólagjöf  til þjóðarinnar, ef   þeir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands sem  öllu ráða um mál  Ríkisútvarpsins ,  fjármálaráðherra og menntamálaráðherra   létu nú lofta út í Efstaleitinu. Þar þarf að hleypa inn ferskum vindum.

    Ráðherrarnir gætu byrjað það verk á því að boða til  einskonar þjóðfundar um Ríkisútvarpið, framtíð þess  og hlutverk í þjóðarþágu.

   Til hamingju með daginn  og  vonandi nýja framtíðarsýn !

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>